Fréttatíminn - 27.03.2015, Side 65
PÁSKAHÁTÍÐ
HALLGRÍMSKIRKJU
29. MARS – 6. APRÍL 2015
STREYMI - sýning Guðbjargar Ringsted í
forkirkju Hallgrímskirkju 20. mars -18. maí
Á sýningunni eru ný málverk eftir Guðbjörgu
sem eru að hluta til byggð á jurta- og
blómamynstrum faldbúningsins sem
Sigurður Guðmundsson teiknaði á síðari
hluta nítjándu aldar.
Níels Hafstein segir m.a. um verkin:
“Guðbjörg finnur blómum sínum nýstárlegan
farveg, sem er magnaður upp af persónulegu
innsæi og listfengi.... þau eru spegilmyndir
umhverfisins, markviss innhverf tjáning. “
Ókeypis aðgangur. Opið alla daga á
opnunartíma kirkjunnar.
Pálmasunnudagur 29. mars
– nýr prestur, prósessía, messa og barnastarf
10.45 Hallgrímstorg. Birkigreinum útdeilt.
Fluttur verður Introitus fyrir Pálmasunnudag eftir Gunnar Andreas Kristinsson
tónskáld fyrir kór og málmblásara og gengið í prósessíu til kirkjunnar.
Allir innilega velkomnir og foreldrar hvattir til að taka börn sín með.
11.00 Messa í Hallgrímskirkju.
Nýr prestur Hallgrímskirkju sr. Irma Sjöfn
Óskarsdóttir sett inn í embætti af sr. Birgi
Ásgeirssyni. Sr. Irma Sjöfn prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt dr. Sigurði Árna Þórðarsyni sóknarpresti.
Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja undir
stjórn Harðar Áskelssonar. Einsöngvari Þórgunnur
Örnólfsdóttir, organisti Björn Steinar Sólbergsson.
Barnastarf á sama tíma og messan í umsjón Ingu Harðardóttur cand.theol. og
verður páskaföndur með börnunum með Ingu, Helene Ingu, Rósu og Karítas.
Veislukaffi eftir messu og allir velkomnir.
14.00 Ensk messa í Hallgrímskirkju.
Prestur er sr. Bjarni Þór Bjarnason. Organisti Björn Steinar Sólbergsson.
Kaffi og meðlæti eftir messu. Allir velkomnir.
Skírdagur 2. apríl
– Söngvahátíð barnanna, kvöldmessa, Getsemanestund og afskrýðing altaris
17.00 Söngvahátíð barnanna
130 barna kór ásamt
djasshljómsveit, flytur fjölbreytta
söngva frá ýmsum löndum ásamt
nýjum íslenskum barnasálmum.
Sérstakur gestur er Egill Ólafsson
söngvari. Nýr sóknarprestur
Hallgrímskirkju, dr. Sigurður Árni
Þórðarson kynnir.
Ókeypis aðgangur. Allir innilega
velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Barnakórar:
Barna- og unglingakór Hafnarfjarðarkirkju,
stjórnendur Helga Loftsdóttir og Anna Magnúsdóttir
Stúlknakór Langholtskirkju (Graduale futuri),
stjórnandi Rósa Jóhannesdóttir
Börn úr kórskóla Langholtskirkju, stjórnandi Bryndís Baldvinsdóttir
Stúlknakór Seljakirkju, stjórnandi Rósalind Gísladóttir
Barnakór Akraneskirkju stjórnandi Sveinn Arnar Sæmundsson
Barnakór Bústaðakirkju, stjórnandi Svava Ingólfsdóttir
Stúlknakór Reykjavíkur og Stúlknakór Reykjavíkur í Grafarvogskirkju,
stjórnendur Margrét Pálmadóttir, Guðrún Árný Guðmundsdóttir og
Hildigunnur Einarsdóttir
Hljómsveit: Þórir Úlfarsson píanó, Pétur Valgarð Pétursson gítar, Matthías
Stefánsson fiðla, Gunnar Hrafnsson bassi og Magnús Magnússon trommur.
20.00 Messa með altarisgöngu- síðustu kvöldmáltíðarinnar minnst.
Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og sr. Irma Sjöfn
Óskarsdóttir þjónar fyrir altari. Félagar úr Mótettukór
Hallgrímskirkju leiða messusöng. Organisti er Björn
Steinar Sólbergsson.
Að messu lokinni fer fram stutt athöfn,
Getsemanestund. Lesinn verður kafli píslarsögunnar
um bæn Jesú í Getsemane og að því loknu verður
altarið afskrýtt á meðan lesið er úr 22. Davíðssálmi.
Íhugun niðurlægingar Krists. Pelíkanklæði Unnar Ólafsdóttur sett fram fyrir
föstudaginn langa.
Föstudagurinn langi 3. apríl
- Passíusálmalestur, Passía eftir Hafliða Hallgrímsson og kvöldmessa
11.00 - 16.00 Passíusálmalestur -10 konur lesa. (Athugið breyttan tíma).
Í tilefni af afmælisári kosningaréttar kvenna lesa eftirtaldar konur
Passíusálma Hallgríms Péturssonar: Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
Brynja Þorgeirsdóttir, Dagný Kristjánsdóttir, Guðrún Agnarsdóttir, Ilmur
Kristjánsdóttir, Kristín Ástgeirsdóttir, Kristín Helga Gunnarsdóttir, Sigurbjörg
Þrastardóttir, Vilborg Dagbjartsdóttir og Þorgerður E. Sigurðardóttir.
Umsjónarmenn eru Þórunn Sigurðardóttir og Ævar Kjartansson.
Orgelleikur milli lestra. Gestir eru hvattir til að taka með sér Passíusálma.
Ókeypis aðgangur.
17.00 Hátíðartónleikar - Passía eftir Hafliða Hallgrímsson
fyrir kór, tvo einsöngvara og 35 hljóðfæraleikara
Flytjendur: Hanna Dóra Sturludóttir mezzosópran, Elmar Gilbertsson tenór,
Mótettukór Hallgrímskirkju og Kammersveit Hallgrímskirkju.
Stjórnandi er Hörður Áskelsson.
Hið stórbrotna tónverk sem samið var að
beiðni Listvinafélags Hallgrímskirkju í tilefni af
Kristnitökuárinu árið 2000 hefur hlotið afburða dóma.
Flutningurinn er tileinkaður minningu Guðmundar
Hallgrímssonar lyfjafræðings, bróður tónskáldsins.
Aðgangseyrir: 4900 kr.
Miðasala í Hallgrímskirkju og á midi.is.
20.00 Guðsþjónusta að kvöldi föstudagsins langa. (Athugið breyttan tíma).
Prestar eru sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir, sem prédikar og dr. Sigurður Árni
Þórðarson. Organisti er Eyþór Franzson
Wechner. Schola cantorum syngur.
Páskadagur 5. apríl „Kristur er
upprisinn“
- árdegisguðsþjónusta, páskamessa og
barnastarf
8.00 Páskaguðsþjónusta með helgileik úr
Hólabók frá 1589.
Mótettukór Hallgrímskirkju og einsöngvarar úr röðum kórfélaga syngja. Sr.
Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt dr. Sigurði Árna
Þórðarsyni.
Stjórnandi er Hörður Áskelsson, organisti Björn Steinar Sólbergsson.
11.00 Hátíðarmessa og barnastarf á Páskadag.
Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Irmu Sjöfn
Óskarsdóttur. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur hátíðlega páskatónlist undir
stjórn Harðar Áskelssonar. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Barnastarf
í umsjón Ingu Harðardóttur cand.theol. ásamt Sólveigu Önnu, Karítas og Rósu.
Annar í páskum 6. apríl
- Fermingarmessa
11.00 Hátíðarmessa og ferming.
Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Irmu
Sjöfn Óskarsdóttur og Ingu Harðardóttur cand.theol. Félagar úr Mótettukór
Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Hörður Áskelsson.
listvinafelag.is, hallgrimskirkja.is
Hallgrímskirkja og turninn eru opin alla daga kl. 9-17, en opið er frá kl. 9-21 frá og með skírdegi og til annars í páskum.
PASSÍA
eftir Hafliða Hallgrímsson
Föstudaginn langa, 3. apríl 2015 kl. 17