Fréttatíminn - 27.03.2015, Blaðsíða 37
Gunnar
Smári
Egilsson.
Ránið í Seðlabankanum undirbúið
Gunnar Smári Egilsson bloggar reglulega á vef Fréttatímans. Vinsælasta færsla hans í vikunni fjallaði
um fyrirheit stjórnvalda að fjölga Seðlabankastjórum í þrjá.
Ástæðan fyrir að stjórnarflokkarnir
vilja hafa þrjá Seðlabankastjóra er
að sú skipan hentaði þeim vel – þótt
hún hafi reynst almenningi ákaflega
illa. Hagsmunir þessara tveggja, al-
mennings annars vegar og Fram-
sóknar- og Sjálfstæðisflokks hins
vegar, hafa sjaldan farið saman.
Segja má þvert á móti að flokkarn-
ir hafi verið helsta hindrunin fyrir
því að lífskjör almennings á Íslandi
gætu orðið sambærileg og þau eru í
nágrannalöndunum.
Áhersla Framsóknar- og Sjálf-
stæðisflokksins á eigin hagsmuni
umfram hagsmuni almennings hef-
ur eitrað íslenskt samfélag á marg-
víslegan máta.
Flokkarnir hafa skipað sitt fólk í
mikilvægar stöður innan ríkiskerf-
isins þótt það hafi lítið til brunns
að bera til að geta sinnt starfinu.
Stofnanir sem ætlað er að gæta
hagsmuna almennings hafa þann-
ig verið lamaðar vegna getuleysis
stjórnenda. Þegar á reynir velja þeir
ætíð hagsmuni ríkisvaldsins fram
yfir hagsmuni almennings. Hags-
munir ríkisvalds á Íslandi eru fyrst
og fremst hagsmunir Framsóknar-
og Sjálfstæðisflokks.
Þetta á við um fjölmargar ríkis-
stofnanir en einnig dómskerfið.
Þar sitja fulltrúar stjórnarflokk-
anna í dómarasæti og gæta þess að
í öllum málum séu hagsmunir flokk-
anna teknir fram yfir hagsmuni al-
mennings. Af þeim sökum hafa ís-
lenskir dómstólar ekki varið rétt
almennings gagnvart ríkisvaldinu
og stjórnmálaflokkum. Almenningi
hefur í nokkrum tilfellum tekist að
sækja réttlæti til erlendra dómstóla.
Án þeirra væru réttindi almennings
enn verr varin á Íslandi.
Hagsmunir Framsóknar- og Sjálf-
stæðisf lokks hafa ekki einvörð-
ungu stjórnað ríkiskerfinu heldur
einnig atvinnu- og viðskiptalífinu
– sem flokkarnir hafa mótað með
tökum sínum á ríkisvaldinu. Yfir
svo til öllum geirum atvinnulífsins
drottna fyrirtæki sem segja má að
hafi verið hluti af Framsóknar- og
Sjálfstæðisflokknum. Flokkarnir
vernduðu yfirburðastöðu fyrirtækj-
anna á markaði og fyrirtækin héldu
uppi starfsemi flokkanna með fjár-
magni. Þetta fyrirkomulag hindr-
aði frjálsa samkeppni, hækkaði verð
og svipti almenning helstu kostum
markaðsbúskapar, eins og hann var
stundaður í nágrannalöndunum.“
Nánar á www.frettatiminn.is
Það ætlaði allt um koll að keyra á
Twitter á miðvikudag og fimmtudag
vegna #FreeTheNipple. Á meðan
unga fólkið átti sviðið þar klóraði
eldra fólkið sér í hausnum á Facebook.
Ég gat ekki
ímyndað mér að
einhver hefði
áhuga á sjá
geirvörtur
mínar í
lausagangi og
varð því ákaflega
hissa í morgun
þegar ég var rukkuð um myndina yfir
morgunkaffinu á Kaffifélaginu. ?#?FreeT?
heNipple.
Marta María Jónasdóttir
Smartlandsstýra.
Einu litningagallarnir sem ég hef áhyggjur
af eru kvenfyrirlitningakallarnir.
Bragi Valdimar Skúlason Baggalútur.
Ég vissi ekki að geirvartan væri í ánauð ...
Alltaf að læra.
Friðrika Benónýsdóttir
bókmenntagagnrýnandi.
Það býr einhver ofurmannlegur
kraftur í fólki sem er 1015
árum yngra en ég. Skrítið að
feisa það en ég grenja af
aðdáun. ?#?FreeTheNipple?
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir
baráttukona.
Farið með mig á öldrunarstofnun. Ég er
ekki að ná þessu. Erum við ekki nýbúin að
vera að messa yfir unglingunum okkar um
að setja ekki hvað sem er á snapchat eða
aðra samfélagsmiðla því netið gleymir
engu og myndirnar geta elt viðkomandi
um aldur og ævi?
Margrét Tryggvadóttir
fyrrum alþingiskona
Ískalt á geirvörtudeginum.
Reynir Traustason blaðamaður sem birti
myndband af sér í sjósundi.
Biggi lögga botnar
ekki í frelsun frelsun
geirvörtunnar. Ég
botna ekki í Bigga
löggu. Botnar yfir
leitt nokkur í neinum
einasta hlut á þessum
síðustu og verstu?
Kjartan Guðmundsson
útvarpsmaður.
Frelsum geirvörtunadagurinn er alveg
hámark plebbismans
Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir
borgarfulltrúi.
Hvert er álit Þor
steins Pálssonar á
freethenipple?
Helgi Seljan sjón-
varpsmaður.
Heitustu kolin á
Lín Design Laugavegi 176 Glerártorgi Akureyri 533 2220 lindesign.is
Dúnsængurnar eru hannaðar og framleiddar af Lín Design fyrir íslenskar aðstæður
10 ára afmælistilboð
96%
eigenda ánægðir
Kíktu á könnunina
lindesign.is
með dúnsængina.
Við fögnum 15.000 ánægðum viðskiptavinum og bjóðum fleiri í hópinn
með risa afmælistilboði á öllum dúnsængum sem gildir fram að páskum.
Stærð 70x100
Tilboð 7.788 kr
Verð 12.980 kr
200 grömm dúnn
Stærð 100x140
400 grömm dúnn
Verð 16.980 kr
Tilboð 10.194 kr
Stærð 140x200
790 grömm dúnn
Verð 39.990 kr
Tilboð 23.990 kr
Léttar og hlýjar dúnsængur sem færa þér einstakan svefn.
Allur dúnn er hitahreinsaður án kemískra efna.
Eingöngu 100% náttúruleg efni, dúnn & bómull.
. . . .
Sendum frítt
lindesign.is
40%
afsláttur
fram að
páskum
TAKMARKAÐ MAGN
á afmælistilboði
UNGBARNA BARNA FULLORÐINS
Helgin 27.29. mars 2015 viðhorf 37