Fréttatíminn - 27.03.2015, Blaðsíða 26
á viðtalinu stendur.
Glódís er með það sem kallast
tvíþættur vandi, hún er fíkill
með geðsjúkdóm, en mikið hefur
verið kallað eftir sérstökum
úrræðum fyrir þennan hóp ung-
menna. Í geðhvörfum er Glódís
oftar í maníu en þunglyndi, en
hefur þó ítrekað fengið sjálfsvígs-
hugsanir þegar hún er sem mest
niðri. „Ég fékk ekki greiningu á
geðhvörfunum fyrr en í janúar
2012. Það er líka mjög erfitt að
greina geðsjúkdóma þegar fólk
er í mikilli neyslu því þetta eru
jafnvel sömu einkennin. Ég fór þá
upp á bráðamótttöku geðdeildar
og var kominn á þann stað að
ég vildi einfaldlega drepa mig.“
Hún á fimm ára son sem þarna
var þriggja ára og hún útskýrir
að í mesta þunglyndinu virðist
sjálfsvíg einfaldlega vera besta
leiðin. „Þetta er bara rörsýn
á að sjálfsvíg sé eina lausnin
því ástandið sé ekki að fara að
lagast. Þegar ég fór í þetta skipti
upp á bráðamóttöku var ég búin
að skaða sjálfa mig með því að
skera í fótleggina á mér og var
öll í sárabindum. Ég var edrú
á þessum tíma en mundi samt
ekkert eftir að hafa skorið mig.
Læknirinn vildi þá láta athuga
hvort ég væri með geðhvörf. En
ég var samt ekki lögð inn heldur
send heim og sagt að hafa sam-
band ef ástandið versnaði.“
Þreif alla íbúðina um miðja
nótt
Hún byrjaði að reykja hass þegar
hún var í 8. bekk og nálgaðist
botninn á hraðbyr. Glódís bjó í
Bökkunum í Neðra-Breiðholti
og gekk í Breiðholtsskóla en
var sett í sérdeild og síðan í sér-
stakan skóla fyrir börn með
hegðunarerfiðleika og neyslu-
vanda, Bjarkarhlíð, en svo vildi
til að þar lenti hún í bekk með
þeim tveimur stúlkum sem hún
var í hvað mestri neyslu með en
þær höfðu báðar verið reknar úr
sínum skólum. „Ég byrjaði fljótt
að neyta sterkari efna. Á virkum
dögum var ég mest að reykja
hass en um helgar fengum við
okkur í nefið.“ Glódís segist alltaf
hafa átt auðvelt með að eignast
vini en henni hafi gengið illa
námslega og átt erfitt með ein-
beitingu. Eftir á að hyggja segir
hún augljóst að hún hafi verið
með geðhvörf. „Kærastinn minn
tekur stundum dæmi af maní-
unni hjá mér þegar ég vaknaði
klukkan þrjú um nóttina, þreif
alla íbúðina og dró hann og strák
sem var að leigja með okkur út í
bíltúr. Þeir ætluðu ekki að nenna
þessu en ég sagðist bara rétt ætla
út í búð. Ég keyrði hins vegar
á Þingvöll og við komum ekki
aftur fyrr en klukkan átta um
morguninn. Þetta var bara fyrir
ári síðan. Á átján ára afmælinu
mínu fékk ég rúmlega milljón
greitt út af söfnunarreikningi
sem hafði verið lagt inn á frá því
ég fæddist. Á einni viku eyddi
ég öllum þessum peningum, ég
leigði hótelherbergi og keypti
fíkniefni. Planið var að ég myndi
nota þennan sjóð sem innborgun
í íbúð og ég var á frekar miklum
bömmer eftir að hafa eytt þessu
öllu í rugl.“
16 ára vinkona seldi sig
Hún segir undirheima Reykja-
víkur vera gríðarlega ofbeldis-
fulla og margt slæmt sem hún
hafi horft upp á. Eitt það alversta
segir hún vera að horfa upp á
ungar stelpur selja sig fyrir eitur-
lyfjum. „Ég bjó um tíma í litlu
herbergi í Árbænum. Það sýnir
sig hvað standardinn minnkar
þegar maður er í neyslu því þetta
var svo óhreint, varla hægt að
ganga á gólfinu fyrir drasli og
lífríki að myndast í glösunum,
en mér fannst þetta bara fínt. Ég
myndi ekki stíga þarna inn fyrir
í dag. En þangað kom vinkona
mín stundum í heimsókn þegar
hún var að fara að hitta kúnna.
Hún var sextán ára sprautufíkill
og var að vinna fyrir einhvern við
að selja sig. Hún fékk bara lykla
að íbúð í Árbænum og tók strætó
þangað til að hitta kúnnana. Hún
var auðvitað ekki nógu gömul til
að keyra og var ekki komin með
bílpróf. Ef strætó kom snemma
kíkti hún stundum til mín fyrst.
Þessi stelpa er enn í neyslu.“
Glódís segir þá sem ekki hafa
verið í neyslu oft eiga erfitt með
að skilja hvað það getur verið
erfitt að hætta. „Mörgum finnst
erfitt að hætta að reykja eða fara í
megrun en að hætta í neyslu þýð-
ir að þú ert að yfirgefa þitt fyrra
líf, hættir að umgangast alla sem
þú varst að umgangast og byrjar
einn á eigin fótum, og það er allt
til viðbótar við fráhvörfin. Afi
spurði mig stundum af hverju ég
hætti bara ekki og fannst þetta
vera aumingjaskapur. Þess vegna
er svo dýrmætt að geta leitað til
annarra fíkla og alkóhólista í 12
spora samtökum því þar er fólk
sem skilur mann.“
Fór á „bangsadeildina“ á
Vogi
Fréttir þar sem lýst er eftir ung-
um stúlkum hafa verið áberandi
síðustu ár og hefur lögreglan lýst
yfir sérstökum áhyggjum af því
að stúlkur séu í slagtogi með full-
orðnum karlmönnum sem jafnvel
halda þeim uppi á fíkniefnum.
Glódís segir að yngri systir sín sé
ein af þeim stelpum sem var lýst
ítrekað eftir en hún átti í sam-
bandi við sér eldri mann. „Hún er
fædd 1996 en hann fæddur 1980.
Þau kynntust í neyslu en það
var ekki síður hún sem leitaði í
hans félagsskap. Oft er þetta sett
upp þannig að þetta séu vondir
karlar en yfirleitt held ég að þetta
sé brotið fólk sem leitar hvert í
annað. Þessi maður var búinn að
vera lengi í neyslu og þau voru
bara á sama þroskastigi.“ Þegar
Glódís fór fyrst í meðferð á Vog
var hún á svokallaðri „bangsa-
deild,“ deild fyrir þá sem eru
undir 18 ára aldri. „Við hittum
samt alveg fullorðnu fíklana
og mér finnst ekki bara mikil-
vægt að kynjaskipta meðferðinni
heldur líka aldursskipta. Ungar
stelpur á Vogi sækja líka í þær
sem eru eldri og læra af þeim.“
Glódís hefur verið edrú síðan
í janúar 2013 en hún var einnig
edrú á árunum 2009-2011 og
það var þá sem hún eignaðist
eldri son sinn. „Ég og pabbi hans
gerðum með okkur samning
því við vorum bæði fíklar í bata.
Samningurinn var á þá leið að ef
annað okkar dytti í það þá myndi
sá aðili fara út af heimilinu. Síðan
hættum við saman og þá breytt-
ist samningurinn í að ef annað
okkar fellur þá myndi hitt taka
barnið. Á árum áður drakk ég
aldrei mikið áfengi og taldi mér
trú um að ég gæti alveg drukkið,
hætti að mæta á 12 spora fundi
og varð hrokafull. Strákurinn
minn var tveggja ára þegar ég
var byrjuð að drekka aftur og
helgarnar stóðu yfir fram á
miðvikudag. Ég sagði barns-
föður mínum frá þessu og hann
tók strákinn til sín. Þetta er engu
að síður það erfiðasta sem ég
hef gert, að missa barnið mitt
svona. Núna er hann aftur farinn
að vera hjá mér aðra hvora viku.
Mér tókst að verða edrú á ný og
er mjög ánægð í dag,“ segir hún
og horfir hlýlega á nýbakaðan
soninn. „Þetta gengur allt ef
maður gerir það sem maður á að
vera að gera, mætir á fundi og er
auðmjúkur.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Margfalt
minni
umbúðir
með nýrri, byltingarkenndri
prenttækni HP og betri
orkunýtingu.
Ódýrari
í rekstri
Fáðu ráðgjöf sérfræðinga Opinna kerfa við val á lausnum
sem henta þínum þörfum og umhverfi.
Nánar á www.ok.is/ProX
Helmingi ódýrari í rekstri
en sambærilegir laserprentarar
Nýtt hraðamet* í prentun
– allt að 70 blaðsíður á mínútu
Umhverfisvænn
Kynntu þér eiginleika nýju
„HP PageWide“ tækninnar
HP Officejet Pro X fjölnotaprentarar
*Samkvæmt Guinness World Records og prófunum Buyers Laboratory LLC.
Sérfræðingar þér við hlið
26 fréttirHelgin 27.-29. mars 2015