Fréttatíminn - 27.03.2015, Síða 38
38 ferðalög Helgin 27.-29. mars 2015
Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er
verndaður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn
í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan.
Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi
hvert sem litið er og setur borgina á stall
með fallegri borgum Evrópu.
Verð í tveggja manna herbergi
kr. 98.900,-
Innifalið: Flug, skattar, hótel með morgunmat,
íslensk fararstjórn og rúta til og frá flugvelli.
Trans Atlantic sérhæfir sig í ferðum til Eystrasaltslanda.
Upplýsingar í síma 588 8900
Úrval veitingahúsa, verslana (m.a. H&M)
og kafhúsa.
Næturlíf eins og það gerist best.
Riga
Lettlandi
Stórfengleg borg
Beint ug frá Keflavík og Akureyri
14.-17. maí
Fáðu meira
út úr Fríinu
gerðu verðsamanburð á hótelum og bílaleigubílum á túristi.is
B esta flugleiðin frá Íslandi til Kaliforníu er í gegnum Seattle eða Denver og þaðan er rúmlega tveggja tíma flug til Los Angeles.
Tímamismunurinn er 8 tímar á eftir íslenskum
tíma á veturna og 7 á sumrin. Það tekur því alltaf
nokkra daga að jafna sig og það þarf mun meira en
eina helgi til að njóta borgarinnar. Almenningssam-
göngur eru ekki upp á það besta í borginni, þótt
verið sé að vinna að því hörðum höndum um þessar
mundir að bæta úr því og vonir standa til að á næstu
árum batni þær til muna. Því er nauðsynlegt að
leigja sér bíl til að ferðast um og þá skapast mögu-
leiki á að keyra upp með ströndinni eftir þjóðvegi
númer eitt eða fara í vínsmökkun. Hér er lítið brot
af því sem hægt er að sjá og gera í borginni.
Ströndin
Strendurnar eru hvítar, hreinar og fallegar og sjór-
inn er heitastur seinni part sumars og langt fram á
haustið. Þekktustu strendurnar eru Santa Monica,
Venice og Malibu og eru þetta frábærir staðir til að
fara á brimbretti en það er hægt að leigja þau niður
við strönd og fá kennslu. Skemmtilegt er að keyra
upp með strandlengjunni og það eru miklar líkur á
að höfrungar séu að leika sér í sjónum, sérstaklega
á haustin. Það er líka gaman að leigja sér hjól og
hjóla meðfram Venice og Santa Monica.
Borg englanna
Los Angeles
í Kaliforníu
er önnur
fjölmennasta
borg Banda-
ríkjanna
og hún er
þekktust fyrir
Hollywood og
kvikmynda-
stjörnur.
Þetta er sólrík
og heit borg
sem stendur
við ströndina
og er umvafin
löngum og
fallegum
fjallgarði og
hefur upp á
heilmikið að
bjóða.
Venice og Santa Monica
Litríkt götulíf, vaxtarræktartröll, hjólabrettakúnstir,
hippar og tónlist einkenna strandlífið í Venice. Þar er
aldrei nein lognmolla og hefur staðurinn mikið að-
dráttarafl fyrir ferðamenn. En Venice er einnig þekkt
fyrir verslunargötuna Abbot Kinney og kanalana. Ab-
bot Kinney þykir ein svalasta verslunargatan í Banda-
ríkjunum og þar er mikið af flottum litlum verslunum
og kaffihúsum og góðum veitingastöðum. Kanalarnir
liggja neðan við Abbot Kinney en þeir eru vel geymt
leyndarmál sem ferðamenn vita margir hverjir ekki
af. Santa Monica er við hlið Venice og er þekktust fyr-
ir The Pier en það er skemmtigarður með rússíbana
og risastóru parísarhjóli á bryggjunni. Í Santa Monica
er jafnframt að finna einu verslunargötuna í borginni
sem er göngugata.
Downtown
Lengi vel var Downtown líflaus staður og það var helst
á vinnutíma sem fólk var þar á ferðinni, en þar standa
helstu háhýsi borgarinnar sem flest eru bankar og
fjármálastofnanir. Það er hinsvegar að breytast og
ýmislegt að gerjast á svæðinu og spennandi veitinga-
staðir að opna þar og flottar verslanir. Fyrir nokkrum
árum reis þar tónlistarhúsið Walt Disney Concert Hall
sem Frank Gehry arktitekt hannaði og er núna heim-
ili Fílharmóníusveitar L.A.
Hollywood og Disneyland
Helsti ferðamannastraumurinn liggur um Hollywood
Boulevard framhjá Chinese Theatre þar sem handa-
og fótaför frægra leikrara eru greipt í jörðina og nöfn
stjarnanna er að finna á gangstéttinni. Disneyland
hefur einnig mikið aðdráttarafl en þetta er fyrsti Dis-
neyland skemmtigarðurinn sem Disney opnaði.
Highland Park
Þetta er svalasta hverfið í L.A. um þessar mundir.
Hipsteranir flykkjast í hverfið og hefur húsnæðisverð
hækkað. En það þýðir líka að hellingur af flottum veit-
ingastöðum, verslunum og listagalleríum hafa opnað
þar. Annan hvern laugardag er svokallað „art-walk“
eftir York stræti þar sem fjöldi listamanna kemur
saman og selja verkin sín, setur upp danssýningar og
tónleika og ýmislegt fleira sem hleypir skemmtilegu
lífi í Highland Park.