Tímarit Máls og menningar - 01.03.1996, Blaðsíða 22
melódíu, þar sem ljóðlínurnar eru eins og „nakinn vír“ — berar opnar
yfirlýsingar. Loksins tekur Heaney þá pólitísku afstöðu sem hann forðaðist
einusinni. Hann sér sjálfan sig sem pólitiskt fórnarlamb og talar um von-
brigði, vonleysi og sekt út frá því sjónarmiði.
Station Island, öðru nafni St. Patrick’s Purgatory, er lítil eyja í vatninu
Lough Derg í Donegal héraði og er helgistaður kaþólskra pílagríma. Það er
hér, á þessari eyju, sem ljóðskáldið hittir og talar við fjölda drauga, svipaða
þeim sem Dante mætti í Hreinsunareldinum. Eins og Heaney segir í ritgerð
sinni um Dante:
Það sem ég lærði fyrst að meta í Gleðileiknum var hin staðbundna
spenna, ákafinn og væntumþykjan sem umleikur einstakar
skuggaverur, hvernig mannlegir eiginleikar og gildi eru felld sam-
an, hið öfluga persónulega raunsæi sem birtist í böndum vináttu
. . . hvernig Dante gat staðsett sig í sögulegum heimi og samt
skyggnst í þann heim frá sjónarhorni handan sögunnar, hvernig
hann gat samræmt hið pólitíska og hið yfirskilvitlega, og þetta var
mér hvatning til að yrkja flokk ljóða þar sem kanna mætti hið
dæmigerða álag sem vitund manns býr við í þessu landi. Megin
spennan myndast milli tveggja krafha sem oft eru í innbyrðis
mótsögn, að sýna sameiginlegri sögulegri reynslu tryggð og að vera
eigin vitundarvakningu trúr. Ég vonaðist til að geta unnið úr þessu
álagi með því að mæta skuggum úr draumalífi mínu sem einnig
höfðu átt heima í írskum raunheimi. Þeir gætu ef til vill ljáð
rétttrúnaðar-kröfunum rödd sem og nauðsyn þess að viðurkenna
þær kröfur. Þeir gætu vakið spurninguna um það hvers virði
skuldbinding manns er.17
Allir draugarnir sem Heaney hittir í þessum kvæðum hafa verið lifandi írar
í þessum heimi, bæði vinir, kunningjar, svo og rithöfundar og fleiri.
Næsta bók Heaneys heitir The Haw Lantern. Þetta er lítið safn af ljóðum
sem birt voru í ýmsum tímaritum, sum heimspekileg og djúp, önnur í léttari
dúr, eins og „Póstkort frá íslandi“, en sem samt sem áður bera þann keim af
töfrabrögðum. Hér finnum við gátur og sjónhverfingar, Ijóð sem við þurfum
að lesa off til að skilja — en skiljum þó aldrei fullkomlega.
Nýjasta bók Heaneys heitir Seeing Things og kom hún út árið 1991.
Titillinn er skemmtilega einfaldur en með honum leikur Heaney sér að tveim
merkingum þessa orðalags: „að sjá hluti sem eru fyrir hendi“ — það að vera
áhorfandi í raunheimi — og „að sjá hluti sem eru í rauninni ekki til“ — það
að vera á valdi ímyndunaraflsins.
Bókin Seeing Things hefst með þýðingu úr Eneasarkviðu eftir Virgil, nánar
12
TMM 1996:1