Fréttatíminn - 27.03.2015, Blaðsíða 70
Friðrik
Friðriksson
í hlutverki
sínu í Ofsa.
Hann tekur
sér nú frí frá
leiklistinni
og sest í stól
fram-
kvæmda-
stjória.
Leikhús Friðrik Friðriksson ráðinn tiL sjáLFstæðu Leikhúsanna
Leikarinn verður framkvæmdastjóri
Leikarinn Friðrik Friðriksson var í vikunni
ráðinn framkvæmdastjóri Sjálfstæðu
leikhúsanna. Fráfarandi framkvæmdar-
stjóri, Gunnar Gunnsteinsson, flutti sig til
Akureyrar þar sem hann gegnir starfi fram-
kvæmdarstjóra Menningarfélags Akur-
eyrar. Þrettán einstaklingar sóttu um og
var Friðrik ráðinn og hefur nú þegar hafið
störf.
„Ég er mættur á skrifstofuna í Tjarnar-
bíói og þetta leggst mjög vel í mig, þótt ég
sé enn að ná áttum,“ segir Friðrik. „Hér
í húsinu er svo gríðarlega lifandi starf og
mikið af skemmtilegu fólki svo mér á ekki
eftir að leiðast. Sjálfstæðu leikhúsin halda
utan um alla þá sjálfstæðu leikhópa sem
starfa á landinu. Það eru fjölmargir hópar
og leikhús um land allt sem heyra undir
okkur. Misvirkir þó,“ segir Friðrik.
„Ég mun byrja á að taka það saman
hversu margir þetta eru og ná utan um
þetta. Svo mun ég ásamt stjórninni mynda
stefnu og sýn í kringum þetta og fyrst og
fremst þétta raðirnar innan félagsins,“ segir
Friðrik sem hefur tekið sér frí frá leiksvið-
inu um tíma. „Ég lék síðast í Ofsa í Þjóð-
leikhúsinu en set leikinn aðeins til hliðar
þennan veturinn þar sem ég er líka í MBA
námi í HR,“ segir Friðrik Friðriksson fram-
kvæmdarstjóri Sjálfstæðu leikhúsanna. -hf
Julio Cesar sigraði Gullklippurnar á síðasta ári. Hann mætir að sjálfsögðu aftur til leiks á Kex Hostel á laugardag.
skemmtanir rúningskeppnin guLLkLippurnar á kex hosteL
Julio frá Hávarsstöðum
hitar upp fyrir heims-
meistaramótið
Rúningskeppnin Gullklippurnar verður haldin á Kex Hosteli á laugardag. Allra augu verða á Julio
Cesar sem sigraði keppnina í fyrra. Hann er frá Úrúgvæ en hefur verið búsettur hér á landi í tvo
áratugi. Julio fer á heimsmeistaramótið í sauðklippum í Bretlandi í sumar.
k exland og Landsamband sauð-fjárbænda heldur rúningskeppn-ina Gullklippurnar 2015 á laugar-
daginn á Kex Hostel. Þar mun færasta
rúningsfólk landsins mæta og keppa um
Gullklippurnar.
Keppendur eru af báðum kynjum og
mun sá sem framkvæmir sneggstu og
bestu rúninguna standa uppi sem sigur-
vegari. Meðal keppenda í ár eru núver-
andi Íslandsmeistari Hafliði Sævarsson,
Gavin Stevens frá Skotlandi, Englend-
ingurinn Foulty Bush og Julio Cesar,
fyrrum sigurvegari Gullklippanna. Julio
er frá Úrúgvæ og hefur búið hér á landi í
um tvo áratugi.
„Ég kom til Íslands vegna þess að ég
kynntist íslenskri konu, sem er konan
mín,“ segir Julio sem er bóndi að Hávars-
stöðum í Hvalfjarðarsveit. „Ég er alinn
upp í sveit og hér er ég með um hundrað
kindur og slatta af hrossum,“ segir Julio
sem er tamningamaður. „Ég var Íslands-
meistari í rúningi fyrstu þrjú árin og
tók svo pásu, og keppti aftur í fyrra og
varð annar. Sauðklippukeppnin á KEX
er mjög skemmtileg og það var gaman
að vinna og ég stefni auðvitað á það að
vinna aftur í ár,“ segir Julio.
„Þetta fer meira eftir gæðum en
hraða,“ segir Julio. „Ég var ekki fyrstur
en ég var með bestu rúninguna. Tíminn
skiptir auðvitað máli, en gæðin meira.“
Julio fer til Bretlands í sumar að keppa á
heimsmeistaramótinu í sauðklippum og
er það í annað sinn sem hann tekur þátt.
„Við kepptum í fyrra í keppninni á Írlandi
og enduðum um miðju, en það voru rúm-
lega hundrað lið sem tóku þátt,“ segir
Julio Cesar Gutierrez bóndi og sauð-
klippumeistari.
Gullklippurnar eru fjölskylduvæn
skemmtun og verður haldin í portinu
fyrir aftan Kex Hostel klukkan 14 á
laugardag og er hún opin öllum, ungum
sem öldnum. Á meðan keppni stendur
verður boðið uppá tvíreykt sauðakjöt,
kúmenbrennivín, harmonikkuundirleik
og fleira.
Sauðféð kemur frá Hraðastöðum í
Mosfellsdal og kemur það í fylgd dýra-
læknis sem sér um að allt fari mannúð-
lega fram.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Á meðan
keppni
stendur
verður boðið
uppá tvíreykt
sauðakjöt,
kúmenbrenni-
vín, harmon-
ikkuundirleik
og fleira.HVÍ
T
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Dásamlegur á brauðið og
hentugur fyrir heimilið
Engin
fyrirhöfn
ms.is
TILBOÐ25
sneiðar
Kanarnir hrifnir af
Kaleo
Hljómsveitin Kaleo er um þessar mundir
stödd í Austin í Texas þar sem hún spilaði á
tónlistarhátíðinni „South by South-West.“
Hátíðin er ein sú stærsta sinnar tegundar í
Bandaríkjunum og kom hljómsveitin fram
alls 8 sinnum á 5 dögum. Fyrir hátíðina
valdi tímaritið „Esquire“ Kaleo sem eina
af hljómsveitunum til að fylgjast með á
hátíðinni en eins og áður hefur komið
fram samdi Kaleo við plöturisann Atlantic
Records síðasta haust. Sveitin verður á
ferð og flugi á næstunni og koma meðlimir
hennar við í bæði Dallas og Kansas City
áður en þeir fara á tónleikaferðalag með
Vance Joy sem að hefst í Seattle þann 9.
apríl.
Dúnúlpur fyrir Vín
María Ólafs og StopWaitGo hópurinn birti
mynd af sér á samfélagsmiðlum í vikunni
íklædd glæsilegum úlpum frá Cintamani
fataframleiðandanum. Fyrirtæki hafa alltaf
hengt sig á flytjendur í Eurovision og í ár
er engin breyting þar á. María var glæsileg
í úlpunni með drengjunum í StopWaitGo.
Líklegt er þó að hitastigið í Vín í vor verði
aðeins of hátt fyrir dúnúlpur.
Lítið hefur farið fyrir komum erlendra
kvikmyndagerðarmanna hingað að
undanförnu eftir ekki varð þverfótað
fyrir þeim um tíma. Nú heyrist að breyt-
ing verði á, þótt ekkert hafi enn fengist
staðfest og fólk í bransanum vilji ekkert
segja. Frægt varð að teknar voru senur
í væntanlegar Star Wars-myndir hér í
fyrra, þótt ekkert af þekktustu leikur-
unum hafi komið hingað. Tökurnar voru
mestmegnis svokallaðar plate-tökur, eða
bakgrunnstökur. Nýlega var skipt um
leikstjóra og Rian Johnson hefur tekið
við af JJ Abrahms. Hefur nýi leikstjórinn
fyrirskipað frekari tökur og mun tökulið
vera væntanlegt hingað innan tíðar. Eins
og í fyrra skiptið er þó ekki búist við að
þekktir leikarar verði með í för.
Einnig er vonast eftir því að bakgrunns-
tökur verði hér fyrir þriðju myndina í
Captain America-flokknum; Captain
America: Civil War. Stóra verkefnið sem
fólk í kvikmyndaheiminum bindur vonir
við að rati hingað er svo framhaldið af
King Kong. Sú mynd á reyndar að gerast
í Detroit á áttunda áratugnum svo ekki
er ljóst hversu mikið Ísland getur nýst við
tökurnar.
Stórmyndir á leiðinni?
70 dægurmál Helgin 27.-29. mars 2015