Fréttatíminn - 01.05.2015, Side 20
Álitsgjafar fréttatímans
svona spÁ spekingar fréttatímans
að lokastaðan í pepsi-deild karla
verði í haust.
p epsi-deild karla hefst á sunnudaginn og þar með lýkur lengsta undirbúningstímabili í Evrópu og jafnvel heiminum öllum. Liðin
í Pepsi-deildinni hafa notað veturinn til undir-
búnings og hafa undirbúningsmótin verið mjög
skemmtileg og gefið góða hugmynd um það hvern-
ig liðin munu líta út á vormánuðum. Leikmanna-
markaðurinn hefur verið fjörugur og hafa FH-ing-
ar verið hvað duglegastir á þeim vígstöðvunum.
Því kemur ekki á óvart að flestir spái þeim sigri á
Íslandsmótinu. Hér er spá álitsgjafa Fréttatímans
og er greinilegt að það verður spenna bæði á toppi
og á botni deildarinnar.
Alfreð Finnbogason, leikmaður Real Sociedad, Auðunn Blöndal skemmtikraftur, Birna Ósk Hansdóttir, framleiðslustjóri á RÚV, Borghildur Sigurðardóttir, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks, Dagný Brynj-
arsdóttir knattspyrnukona, Edda Sif Pálsdóttir fjölmiðlakona, Elvar Geir Magnússon, ritstjóri Fótbolti.net, Fanndís Friðriksdóttir knattspyrnukona, Felix Bergsson fjölmiðlamaður, Friðrik Dór Jónsson söngvari,
Hallgrímur Ólafsson leikari, Hannes Þór Halldórsson knattspyrnumaður, Haraldur Freyr Gíslason pollapönkari, Haukur Harðarson íþróttafréttamaður, Henný María Frímannsdóttir, upplýsingafulltrúi Iceland
Airwaves, Henry Birgir Gunnarsson blaðamaður, Hildur Einarsdóttir markaðsstjóri, Hjörtur Hjartarson íþróttafréttamaður, Kjartan Guðmundsson útvarpsmaður, Kristjana Arnarsdóttir, nemi og blaðamaður, Logi
Bergmann Eiðsson fjölmiðlamaður, Mist Edvardsdóttir knattspyrnukona, Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari hjá HK, Pétur Már Ólafsson útgefandi, Siggi Hlö auglýsingafrömuður, Sigurvin Ólafsson lögfræðingur,
Snorri Már Skúlason fjölmiðlafulltrúi, Sverrir Ingi Ingason, leikmaður Lokeren í Belgíu, Tanja Tómasdóttir, lögfræðingur í Leikmannasamtökum Íslands, Þorgrímur Þráinsson rithöfundur, Þórður Helgi Þórðarson
dagskrárgerðarmaður og Örn Úlfar Sævarsson hugmyndasmiður.
12 stig voru gefin fyrir efsta sætið en
eitt stig fyrir botnsætið.
Þ etta verður gríðarleg flott sumar og mér líst vel á þetta,“ segir Guðmundur.
„Margt spennandi í kortunum. Það
eru þó fjögur lið sem eru áberandi
sterkust, að mér finnst, sem hafa
meira fjármagn en fyrir nokkr-
um árum, sérstaklega FH, KR og
Stjarnan,“ segir Guðmundur. „Það
er samt ekki hægt að kvarta yfir
því, þau hafa unnið fyrir þessu. Það
hafa fleiri lið haft möguleika á því að
vera í þessum sporum. Stutt síðan
Valur hefði getað tekið skrefið sem
og Skagamenn sem voru í kjörstöðu
fyrir nokkrum árum, en klúðruðu
því sjálfir. Þessi lið, ásamt Breiða-
bliki, eru vel skipulögð félög sem
hafa veðjað á rétta hesta.“
Baráttan um titilinn
Aðspurður um þau lið sem munu
berjast um titilinn er Guðmundur
á því að FH sé sigurstranglegast.
„FH er klárlega að ná í titil, miðað
við mannskap,“ segir Guðmundur.
„Kannski er FH að spenna bogann
of hátt, það hefur gerst áður hjá ís-
lenskum félögum. KR er líka með
hörkumannskap og komið með leik-
menn sem þekkja þessa deild, sem
og Stjarnan. Blikarnir eru með mjög
skemmtilegt lið og ég er hrifinn af
Arnari Grétarssyni þjálfara þeirra.
Hann er búinn að læra mikið í gegn-
um tíðina og það er mikil virðing
borin fyrir honum í Kópavoginum
og Blika langar að vera með í topp-
baráttu,“ segir Guðmundur. „Liðin
sem koma þarna á eftir eru Víking-
arnir, en það er pressa á þeim eftir
síðasta sumar. Þurfa núna að tækla
Evrópukeppni og verður fróðlegt að
sjá. Svo eru það Valur, Keflavík og
Fylkir sem eru öll svolítil spurning-
armerki. Það er aldrei að vita hvað
þau gera.“
Fallbaráttan
Þegar Guðmundur er spurður út í
fallbaráttuna er hann smeykur um
Vestmanneyinga. „Það er erfiðast
að lesa í ÍBV,“ segir hann. „Það
er óreyndur þjálfari hér á landi og
nokkrir leikmenn sem maður veit
ekki hvar standa. Jonathan Glenn
þarf að raða inn mörkum til þess
að halda þeim uppi,“ segir Guð-
mundur. „Skagamenn eru líka að
bjóða hættunni svolítið heim. Þeir
eru nánast með sama mannskap og
féll úr deildinni fyrir tveimur árum
og eru brothættir. Þeir eru búnir að
vera ágætir í vetur en hafa verið það
áður. Fjölnir og Leiknir eru svo líka
spurningarmerki. Ég er þó á því að
það sé einhver stemning í Breið-
holtinu og þar vinna allir saman að
því að láta þetta ganga upp, svo það
verður spennandi að fylgjast með
þeim,“ segir Guðmundur.
Evrópukeppni
Gengi íslenskra liða í Evrópu-
keppni undanfarin ár hefur
orðið til þess að önnur lið
eru farin að horfa til Evrópu.
„Menn eru farnir að sjá að
þetta er hægt,“ segir Guð-
mundur. „Sumarið er bara
mikið skemmtilegra ef maður
er í Evrópu. Það er líka auð-
veldara að sannfæra leik-
menn um að koma
ef liðið er að taka
þátt í Evrópu-
keppni, það er
bara allt ann-
að sumar.“
Marka-
kóngur
Guðmund-
ur þekkir
það að skora og hefur því sterka
skoðun á því hver verður marka-
kóngur. „Hann verður breskur,“
segir Guðmundur og hlær. „Ég
hallast mjög að Steven Lennon í
FH. Hann kom sterkur inn í fyrra
og kann þetta. Gary Martin í KR er
líka líklegur, enda finnst ekki mar-
kagráðugri maður. Skagamaðurinn
Arsenij Buinickij er svo leikmaður
sem fólk ætti að skoða. Ég held að
hann verði verðmætur fyrir Skaga-
menn. Það er oft þannig hjá liðum
sem eru að berjast fyrir sæti sínu
að þar er maður sem skorar bróð-
urpart marka liðsins,“ segir Guð-
mundur.
„Hvað varðar nýjar stjörnur þá
horfi ég á leikmenn eins og Arnar
Má Guðjónsson hjá Keflavík, sem
er leikmaður sem hefur vaxið gríð-
arlega undanfarin ár, sem og Hall-
grímur Már sem kom til Víkinga
frá KA. Ég held að þeir minni vel
á sig í sumar. Svo eru alltaf spenn-
andi leikmenn í Breiðabliki, eins og
undanfarin ár,“ segir Guðmundur
sem styður sína menn í Keflavík
í allt sumar. „Auðvitað vil ég sjá
Keflavík á toppnum, en hoppa
hæð mína ef þeir komast í
Evrópusæti. Það er eitt-
hvað sem vantar aftur í
Keflavík. Bikarkeppnin
gæti verið góð leið til
þess að komast þangað
í ár,“ segir Guðmundur
Steinarsson.
Fjögur lið áberandi sterkust
Sérfræðingur Fréttatímans
er Guðmundur Steinarsson,
markahrókur og fyrrverandi
leikmaður Keflavíkur.
Guðmundur
Steinarsson.
Mynd/Víkur-
fréttir
FH með
langbesta
liðið í Pepsi-
deildinni
1.
4.
7.
10.
2.-3.
5.
8.
11.
2.-3.
6.
9.
12.
368 stig
309 stig
189 stig
102 stig
319 stig
245 stig
157 stig
96 stig
319 stig
203 stig
106 stig
78 stig
FH og KR munu heyja blóðuga baráttu um Íslands-
meistaratitilinn í knattspyrnu í sumar. Auk
þeirra munu Stjörnumenn og Blikar blanda
sér í baráttuna, samkvæmt niðurstöðu álits-
gjafa Fréttatímans. Ljósmynd/Eyjólfur Garðarsson
20 fótbolti Helgin 1.-3. maí 2015
niðurhal
einfalt
ótakmarkað
6.990
ljósleiðari ljósnet
vortex.is 525 2400