Fréttatíminn - 27.03.2015, Page 66
TENERIFE flug f rá
19.999 kr.
BARCELONA flug f rá
19.999 kr.
RÓM flug f rá
18.999 kr.
MÍL ANÓ flug f rá
18.999 kr.
KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS
Gerðu verðsamanburð,
það borgar s ig!
ÚLLEN,
DÚLLEN
DOFF!
AMSTERDAM flug f rá
12.999 kr.
maí 2015
apr í l - maí 2015
maí - jú l í 2015
jún í - jú l í 2015
jún í 2015
Laufey Jónsdóttir fatahönnuður. Ljósmynd/Laura McLean
Myndlist laufey Jónsdóttir sýnir í norræna húsinu
Spurningum um
mannveruna velt upp
Hönnuðurinn Laufey Jónsdóttir tekur á móti gestum í Norræna húsinu í tengslum við sýninguna
PERSONA, í dag föstudag, en sýningunni lýkur á sunnudag. Á sýningunni kannar Laufey nýjar
slóðir og teflir saman miðlum í tilraunakenndum þrívíðum klippimyndaverkum sem sýna ólíkar
persónur á áhugaverðan hátt. Verkin eru byggð á persónulegum viðtölum Laufeyjar við við-
fangsefni sín um ævi og minningar.
l aufey Jónsdóttir sem er formaður Fatahönnunarfélags Íslands, opnaði á dögunum einkasýningu á til-
raunakenndum portrettverkum í Norræna
Húsinu, en sýningin stendur til 29. mars. Í
verkunum gefur að líta ólíka einstaklinga
út frá einstöku sjónarhorni í þrívíðum
klippiverkum unnum úr mörgum lögum
af ljósmyndum.
Laufey er útskrifaður fatahönnuður frá
Listaháskóla Íslands og starfaði m.a. sem
hönnuður hjá tísku- fyrirtækinu STEiN-
UNN og yfirhönnuður fatamerkisins Blik.
Hún hefur einnig gert myndskreytingar
fyrir bækur, tímarit og sýningar og opnaði
sína fyrstu einkasýningu á teikningum
2012.
Á undanförnum árum hefur Laufey
sinnt formennsku Fatahönnunarfélags
Íslands og í tengslum við það tekið að sér
hin ýmsu verkefni, meðal annars stjórnar-
setu í Hönnunarmiðstöð Íslands og Nor-
dic Fashion Association.
Verkin vinnur hún úr áferðum sem
sóttar eru í innri og ytri heim viðfangs-
efnisins í gegnum ljósmyndun og sker út í
mörgum lögum eftir teikningum. „Í gegn-
um viðtölin mála viðfangsefnin í raun sína
eigin mynd. Ég nýti þannig samtölin sem
innblástur að áferðunum í verkunum,“
segir Laufey um sýninguna.
„Mér fannst mikilvægt að hafa verkin
þrívídd og í mörgum lögum til að leggja
áherslu á margskiptingu persónuleik-
ans og einstakar minningar sem skapa
sjálfið.“
Sýningunni er ætlað að velta upp spurn-
ingum um mannveruna og ímyndir í víðu
samhengi með áleitnum hætti og afger-
andi stílfærslu. Hún skoðar sjálfið, mann-
legt eðli og minningar, hvernig sjálfið
beygir og brýtur upp veruleikann. Ein-
staklingarnir sem Laufey tekur fyrir sem
viðfangsefni í sýningu sinni eru ólíkir
innbyrðis og skapa áhugaverða heild en
á sýningunni verður leitast við að skapa
upplifun af því margþætta ferli að baki
verkunum. Meðal viðfangsefna Laufeyjar
á sýningunni eru leikstjóri, strætóbíl-
stjóri, tónlistarmaður, ráðuneytisstjóri og
sérfræðingur á sviði þróunarmála.
Móttakan verður milli 17 og 19 í dag,
föstudag í Norræna húsinu.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Sýningunni
er ætlað að
velta upp
spurningum
um mann-
veruna og
ímyndir í
víðu sam-
hengi með
áleitnum
hætti og
afgerandi
stílfærslu.
Þór Tulinius og Þorsteinn Bachmann undirbúa sig fyrir frumsýningu á
Endatafli eftir Samuel Beckett. Ljósmynd/Jónatan Grétarsson
leiklist Verk saMuels Beckett í tJarnarBíói
Safna fyrir Endataflinu
Leikhópurinn Svipir frumsýnir Endatafl
eftir írska Nóbelsverðlaunahafann Samuel
Beckett í Tjarnarbíói hinn 1. maí næstkom-
andi. Um er að ræða metnaðarfulla sýningu
með flottum leikhópi sem skipaður er þeim
Þorsteini Bachmann Edduverðlaunahafa, Þór
Tulinius, Hörpu Arnardóttur og Stefáni Jóns-
syni. Leikstjóri er Kristín Jóhannesdóttir.
Hópurinn hefur hrint af stað söfnun á Kar-
olina Fund til að fjármagna uppsetninguna.
Markmiðið er að safna sex hundruð þúsund
krónum og hefur ríflega hálf sú upphæð safn-
ast þegar vika er til stefnu.
Nánari upplýsingar um sýninguna má fá á
Facebooksíðu Endatafls og á Karolina Fund.
66 menning Helgin 27.-29. mars 2015