Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.03.2015, Qupperneq 2

Fréttatíminn - 27.03.2015, Qupperneq 2
Þú finnur stjörnuspána þína í Spádómsegginu frá Góu. PIPA R\TBW A • SÍA • 1 5 0 8 6 8 Valhúsaskóli bestur Nemendur í 10. bekk Valhúsaskóla, grunnskóla Seltjarnarness, voru með hæstu meðaleinkunn í öllum samræmdu prófunum, þ.e. íslensku, stærðfræði og ensku. Í samanburðinum setja nemendur skólans Seltjarnarnesbæ í fyrsta sæti 39 sveitarfélaga með skóla fyrir aldurshópinn 1.-10. bekk og skólastærð yfir 320 nemen- dum. Útkoma nemenda skólans er talsvert fyrir ofan meðaltalsútkomu nemenda sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í öllum greinum. Fjórðubekkingar náðu besta árangri sem skólinn hefur mælst með í nokkurn tíma og nemendur í 7. bekk sýndu umtalsverðar framfarir á milli prófa. Fyrir utan góðan árangur í prófum hefur líðan nemenda í Grunnskóla Seltjarnarness einnig mælst vel í mælingum Skólapúlsins auk þess sem ánægja af lestri og hreyfingu er meðal þess sem best gerist. 16 ára kosningaaldur Kosningaraldurinn verður færður niður í 16 ár nái frumvarp fjögurra þingmanna Vinstri grænna og Samfylkingarinnar fram að ganga. Katrín Jakobsdóttir formaður VG, Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar ásamt þingmönnunum Kristjáni Möller og Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur lögðu frumvarpið fram fyrir Alþingi í lok þing- fundar þann 25. mars en markmið þess er að styðja við lýðræðislega þátttöku ungs fólks í kosningum og stjórnmálastarfi. Austurríki hefur eitt Evrópuríkja stígið það skref til fulls að færa kosningaaldur niður í 16 ár en allnokkur ríki Suður- og Mið-Ameríku hafa einnig er gert það. Í greinagerð sem fylgir frumvarpinu segir m.a.: „Með því að veita ungu fólki á aldrinum 16–18 ára kosningarétt fær það tækifæri til að móta líf sitt og framtíð á sama hátt og aðrir borgarar og verður að fullu gjaldgengt í umræðu um stjórnmál og samfélagsmálefni.“ Útgáfa Fréttatímans Páskablað Fréttatímans kemur út á skír- dag, 2. apríl næstkomandi. Aukin dreifing verður á Akureyri og á Ísafirði. Skil á auglýsingum eru á miðvikudaginn, 1. apríl. Fyrsta tölublað eftir páska kemur að vanda út á föstudegi, þann 10. apríl. Hættir sem ríkissáttasemjari Magnús Pétursson ríkissáttasemjari mun láta af stör- fum innan tíðar. Hann sagði upp í lok síðasta mánaðar og mun því hætta hjá embættinu í lok maí að óbreyttu. Magnús er 67 ára og kveðst ekki hafa ákveðið hvað hann taki sér fyrir hendur eftir starfslokin.  Bylting Allt vArð vitlAust á twitter í BrjóstAByltingunni K onur eru einfaldlega að segja: „Hingað og ekki lengra“. Brjóst og geir- vörtur eru líkamspartur rétt eins og hendur eða fætur eða brjóst á karlmönnum,“ segir Helgi Gunn- laugsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands. Helgi segir afar áhugavert að fylgjast með bylting- unni sem kennd er við frelsun geir- vörtunnar, #FreeTheNipple, meðal íslenskra kvenna í gær. Byltingin hófst í raun í umræðum á Twitter um frelsi kvenna til að leyfa brjóstum sínum að sjást án þess að þau séu sett í kynferðislegt samhengi. Verzlunaskólaneminn Adda Þóreyjardóttir Smáradóttir birti mynd af brjóstunum sínum á Twitter í þessu samhengi á miðviku- dag en tók myndina út stuttu seinna eftir að ungur karlmaður gerði lít- ið úr henni vegna myndbirtingar- innar. Í kjölfarið tóku skólasystur Öddu sig til og lýstu yfir stuðningi við hana með því að birta myndir af sér berbrjósta. Allt þetta var gert með tilvísuninni #FreeTheNipple sem raunar er alþjóðlegt átak sem hefur verið í gangi í nokkurn tíma og meðal annarra stórstjarnan Mi- ley Cyrus sem hefur birt myndir af brjóstunum á sér í nafni frelsis kvenna. Sífellt fleiri íslenskar kon- ur og stúlkur birtu myndir af brjóst- unum á sér á Twitter á miðvikudag og á fimmtudag var hvatt til þess í fjölda menntaskóla og háskóla að frelsa geirvörtuna og stúlkur til að mæta brjóstahaldaralausar í skól- ann. Bára Bryndís Viggósdótt ir kvennaskólanemi er ein þeirra sem tóku þátt og gekk raunar skref- inu lengra með því að ganga ber- brjósta niður Laugaveginn og niður í miðbæ ásamt nokkrum skólasystr- um sínum. „Ég er að taka þátt því ég vil fá jafnrétti. Ég lít líka á þetta sem baráttu gegn hefndarklámi Konur vilja frelsi og hafa fengið nóg að því að þær eigi að vera í feluleik með brjóstin á sér. Þetta segir Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði, vegna brjósta- byltingarinnar svokölluðu sem kennd er við #FreeTheNipple. Nokkrar stúlkur úr Kvenna- skólanum gengu berbrjósta niður Laugaveginn í gær og segir ein þeirra að þetta hafi verið gríðarleg frelsun. Íslenskar konur frelsa „nippluna” Ég er búin að skemma það fyrir öðrum að þeir geti notað myndir af brjóstunum á mér gegn mér Bára Bryndís Viggósdóttir og skólasystur hennar í Kvennaskólanum í Reykja- vík gengu berbrjósta niður Laugaveginn og var þessi mynd sem birtist á Twitter tekin við Alþingishúsið. Helgi Gunnlaugsson. og ákvað líka að taka mynd af mér og setja á Twitter. Ég er þannig búin að skemma það fyr- ir öðrum að þeir geti notað myndir af brjóst- unum á mér gegn mér og ég get verið frjáls með mín brjóst,“ segir hún. Bára viðurkennir að hún hafi í fyrstu verið eilítið stressuð, sér í lagi þegar þær fóru berbrjósta á Laugaveginn en það hafi sannarlega verið þess virði. „Þetta var virkilega frelsandi og okkur leið öllum ótrúlega vel með sjálfar okkur. Ein konan kom meira að segja berbrjósta út í glugga og kom svo út á götu til okkar. Það var bara ein gömul kona sem púaði á okkur,“ segir hún. Helgi telur að aðrar stúlkur hafi upplifað gagnrýnina á Öddu sem gagnrýni á þær sjálf- ar og það hafi því verið neistinn sem kveikti bálið. „Þeim hefur eflaust fundist vegið að þeim líka sem konum. Konur eru í samfé- laginu settar í aðra stöðu en karlar, og þær þurfa að passa sig að ekki sjáist í brjóstin á þeim. Konur upplifa sig því aðþrengdari en karlar sem mega vera berir að ofan og sýna sín brjóst eða geirvörtur hvar sem er. Mér finnst líka áhugavert að skoða þessa byltingu í sögulegu samhengi því fyrir 10-20 árum var algengt að konur væru berbrjósta í sólbaði í sundi en það sést varla lengur. Það er því eins og þetta frelsi þeirra hafi minnkað af einhverj- um ástæðum,“ segir hann. Bára segist sannfærð um að aðgerðir ís- lenskra kvenna eigi eftir að skila árangri og hún hlakkar til að fara á Austurvöll í sumar „og tana brjóstin.“ Hún kveður blaðamann síðan með orðunum: „Gleðilegan nippludag.“ Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Stuðningur við stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands er 61,4% sam- kvæmt nýrri könnun sem Gallup vann fyrir Landvernd og Náttúru- verndarsamtök Íslands. Stuðning- urinn hefur aukist um 5 prósentu- stig frá sambærilegri könnun í október 2011. „Mér finnst þetta vera til marks um aukinn áhuga og vilja almenn- ings til þess að vernda hálendið,“ segir Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands. „Fólk lítur í auknum mæli á miðhá- lendið sem auðlind sem dregur að ferðamenn og sem við verðum að passa mjög vel upp á, rétt eins og við þurfum að passa upp á fiski- miðin.“ Samkvæmt könnuninni hefur stuðningurinn við stofnun þjóð- garðs aukist um 5% frá sambæri- legri könnun í október 2011. Árni telur að aukninguna megi að ein- hverju leiti rekja til umræðu um ferðaþjónustuna. „Aukin umræða um aukningu ferðamanna og um náttúrupassa er í raun umræða um það hvernig við ætlum að fara að því að skipuleggja ferðaiðnaðinn og ásókn í landið en stjórnmála- menn virðast ekki almennilega vita hvernig þeir ætla að gera það.“ Þeim sem eru andvígir stofnun þjóðgarðs hefur fækkað frá því í síðustu könnun og eru nú 12,4% aðspurðra. Stuðningur við stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu er þvert á stjórnmálaflokka. Á meðal stuðn- ingsmanna allra stjórnamálaflokka eru mun fleiri aðspurðra fylgjandi stofnun þjóðgarðs en andvíg. 51% af þeim er styðja ríkisstjórnina styðja stofnun þjóðgarðs en 19% eru and- víg. Stuðningur þeirra sem ekki styðja ríkisstjórnina er 72% og 9% eru andvíg þjóðgarði. Stærð úrtaks var 1.418 manns og þátttökuhlutfall var 61,8%. -hh  náttúruvernd ný Könnun sem unnin vAr fyrir lAndvernd og ní 60% vilja þjóðgarð á hálendið Stuðningur við stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu er þvert á stjórnmálaflokka. Á meðal stuðningsmanna allra stjórnamálaflokka eru mun fleiri aðspurðra fylgjandi stofnun þjóðgarðs en andvíg. Mynd/NordicPhotos/GettyImages 2 fréttir Helgin 27.-29. mars 2015
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.