Fréttatíminn - 27.03.2015, Blaðsíða 74
brúðkaup Helgin 27.-29. mars 20152
Við viljum gefa 2015
brúðum tækifæri á að
fá brúðarkjólinn sinn
endurgreiddan!
Nánari upplýsingar um
þátttöku má nna efst
á facebook síðu okkar.
Í byrjun maí verður ein heppin
dregin út af þeim sem taka
þátt. Hvetjum stelpur til þess
að koma tímanlega í mátun.
Tímabókanir eru í síma
557-6020 eða með því að
senda mail á
katrin@brudhjon.is.
30 ára afmælisleikur
Mjóddin • S. 557-6020 • katrin@brudhjon.is.
Allt sem
þarf að
muna
Það er í ótal horn að líta þeg-
ar brúðkaup er skipulagt og
mikilvægt að huga að hverju
smáatriði. Hér er ítarlegur
gátlisti fyrir brúðhjónin.
Fyrstu skrefin
Búa til safnmöppu
Útbúið möppu þar sem þið
haldið utan um myndir og
hugmyndir sem veita ykkur
innblástur. Þetta er hægt að
gera gera rafrænt eða notast
við úrklippubók. Á netinu er til-
valið að nota Pinterest, en þar
er hægt að búa til möppu sem
enginn sér nema notandinn.
Gera kostnaðaráætlun
Ágætt er að gera sér grein fyrir
í upphafi hversu mikill peningur
er til umráða og gera allar
áætlanir út frá því.
Velja dagsetningu
Í upphafi getur verið gott
að velja tvær dagsetningar
sem koma til greina því það
er margt sem þarf að bóka
og þá þarf stundum að færa
dagsetninguna til svo að allt
gangi upp.
Boðskort:
Gestalisti
Útbúa þarf gestalistann
sem allra fyrst og gera
þeim gestum viðvart
tímanlega sem þurfa að
ferðast langa leið.
Boðskort
Veljið og prentið boðs-
kort með nokkurra mán-
aða fyrirvara og sendið
af stað ekki seinna en
tveimur mánuðum fyrir
brúðkaupsdaginn.
Gjafir:
Útbúa óskalista
Flestar verslanir
halda utan um
óskalista fyrir
brúðhjónin.
Gjafaborð
Taka frá borð í
veislunni undir
gjafir.
Blóm og skreytingar:
Brúðarvöndur
Hann þarf að velja og panta með 2 til
4 mánaða fyrirvara.
Blóm
Hægt er að panta blóm í blómaversl-
unum eða beint frá bónda.
Skreytingar
Velja þarf dúka, kerti, ljós, blóm og
annað sem nota á til skreytingar á
veisluborðið og í kirkjuna.
Minningar:
Ljósmyndari/tökumaður
Bóka þarf ljósmyndara og jafnvel tökumann
vilji brúðhjónin eiga upptöku af brúðkaupinu.
Gestabók
Gömul og góð íslensk hefð er að hafa
gestabók fyrir gesti að skrifa í.
Athöfnin:
Finna staðsetningu
Athöfnin getur farið fram í kirkju,
hjá sýslumanni, í heimahúsi eða
undir berum himni. Mikilvægt
er þó að bóka staðinn sem fyrst
og fá tilskilin leyfi ef athöfnin fer
fram undir berum himni, t.d. í
skrúðgarði eða í þjóðgarði.
Bóka prest/sýslumann
Bókið prest/sýslumann/alsherja-
goða með góðum fyrirvara. Ágætt
er að ræða um staðsetningu við
þann sem mun gefa ykkur saman.
Velja tónlist
Velja þarf tónlist fyrir athöfnina
og bóka tónlistarmenn.
Brúðhjónin:
Hringir
Veljið og kaupið giftingarhringi.
Hafið í huga að það getur tekið
nokkra daga að sníða þá í rétta
stærð.
Brúðarkjóll
Kjólinn er hægt að sérsauma,
leigja eða kaupa. Ágætt er að
byrja sem fyrst að leita að rétta
kjólnum.
Jakkaföt á brúðgumann
Fallegt er að brúðarkjólinn og
föt brúðgumans séu í sömu
litapallettu.
Klipping og greiðsla
Bóka þarf klippingu fyrir brúð-
gumann og tíma í greiðslu fyrir
brúðina. Brúðurin þarf jafnframt
að bóka tíma í prufugreiðslu.
Förðun
Bóka þarf tíma í förðun, hand-
snyrtingu og annað í þeim dúr.
Skór og fylgihlutir
Velja og kaupa skó og fylgihluti
fyrir brúðguma og brúði, t.d.
skartgripi, bindi, ermahnappa
o.fl.
Nærföt
Mikilvægt er að velja réttu nær-
fötin undir brúðarkjólinn svo
hann fari brúðinni sem best.
Veislan:
Veislusalur
Gefið ykkur tíma til að kíkja á
nokkra sali áður en þið bókið. Ef
veislan er úti undir berum himni
þarf líklega að panta veislutjald og
allt tilheyrandi.
Veislustjóri
Góður veislustjóri sér um að
skipulag veislunnar gangi vel og
skipuleggur skemmtiatriði og
ræðuhöld.
Tónlist og skemmtiatriði
Hægt er að bóka tónlistarmenn eða
hljómsveitir til að halda uppi fjörinu
í veislunni, eða fá plötusnúð. Gott
er að byrja sem allra fyrst að setja
saman lagalista fyrir veisluna.
Matur
Ágætt er að fara í veisluþjónustur
og fá að smakka matinn áður en
hann er pantaður. Ef maturinn
er heimatilbúinn þarf að ákveða
matseðilinn sem fyrst og gefa
einhverjum það hlutverk að hafa
yfirumsjón með matnum.
Drykkir
Ef boðið er upp á áfengi þarf að
muna að bjóða upp á góða drykki
handa þeim sem neyta ekki áfengis.
Brúðarterta
Velja þarf tertu og panta hjá bakara
með a.m.k. tveggja mánaða fyrir-
vara.
Skipulagður og skemmtilegur veislustjóri
M ikilvægt er að hafa það í huga að þegar veislu-stjórinn er valinn að hans
stærsta hlutverk er að sjá til þess
að allt gangi snurðulaust fyrir sig.
Margir falla í þá gryfju að velja
veislustjóra bara af því að hann
er fyndinn og skemmtilegur en
það er ekki hans hlutverk, þó það
skemmi auðvitað aldrei fyrir að hafa
skemmtilegan veislustjóra. Margir
velja veislustjóra sem er vinur eða
í fjölskyldunni, ef sá sem er valinn
hefur litla eða enga reynslu er ágæt-
is hugmynd að velja tvo svo þeir geti
skipt með sér verkum.
Veislustjóri býður gesti velkomna
og heldur þá jafnvel litla tölu, því
næst kynnir hann dagskrána og sér
til þess að góðu tempói sé haldið í
veislunni. Hann skipuleggur ræðu-
höldin og skemmtiatriðin og þurfa
þeir sem hafa hug á að stíga á svið
að láta hann vita við upphaf veisl-
unnar. Hann raðar þá öllu þannig
að það sé gott flæði á ræðuhöld-
um, borðhaldi og skemmtiatriðum
og sér til þess að það sé tími fyrir
veislugesti að sitja saman og spjalla.
Það er ágætt fyrir veislustjóra
að undirbúa sig með því að kíkja
á staðinn þar sem veislan er haldin
og sjá til þess að þar séu allar þær
græjur sem þarf að notast við, til
dæmis tengingar fyrir tölvur fyr-
ir myndasýningar, gott hljóðkerfi
og annað í þeim dúr. Upplýsingar
sem hann þar að hafa er matseð-
illinn, hversu margir eru að koma
og nöfn brúðhjónanna og jafnvel
þeirra nánustu.
Ef brúðkaupið er óvenju rólegt og
nauðsynlegt að rífa upp stemmn-
inguna er gott fyrir veislustjóra að
hafa nokkra brandara eða skemmti-
sögur á takteinunum. Hann getur
grafið upp gamlar myndir af brúð-
hjónunum, jafnvel fermingarmynd-
ir þeirra og allra þeirra nánustu.
Það er eitthvað sem mun vekja tals-
verða lukku. Hann getur líka verið
reiðubúinn með nokkra partíleiki
sem brjóta ísinn ef á þarf að halda.
Veislustjóri þarf að sjá til þess að veislan gangi snurðulaust og skipuleggja ræðu-
höld og skemmtiatriði.