Fréttatíminn - 27.03.2015, Page 68
Þetta er búið
að vera erfið
fæðing en
platan mun
koma út á
þessu ári,
þótt það
verði okkar
síðasta verk.
Í takt við tÍmann Íris tanja Flygenring
Syng svo hátt í bílnum að fólk horfir á mig á ljósum
Íris Tanja Flygenring er 25 ára leiklistarnemi í Listaháskóla Íslands. Hún vinnur líka við að talsetja teiknimyndir og hefur ljáð
rödd sína í Barbie-myndir, Monster High og Póstinn Pál svo fátt eitt sé nefnt. Íris Tanja stundar jóga og á það til að detta inn
í samtöl ókunnugs fólks á kaffihúsum.
Staðalbúnaður
Ég er mjög hrifin af skandinavískri hönnun og fata-
smekkurinn mótast af því. Ætli stíllinn minn sé ekki
einhvers konar blanda af „minimal chic“ og töffara.
Ég leita mér innblásturs hjá fólki eins og Maju Wyh
og Olsen-tvíburunum og stel líka rosalega mikið af
fötum frá kærastanum mínum. Ég væri líka að ljúga
ef ég segðist ekki leita innblásturs á Pinterest. Fötin
versla ég úti um allt; í Kolaportinu, á fatamörkuðum
og búðum eins og Zöru, Vila, Monki og & Other
Stories. Ég er sjúk í yfirhafnir og kósí peysur. Oft
þegar kaupi mér föt enda á ég til að koma heim með
alveg eins yfirhöfn og ég átti fyrir. Ég er búin að
gefast upp á hælum en geng mikið í lágbotnaskóm
eins og Dr. Martens eða íþróttaskóm eins og New
Balance og Nike. Þegar maður er alltaf að hlaupa á
eftir fjögurra ára strák er það mjög þægilegt.
Hugbúnaður
Ég get setið tímunum saman að fylgjast með fólki
og dett oft inn í samtöl fólks á kaffihúsum. Það getur
skapað vandræðaleg móment þegar ég hlæ óvart
upphátt með fólkinu á næsta borði. Vinir mínir eru
alltaf að segja mér að hætta að stara en mér finnst
fólk bara áhugavert, kannski er þetta partur af leik-
listinni. Ég drekk ekki áfengi og fer þess vegna
ekki oft út að skemmta mér. Mér finnst samt rosa
gaman að dansa og fer því stundum út með bekkn-
um mínum. Það er mjög gaman að dansa í góðra
vina hópi en stundum upplifi ég mig sem risaeðlu á
þessum skemmtistöðum. Það leiðinlegasta sem ég
geri er að hlaupa en ég fer svolítið í sund. Svo stunda
ég jóga í Yoga shala. Ég horfi á sjónvarpsþætti og er
aðeins farin að horfa meira á kvikmyndir. Yfirleitt
hef ég ekki nógu mikið þol í heila mynd en eftir að
ég fór í kvikmyndakúrs hjá Ragga Braga er ég farin
að finna myndir sem ég get horft á.
Vélbúnaður
Ég fer aldrei út úr húsi án símans og týni honum
örugglega svona sex sinnum á dag, í vösunum
á öllum þessum fötum sem ég klæðist. Ég fer
mikið á Pinterest, Facebook og Instagram og
get gleymt mér klukktímum saman á hönn-
unar- og lífsstílsbloggum.
Aukabúnaður
Þegar mikið er að gera í skólanum er ég
ekki eins dugleg við að elda og ég vildi. Ég
þarf líka að vera duglegri við að prófa nýja
rétti, ég á það til að festast bara í því sem
ég kann. Ég elska hins vegar að baka
kökur og skreyta þær. Ég fékk einmitt
Kitchen Aid hrærivél í jólagjöf og hún
hefur að mestu verið í notkun síðan.
Ég er dugleg við að breyta heima hjá
mér, að færa til hluti og raða upp á
nýtt, og elska að leita mér innblásturs
í blöðum. Ég les líka mikið af bókum
en það er dýrt sport í dag svo ég sæki
mér bækur á iPadinn. Þegar ég keyri
um borgina syng ég rosa hátt í bílnum
svo fólk horfir á mig á ljósum. Í morgun
var ég líka að gera raddæfingar á leiðinni
upp í hljóðver, að purra munninn og teygja
andlitið. Það getur eflaust verið fyndin sjón.
Ljósmynd/Hari
Þungarokksveitin Brain Police hefur um árabil
verið ein þeirra sveita sem leitt hafa hina ís-
lensku þungarokksenu af miklum móð. Þrátt
fyrir að það séu 9 ár síðan platan Beyond The
Wasteland kom út hefur sveitin spilað reglulega
að undanförnu og er um þessar mundir að vinna
að nýrri plötu.
„Við erum að vinna og semja,“ segir Jón Björn
Ríharðsson trommari Brain Police. „Þetta er
búið að vera erfið fæðing en platan mun koma
út á þessu ári, þótt það verði okkar síðasta verk.
Við tókum pásu í tvö ár frá 2009 því við fengum
nóg af hver öðrum, en það var tilboð um að fara
á túr um Þýskaland sem kveikti áhugann að
nýju, sem við fórum í 2012,“ segir Jón Björn.
„Síðan þá höfum við komið fram reglulega.“
Brain Police heldur tónleika í kvöld, föstu-
dagskvöld, á skemmtistaðnum Dillon. „Við
ætlum svo bara að spila sem minnst þangað
til platan kemur út,“ segir Jón. „Við tökum
Eistnaflug og það er eiginlega það eina. Þessi
plata skal koma út fyrir jólin,“ segir Jón Björn
trommuleikari Dillon. Tónleikarnir í kvöld hefj-
ast klukkan 22.30. -hf
tónleikar Brain Police á Dillon
Munum klára þessa
plötu fyrir rest
lÍs en ku
ALPARNIR
s
Faxafeni 8 // 108 Reykjavík
Sími 534 2727 // www.alparnir.is
www.alparnir.is
Góð gæði
Betra verð
✓
✓
25 - 50% afsl. af skíðavörum til páska.
Skíðahjálmar og
bakhlífar 30 - 50% afsl.
Gönguskíðabúnaður 30% afsl.
Svigskíðabúnaður
30 - 40% afsl.
Fjallaskíðabúnaður 25% afsl.
PÁSKASPRENGJA
68 dægurmál Helgin 27.-29. mars 2015