Fréttatíminn - 27.03.2015, Blaðsíða 4
Skrifstofu og verslunarrými
til leigu í Firði
Upplýsingar í síma 615 0009
eða
fjordur@fjordur.is
FJÖRÐUR - í miðbæ Hafnarfjarðar!
Sönnunar-
byrðin
er það
erfiðasta.
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Él V-til, en bjart na- og a-lands.
HitasVeifla dags og nætur.
HöfuðborgarsVæðið: Slydduél,
en él um kvöldið.
Hægari V-átt og smáÉl
nokkuð Víða.
HöfuðborgarsVæðið: él og hiti
rétt um froStmark yfir daginn.
bleytusnjór sa-til, en snjókoma
a- og n-lands.
HöfuðborgarsVæðið: ÚrkomulauSt,
en Skýjað. vægt froSt.
beðið eftir vori
Það er fátt sem bendir til vorlegrar
veðráttu næstu daga. langt er í loft af
mildum uppruna og heimskautasvalinn úr
norðri og vestri allsráðandi. Útsynningur
er heitið á þessu veðri. vísar í allhvassa
Sa-átt , en líka éljaveður sem henni fylgir
sunnan- og vestanlands og
víða renningur á fjallvegum
og blint í hryðjunum. verður
orðið hæglátt seint á
laugardag og víðast
frost. Á sunnudag er
spáð a- og na-átt með
snjókomu víða um land,
þurrt þó v-til.
5
0 2
3
5
5
3 5
4
7
1
0 -1
-2
2
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Metromaðurinn í fangelsi
jón garðar ögmundsson, sem rak
mcdonald’s á Íslandi og veitinga-
staðinn metro, var dæmdur í 12 mánaða
fangelsi fyrir meiriháttar brot gegn
skattalögum. níu mánuðir af tólf
eru skilorðsbundnir. héraðsdómur
reykjavíkur dæmdi jón garðar
sömuleiðis til að greiða 70
milljónir króna í ríkissjóð innan
fjögurra vikna.
Lét fjarlægja eggja-
stokkana
Ákvörðun bandarísku
leikkonunnar angelinu
jolie að láta fjarlægja
eggjastokka sína og
eggjaleiðara af ótta
við að fá krabba-
mein hefur vakið
mikla eftirtekt. jolie
kynnti þessa ákvörðun
sína í grein í new york
times. hún hafði áður látið fjarlægja
brjóst sín vegna þess hversu miklar
líkur voru á hún fengi brjóstakrabba.
304 ferðamenn á 100 íbúa
Árið 1949 komu 4 ferðamenn til
landsins fyrir hverja 100 íbúa
en samsvarandi hlutfall var
304 á móti hverjum 100 í
fyrra.
Flutti úr landi eftir
Vodafone-leka
einstaklingur hefur
krafið Vodafone um
90 milljónir króna í
skaðabætur vegna
upplýsinga sem
urðu opinberar
eftir að vefur
fyrirtækisins var
hakkaður í fyrra.
Viðkomandi flutti úr
landi eftir lekann.
vikan sem var
tom jones
væntanlegur
Stórsöngvarinn tom
jones heldur tón-
leika í laugardals-
höll 8. júní í sumar.
aldarfjórðungur
er síðan jones
tróð upp á hótel
Íslandi. miðasala
hefst þriðjudaginn
7. apríl.
a ð meðaltali fáum við um fimm til-kynningar árlega um kynferðislega áreitni á vinnustað en við tökum
þessi mál föstum tökum og eitt mál er einu
máli of mikið,“ segir Elías Magnússon, for-
stöðumaður kjaramálasviðs VR. Félags-
menn VR eru um þrjátíu þúsund talsins, það
er stærsta stéttarfélag landsins.
Sérstakt teymi er starfandi innan VR sem
tekur á eineltis- og samskiptamálum og
heyrir kynferðisleg áreitni þar undir. „Ef ein-
hver kvartar undan kynferðislegri áreitni fer
það mál í ákveðinn farveg. Sönnunarbyrðin
er það erfiðasta. Þá er þetta gjarnan orð
gegn orði, einhver greinir frá áreitni en það
er ekkert vitni sem styður þá frásögn ef hinn
aðilinn neitar sök,“ segir hann en tekur þó
fram að það hafi vissulega gerst að sá sem er
sakaður um kynferðislega áreitni játi.
Elías man ekki eftir einu einasta dæmi
þess að karlmaður hafi tilkynnt um kyn-
ferðislega áreitni, þetta séu konur og þá
sérstaklega yngri konur. „Þessi mál eru allt
frá því að vera ótilhlýðlegur talsmáti sem
jafnvel er notaður í gríni en fer fyrir brjóstið
á einhverjum, og yfir í óeðlilegar snertingar.
Þetta gerist jafnvel gagnvart mjög ungum
stelpum, undir 18 ára aldri. Þær teljast þá
ungmenni í skilningi laganna. Svo virðist
einnig vera að ungmenni sem eru að feta sín
fyrstu skref á vinnumarkaði séu óöruggari
með að setja skýr mörk varðandi samskipti
og við þurfum að kenna þeim það,“ segir
hann.
Langoftast er niðurstaða þess að tilkynnt
er um kynferðislega áreitni á vinnustað að
sá sem tilkynnir áreitnina hættir störfum
hjá viðkomandi fyrirtæki. „Það eru dæmi
um að mönnum sé vikið frá störfum þegar
upp koma svona mál en yfirleitt vilja þeir
sem kvarta ekki starfa lengur hjá fyrir-
tækinu hætta hvort sem tekst að sanna
áreitnina eða ekki. Þegar sekt er sönnuð
fær viðkomandi greiddan uppsagnarfrest þó
viðkomandi hætti störfum strax, en svo er
uppsagnarfrestur mislangur. Stundum tekst
okkur vel til í þessum málum fyrir okkar
félagsmenn en stundum ekki jafn vel,“ segir
hann.
erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
atvinna sérstakt teymi starFar hjá vr sem tekur á einelti og áreitni
Fimm tilkynningar árlega
um kynferðislega áreitni
Árlega berst stéttarfélaginu VR fimm tilkynningar um kynferðislega áreitni á vinnustað. For-
stöðumaður hjá stéttarfélaginu segir eitt mál einu máli of mikið og þau séu tekin föstum tökum á
vegum sérstaks teymis þótt sönnunarbyrðin geti verið erfið. Yfirleitt eru það ungar stúlkur sem
kvarta undan áreitni og algengast er að sá sem kvartar hætti störfum hjá fyrirtækinu.
algengast er að það séu ungar konur, jafnvel undir 18 ára aldri, sem kvarta undan kynferðislegri áreitni á vinnustað til vr.
4 fréttir helgin 27.-29. mars 2015