Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.03.2015, Blaðsíða 65

Fréttatíminn - 27.03.2015, Blaðsíða 65
PÁSKAHÁTÍÐ HALLGRÍMSKIRKJU 29. MARS – 6. APRÍL 2015 STREYMI - sýning Guðbjargar Ringsted í forkirkju Hallgrímskirkju 20. mars -18. maí Á sýningunni eru ný málverk eftir Guðbjörgu sem eru að hluta til byggð á jurta- og blómamynstrum faldbúningsins sem Sigurður Guðmundsson teiknaði á síðari hluta nítjándu aldar. Níels Hafstein segir m.a. um verkin: “Guðbjörg finnur blómum sínum nýstárlegan farveg, sem er magnaður upp af persónulegu innsæi og listfengi.... þau eru spegilmyndir umhverfisins, markviss innhverf tjáning. “ Ókeypis aðgangur. Opið alla daga á opnunartíma kirkjunnar. Pálmasunnudagur 29. mars – nýr prestur, prósessía, messa og barnastarf 10.45 Hallgrímstorg. Birkigreinum útdeilt. Fluttur verður Introitus fyrir Pálmasunnudag eftir Gunnar Andreas Kristinsson tónskáld fyrir kór og málmblásara og gengið í prósessíu til kirkjunnar. Allir innilega velkomnir og foreldrar hvattir til að taka börn sín með. 11.00 Messa í Hallgrímskirkju. Nýr prestur Hallgrímskirkju sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir sett inn í embætti af sr. Birgi Ásgeirssyni. Sr. Irma Sjöfn prédikar og þjónar fyrir altari ásamt dr. Sigurði Árna Þórðarsyni sóknarpresti. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja undir stjórn Harðar Áskelssonar. Einsöngvari Þórgunnur Örnólfsdóttir, organisti Björn Steinar Sólbergsson. Barnastarf á sama tíma og messan í umsjón Ingu Harðardóttur cand.theol. og verður páskaföndur með börnunum með Ingu, Helene Ingu, Rósu og Karítas. Veislukaffi eftir messu og allir velkomnir. 14.00 Ensk messa í Hallgrímskirkju. Prestur er sr. Bjarni Þór Bjarnason. Organisti Björn Steinar Sólbergsson. Kaffi og meðlæti eftir messu. Allir velkomnir. Skírdagur 2. apríl – Söngvahátíð barnanna, kvöldmessa, Getsemanestund og afskrýðing altaris 17.00 Söngvahátíð barnanna 130 barna kór ásamt djasshljómsveit, flytur fjölbreytta söngva frá ýmsum löndum ásamt nýjum íslenskum barnasálmum. Sérstakur gestur er Egill Ólafsson söngvari. Nýr sóknarprestur Hallgrímskirkju, dr. Sigurður Árni Þórðarson kynnir. Ókeypis aðgangur. Allir innilega velkomnir meðan húsrúm leyfir. Barnakórar: Barna- og unglingakór Hafnarfjarðarkirkju, stjórnendur Helga Loftsdóttir og Anna Magnúsdóttir Stúlknakór Langholtskirkju (Graduale futuri), stjórnandi Rósa Jóhannesdóttir Börn úr kórskóla Langholtskirkju, stjórnandi Bryndís Baldvinsdóttir Stúlknakór Seljakirkju, stjórnandi Rósalind Gísladóttir Barnakór Akraneskirkju stjórnandi Sveinn Arnar Sæmundsson Barnakór Bústaðakirkju, stjórnandi Svava Ingólfsdóttir Stúlknakór Reykjavíkur og Stúlknakór Reykjavíkur í Grafarvogskirkju, stjórnendur Margrét Pálmadóttir, Guðrún Árný Guðmundsdóttir og Hildigunnur Einarsdóttir Hljómsveit: Þórir Úlfarsson píanó, Pétur Valgarð Pétursson gítar, Matthías Stefánsson fiðla, Gunnar Hrafnsson bassi og Magnús Magnússon trommur. 20.00 Messa með altarisgöngu- síðustu kvöldmáltíðarinnar minnst. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar fyrir altari. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusöng. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Að messu lokinni fer fram stutt athöfn, Getsemanestund. Lesinn verður kafli píslarsögunnar um bæn Jesú í Getsemane og að því loknu verður altarið afskrýtt á meðan lesið er úr 22. Davíðssálmi. Íhugun niðurlægingar Krists. Pelíkanklæði Unnar Ólafsdóttur sett fram fyrir föstudaginn langa. Föstudagurinn langi 3. apríl - Passíusálmalestur, Passía eftir Hafliða Hallgrímsson og kvöldmessa 11.00 - 16.00 Passíusálmalestur -10 konur lesa. (Athugið breyttan tíma). Í tilefni af afmælisári kosningaréttar kvenna lesa eftirtaldar konur Passíusálma Hallgríms Péturssonar: Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Brynja Þorgeirsdóttir, Dagný Kristjánsdóttir, Guðrún Agnarsdóttir, Ilmur Kristjánsdóttir, Kristín Ástgeirsdóttir, Kristín Helga Gunnarsdóttir, Sigurbjörg Þrastardóttir, Vilborg Dagbjartsdóttir og Þorgerður E. Sigurðardóttir. Umsjónarmenn eru Þórunn Sigurðardóttir og Ævar Kjartansson. Orgelleikur milli lestra. Gestir eru hvattir til að taka með sér Passíusálma. Ókeypis aðgangur. 17.00 Hátíðartónleikar - Passía eftir Hafliða Hallgrímsson fyrir kór, tvo einsöngvara og 35 hljóðfæraleikara Flytjendur: Hanna Dóra Sturludóttir mezzosópran, Elmar Gilbertsson tenór, Mótettukór Hallgrímskirkju og Kammersveit Hallgrímskirkju. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. Hið stórbrotna tónverk sem samið var að beiðni Listvinafélags Hallgrímskirkju í tilefni af Kristnitökuárinu árið 2000 hefur hlotið afburða dóma. Flutningurinn er tileinkaður minningu Guðmundar Hallgrímssonar lyfjafræðings, bróður tónskáldsins. Aðgangseyrir: 4900 kr. Miðasala í Hallgrímskirkju og á midi.is. 20.00 Guðsþjónusta að kvöldi föstudagsins langa. (Athugið breyttan tíma). Prestar eru sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir, sem prédikar og dr. Sigurður Árni Þórðarson. Organisti er Eyþór Franzson Wechner. Schola cantorum syngur. Páskadagur 5. apríl „Kristur er upprisinn“ - árdegisguðsþjónusta, páskamessa og barnastarf 8.00 Páskaguðsþjónusta með helgileik úr Hólabók frá 1589. Mótettukór Hallgrímskirkju og einsöngvarar úr röðum kórfélaga syngja. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt dr. Sigurði Árna Þórðarsyni. Stjórnandi er Hörður Áskelsson, organisti Björn Steinar Sólbergsson. 11.00 Hátíðarmessa og barnastarf á Páskadag. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur hátíðlega páskatónlist undir stjórn Harðar Áskelssonar. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Barnastarf í umsjón Ingu Harðardóttur cand.theol. ásamt Sólveigu Önnu, Karítas og Rósu. Annar í páskum 6. apríl - Fermingarmessa 11.00 Hátíðarmessa og ferming. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur og Ingu Harðardóttur cand.theol. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Hörður Áskelsson. listvinafelag.is, hallgrimskirkja.is Hallgrímskirkja og turninn eru opin alla daga kl. 9-17, en opið er frá kl. 9-21 frá og með skírdegi og til annars í páskum. PASSÍA eftir Hafliða Hallgrímsson Föstudaginn langa, 3. apríl 2015 kl. 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.