Fréttatíminn - 27.03.2015, Qupperneq 12
Ó
Ófremdarástand er á götum Reykjavíkur
og raunar víðar á höfuðborgarsvæðinu.
Sama á við um þjóðvegi víða. Djúp hjólför
hafa myndast og holur eru í slitlagi sem
eykur hættu á slysum og skemmir ökutæki.
Tilkynningar um óhöpp hrannast upp hjá
tryggingarfélögum. Félag íslenskra bif-
reiðaeigenda skoraði á nýliðnu landsþingi
á stjórnvöld að bregðast við með þjóðará-
taki gegn niðurbroti vega. Í
ályktun félagsins kom fram
að sparnaður og niðurskurð-
ur í viðhaldi og nýbyggingum
vega væri farinn að kosta
bíleigendur, fyrirtæki og
samfélagið í heild verulega
fjármuni. Ástandið yki mjög
á hættu á slysum, meiðslum
og manntjóni. „Um land allt
hefur verið sparað svo í við-
haldi gatna hjá ríki og sveitar-
félögum undanfarin ár að
stórsér á vegakerfinu. Ef fram heldur sem
horfir brotna þjóðvegir niður. Kostnaðurinn
við endurnýjun margfaldast ef viðhalds-
leysið leiðir af sér það alvarlegt niðurbrot á
yfirborðsslitlaginu að það brotnar niður og
rofnar þannig að niðurbrotið nær einnig að
skemma undirlagið,“ segir enn fremur.
Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur sam-
taka iðnaðarins, talar á svipuðum nótum þar
sem hann segir íbúa höfuðborgarsvæðisins
séu um þessar mundir óþægilega minntir á
einn helsta veikleika íslenska hagkerfisins
síðustu árin, að of lítið hafi verið um fjárfest-
ingar. Götur borgarinnar liggi því víða undir
skemmdum enda hefði gatnakerfið illa þol-
að ágang veðurs undanfarið. Ástæðan fyrir
ástandinu sé öðru fremur sú að fjárfestingar
hafi verið afar litlar, sérstaklega opinberar
fjárfestingar í margvíslegum innviðum.
Sem dæmi nefndi Bjarni að á föstu verðlagi
hefðu fjárfestingar í vegum og brúm dregist
saman um 65% á milli áranna 2008 og 2013
og í heild hefði opinber fjárfesting minnkað
um 47% á sama tíma. Afleiðing þessa birtist
nú skýrt á götum borgarinnar. Ástæðan er
auðvitað, segir Bjarni, bágborinn fjárhagur
opinberra aðila í kjölfar efnahagskreppunnar.
Þegar skera þurfti niður hjá hinu opinbera
var einkum skorið niður í framkvæmdum
og viðhaldi en minni áhersla var lögð á að
skera niður í margvíslegum rekstri. Þetta
þýðir það, að því er fram kemur hjá hagfræð-
ingnum, að hlutfall fjárfestinga sem hlutfall
af landsframleiðslu er orðið hættulega lítið.
Frá árinu 1990 hefur opinber fjárfesting að
jafnaði verið um 4%, að undanskildum þenslu-
árunum 2006-2008, en hefur hrunið síðustu
ár og er nú aðeins um 2,5%. „Það hlutfall,“
segir Bjarni, „er einfaldlega hættulega lágt
og veldur því að eignir okkar rýrna saman-
ber ástandið á götum borgarinnar.“ Miðað
við tölurnar má segja að árlega vanti 1,5% af
landsframleiðslu í opinberar framkvæmdir
til að sinna eðlilegri fjárfestingaþörf í inn-
viðum samfélagsins. Það jafngildir um 30
milljörðum króna og er þá ekki tekið tillit til
þeirrar uppsöfnuðu þarfar sem myndast hef-
ur síðustu ár. „Ef ekki fer úr að rætast munu
margvíslegir aðrir innviðir fara að taka á sig
sömu mynd og götur Reykjavíkur,“ segir
Bjarni Már Gylfason í varnaðarorðum sínum.
Það er vissulega jákvætt að í borgarráði
Reykjavíkur hafi verið samþykkt 250 millj-
óna króna aukafjárveiting til malbikunar í
borginni þannig að alls verði malbikað fyrir
690 milljónir króna – en miðað við útreikn-
inga hagfræðings Samtaka iðnaðarins vegur
það því miður ekki þungt. Sveitarfélögin og
ríkið standa frammi fyrir rýrnandi eignum
almennings, verði ekki við brugðist.
Skipting vegafjár, sem til nýframkvæmda
og viðhalds fer, er svo annar handleggur.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri vakti at-
hygli á því, vegna þeirrar miklu viðhalds-
þarfar sem við blasir eftir veturinn á höfuð-
borgarsvæðinu öllu, að ríkið fær allar tekjur
af bensín- og olíugjaldi en sveitarfélögin ekki
krónu. Ríkið kemur að sönnu að gerð og við-
haldi þjóðvega í þéttbýli, eins og annarra
þjóðvega, en sveitarfélög eru að öðru leyti
veghaldarar sveitarfélagsvega, eins og segir
í vegalögum og bera af þeim kostnað.
Eðlilegt er því að skoðun fari fram á rétt-
látri skiptingu vegafjár.
Ófremdarástand gatna- og vegakerfis
Sameiginlegar eignir rýrna
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LÓABORATORíUM LÓA hjáLMTýsdÓTTiR
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Höskuldur
Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@
frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
VÍKURHVARF 6 • 203 KÓPAVOGUR • SÍMI 557 7720 • WWW.VIKURVERK.IS
Hobby sameinar nútímalegt útlit ásamt miklu
notagildi. Niðurstaðan er falleg hjólhýsi
að innan sem utan þar sem þér og
fjölskyldu þinni líður vel.
Opið um helgar frá
klukkan 12 til 16
De Luxe 400 SFe 3.975.000
Prestige 560 UKF 4.995.000
Prestige 495 UL 4.595.000
Excellent 460 UFe 4.295.000
Prestige 720 UKFe 5.995.000
Excellent 560 CFe 4.995.000
12 viðhorf Helgin 27.-29. mars 2015
Leitið upplýsinga á auglýsingadeild
Fréttatímans í síma 531 3310 eða á
auglysingar@frettatiminn.is
Fréttatímanum
er dreift á heimili á
höfuðborgarsvæðinu
og Akureyri auk
lausadreifingar um land allt.
Dreifing með
Fréttatímanum á
bæklingum og fylgiblöðum
er hagkvæmur kostur.
Ert þú að huga
að dreifingu?