Fréttatíminn - 27.03.2015, Blaðsíða 81
brúðkaupHelgin 27.-29. mars 2015 9
Frábær vín í brúðkaupsgleðina
Þegar kemur að því að velja vín fyrir brúðkaupsveisluna þarf að taka bæði tillit til verðs og gæða. Það er gott að velja vínin
með það í huga að þau falli sem flestum í geð, séu mild og góð til að skála í en henti líka vel með alls konar mat. Hér eru
gæðavín sem óhætt er að mæla með en öll eiga þau það sameiginlegt að hver flaska kostar undir tvö þúsund krónum.
Barone Montalto
Montalto vínin koma frá Sikiley og eru mest seldu lífrænt ræktuðu
vínin hér á landi. Barone Montalto-fyrirtækið er ungt fyrirtæki
sem stofnað var árið 2000 og hefur á þessum stuttu tíma náð að
skapa sér sess sem virtur léttvínsframleiðandi. Montalto-vínin eru
nú fáanleg um allan heim.
Montalto Organic Nero d‘Avola rauðvín.
Nero d‘Avola er ein mikilvægasta þrúga
á Sikiley sem notuð er í framleiðslu á
rauðvínum og kemur upprunalega frá
litlum bæ á suður Sikiley sem heitir Avola.
Rúbínrautt vín með léttri fyllingu, þurrt
með ferskri sýru og litlu tannín, vín með
angan af kirsuberjum og hindberjum.
Vín sem passar með fugla- og svínakjöti,
pastaréttum og smáréttum.
Montalto Organic Cataratto hvítvín.
Cataratto er þrúga sem nær eingöngu
er ræktuð á Sikiley. Vínið er ljóssítrónu-
gult, með meðalfyllingu, þurrt með milda
sýru og angan af ljósum ávexti, sítrus- og
kryddtónum.
Montalto Organic Cataratto hvítvín.
Verð í Vínbúðunum: 1.799 kr.
Montalto Organic Nero d‘Avola rauðvín.
Verð í Vínbúðunum: 1.699 kr.
Mamma Piccini
Þetta eru ein mest seldu léttvín hér á landi. Piccini er einn stærsti
vínframleiðandi Toskana héraðsins á Ítalíu. Piccini er fjölskyldu-
fyrirtæki sem framleitt hefur vín frá árinu 1882 og nú fjórða kyn-
slóð fjölskyldunnar við stjórnvölinn.
Mamma Piccini Rosso rauðvínið
er kirsuberjarautt, vín með meðalfyllingu,
þurrt en frísklegt, vín með anga af skógar-
berjum, lyngi og vanillu. Vín sem passar
með fuglakjöti, svínakjöti, pastaréttum
sem og smáréttum.
Mamma Piccini Bianco hvítvín
er sítrónugult, þurrt en ferskt, með angan
af ávöxtum og sítrus. Vín sem smellpassar
sem fordrykkur, með fiskréttum, ostum og
grænmetisréttum
Mamma piccini Bianco hvítvín
Verð í Vínbúðunum: 1.550 kr.
Mamma piccini Bianco rauðvín
Verð í Vínbúðunum: 1.590 kr.
Piccini Memoro
Þessi vín koma frá Ítalíu eru ein mest seldu vínin hér á landi.
Það sem gerir þessi vín sérstök er að í þeim eru notaðar fjórar
mismunandi þrúgur frá fjórum hornum Ítalíu. Þrúgurnar koma frá
Puglia, Abruzzo, Sikiley og Veneto.
Piccini Memoro rauðvínið
er dökkrúbínrautt, þétt vín með góðri
fyllingu. Það er þurrt, með ferskri sýru,
þroskuðu tanníni, sælgætiskenndum
berjabláma með snertingu af vanillu
og eik. Vín sem passar með nautakjöti,
lambakjöti og svínakjöti sem og ostum,
pottréttum og grillmat.
Piccini Memoro hvítvínið
er sítrónugult með meðalfyllingu, þurrt
með angan af peru, hunangi og eik. Vín
sem passar með fiskréttum, fuglakjöti,
grænmetisréttum sem og smáréttum.
Piccini Memoro hvítvínið
Verð í Vínbúðunum: 1.980 kr.
Piccini Memoro rauðvínið
Verð í Vínbúðunum: 1.970 kr.
Masi Modello
Þessi vín koma frá Verona á Norður-Ítalíu. Masi er einn virtasti
vínframleiðandi Ítalíu og brautryðjandi í mörgum vínaðferðum á
Ítalíu. Hann er hvað þekktastur fyrir Amarone vínin sín sem eru
með betri vínum Ítalíu. Modello vínin eru ung vín gerð úr þrúgum
frá Veneto svæðinu.
Masi Modello rauðvínið
er kirsuberjarautt, vín með meðal-
fyllingu, ósætt, með mildu tanníni,
með keim af lyngtónum, kryddi og
vanillu. Vín sem passar með fugla-
kjöti, grillmat, pastaréttum sem og
smáréttum.
Masi Modello hvítvínið
er fölgrænt, með létta fyllingu,
þurrt vín með milda sýru, vín með
keim af epli og melónu.
Báðar tegundir kosta 1.870 kr.
í Vínbúðunum.