Fréttatíminn - 27.03.2015, Blaðsíða 44
44 fjölskyldan Helgin 27.-29. mars 2015
Bækur SyStkinin Freyja og Fróði lenda í ýmSum ævintýrum
Nýjar bækur fyrir leikskólabörn
„Kristjana er bráðfyndinn höfundur,
skrifar aðgengilegan og skemmti-
legan texta sem er ekki bara auðvelt
heldur gaman að myndskreyta,“ segir
Bergrún Íris Sævarsdóttir teiknari.
Þær Bergrún og Kristjana Friðbjörns-
dóttir voru að senda frá sér tvær
barnabækur um þau Freyju og Fróða
þar sem Kristjana skrifar textann en
Bergrún teiknar myndirnar. Í annarri
bókinni fara Freyja og Fróði í sund
með pabba sínum á meðan mamma
er að vinna, og í hinni fara þau í sína
fyrstu heimsókn til Mörtu tannlæknis
og fá töfraduft á tennurnar.
Bergrún segir að þær Krist-
jana hafi kynnst á bókamessunni í
Ráðhúsinu jólin 2012. „Við
Kristjana Friðbjörnsdóttir
kynntumst á bókamessunni
í Ráðhúsinu jólin 2012 og
náðum strax vel saman. Við
vorum því meira en til í sam-
starf þegar Sigþrúður, ritstjóri
barnabóka hjá Forlaginu stakk
upp á því að við myndum vinna
saman að barnabókaseríu fyrir
leikskólabörn,“ segir hún en þessar
tvær bækur eru aðeins byrjunin.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Freyja og Fróði eru söguhetjur í nýjum
bókaflokki fyrir leikskólabörn, og í
fyrstu tveimur bókunum fara þau í sund
og til tannlæknis.
FjölSkyldan FyrStu 1000 dagarnir í líFi Barna Skipta Sköpum
Á fyrsta árinu byrja
foreldrar þó á því
að búa til venjur
sem verða grunnur
að góðum aga
Höfundur bókarinnar Árin sem enginn man - Sæunn Kjartansdóttir sálgreinir - hefur sent frá sér
nýja bók um fyrstu þúsund dagana í lífi barns, frá getnaði til tveggja ára aldurs. Sæunn segir
stærstu áskorun foreldra að setja sig í spor barnsins og skynja hvernig því líður. Hún gagnrýnir
hversu stutt fæðingarorlof er hér á landi og leggur áherslu á að foreldrar beiti aga til að börn
upplifi ekki öryggisleysi.
Þ að er samfélagslegt verkefni að koma barni til manns. Ef við ætlum foreldrum að gera
það vel þá verðum við líka að halda
vel utan um þá,“ segir Sæunn Kjart-
ansdóttir, höfundur bókarinnar
„Fyrstu 1000 dagarnir“ sem er ný-
komin út. Um er að ræða aðgengi-
lega handbók fyrir foreldra um
fyrstu þúsund dagana í lífi barns
- frá getnaði til tveggja ára aldurs
en rannsóknir sýna að þessir dagar
hafa afgerandi áhrif á þau til fram-
tíðar.
Sæunn er einn af stofnendum
Miðstöðvar foreldra og barna sem
sérhæfir sig í tengslaeflandi með-
ferð foreldra og ungbarna, hún hef-
ur sinnt sálgreiningu í aldarfjórð-
ung.
Sæunn er höfundur bókarinnar
„Árin sem enginn man“ sem kom
fyrst út fyrir sex árum og hefur
notið mikilla vinsælda. Hún segir
hugmyndina að nýju bókinni hafa
komið í kjölfar fjölda áskorana um
að skrifa bók um svipað efni sem
höfðaði meira til þeirra sem hefðu
ekki tíma eða áhuga til að lesa mik-
ið fræðilegt efni. „Þetta eru einfald-
ir og stuttir kaflar þannig að fólk
getur valið kaflana eftir því hvað
höfðar til þess. Dæmi um kaflaheiti
eru: Grátur ungra barna; Samvisku-
bit foreldra; og Þegar mamma og
pabbi eru ekki par.
„Stærsta áskorun foreldra er að
setja sig í spor barnsins og skynja
hvernig því líður, og það er ýmis-
legt sem getur haft áhrif á hvernig
það tekst til. Manns eigin reynsla af
því að vera barn skiptir máli jafnvel
þótt við munum lítið eftir henni,“
segir hún.
Of skjótur aðskilnaður
Sæunn gagnrýnir harðlega hversu
stutt fæðingarorlof er á Íslandi vegna
þess að börn séu alls
ekki tilbúin fyrir að-
skilnað frá foreldr-
um sínum stóran
hluta úr degi fyrr en
í fyrsta lagi eins og
hálfs árs eða jafnvel
tveggja ára. „Auð-
vitað er ekki hægt að
alhæfa og það skipt-
ir líka máli hvort
barnið fer til aðila
sem þykir vænt um
það og er ekki upp-
tekinn við annað,
eða hvort barnið fer
í hóp annarra barna
þar sem fátt er um
starfsfólk. Það sem
okkur vantar sárlega
hér á landi er sveigj-
anlegri vinnumarkaður þegar kemur
að þörfum barna þannig að foreldrar
geti dregið úr vinnu án þess að það
komi niður á frama þess. Það er mik-
il skammtímahugsun að fá foreldra
aftur til vinnu sem allra fyrst ef þeir
eru ósáttir og líður illa að vera fjarri
ungum börnum sínum. Þeir eru því
ekki jafn góður starfskraftur og þeir
sem fá tíma til að fylla tankana hjá
sér og sínu barni,“ segir hún en sér-
staklega er fjallað um aðskilnað í
bókinni.
Flýtum okkur um of
Agi skiptir miklu í uppeldi barna
en Sæunn bendir á að það sé ekki
fyrr en eftir fyrsta árið sem barn er
tilbúið til að skilja agabeitingu. „Á
fyrsta árinu byrja foreldrar þó á því
að búa til venjur sem verða grunn-
ur að góðum aga.
Oft tekur tíma
að beita aga því
það þarf að út-
skýra og fylgja
eftir, og taka við
reiði barnsins
þegar það fær
ekki það sem það
vill. Agaleysi er
mikið vandamál
því börn sem
ekki hafa skýr-
an ramma geta
fundið fyrir ör-
yggisleysi. Við
erum oft að flýta
okkur allt of mik-
ið,“ segir hún.
Sérstakt mál-
þing er haldið
í dag, föstudag, í fyrirlestrarsal
Þjóðminjasafnsins milli klukkan
14-16 í tilefni af útkomu bókarinnar
þar sem Sæunn er með erindi auk
Sigrúnar Júlíusdóttur prófessors,
Maríu Helenu Sarabiu dagforeldri,
Svövu Björg Mörk leikskólastjóra,
Michael Clausen barnalækni og
Guðbrandi Árna Ísberg sálfræð-
ingi.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Öryggislaus án aga
Sæunn Kjartansdóttir
er einn af stofnendum
Miðstöðvar foreldra og
barna sem sérhæfir sig í
tengslaeflandi meðferð
foreldra og ungbarna, og
hefur sinnt sálgreiningu í
aldarfjórðung. Mynd/Hari
Fyrstu 1000 dagarnir eru handbók
fyrir foreldra sem byggir á sálgreing-
ingu, tengslakenningum og nýjustu
rannsóknum í taugavísindum.
PÁSKAEGG M
EÐ TVEIMUR
SANDLEIKFÖ
NGUM
HÆGT AÐ BREYTA Í FÖTU
2850 kr
PÁSKAEGGIN
Leikfangg
frr
KÍKTU Á VEFVER
SLUN
KRUMMA.IS
/krumma.is Gylfaflöt 7 112 Reykjavík 587 8700 www.krumma.is
– N Ú Á T I L B O Ð I –
Í S L E N S K U R
GÓÐOSTUR
www.fi.is
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Hvannadalsh
núkur
Árleg hvítasu
nnuferð FÍ
Hvannadalshnúkur
23. maí, laugardagur
Árleg hvítasunnuferð FÍ á Hvannadalshnúk, 2110 m. Gengin
Sandfellsleið. Hækkun um 2000 m. 12-15 klst. Jöklabúnaður er
nauðsynlegur. Gisting á eigin vegum.
Undirbúningsfundur: Miðvikudaginn 29. apríl kl. 20:00
í sal FÍ.
Fararstjóri: Örlygur Steinn Sigurjónsson.
Sjá nánar á www.fi.is
Nánari upplýsingar og skráning er í síma 568 2533 eða í
netpóst fi@fi.is
Skráðu þig in
n – drífðu þig
út
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn