Fréttatíminn - 01.05.2015, Blaðsíða 28
17. júní í Reykjavík 2015
Dagskráratriði óskast
Auglýst er eftir skemmti- og sýningaratriðum fyrir þjóðhátíðarskemmtun í
Reykjavík. Í dagskránni er gert ráð fyrir barna- og fjölskylduskemmtunum á
sviðum, tónleikum, leiktækjum og ýmsum sýningum og götuuppákomum.
Í tilefni af afmæli kosningaréttar kvenna eru konur sérstaklega hvattar til að
sækja um.
Hægt er að sækja um flutning atriða, uppákomur og viðburði á vefnum
17juni.is en umsóknum má einnig skila í Hitt Húsið, Pósthússtræti 3-5,
101 Reykjavík á eyðublöðum sem þar fást.
Umsóknarfrestur rennur út föstudaginn 8. maí
Upplýsingar í síma 411 5502 eða á 17juni@reykjavik.is
B jarni Harðarson og Elín Gunnlaugsdóttir eru bæði fædd og uppalin í Laugarási í Biskups-
tungum en bjuggu í Reykjavík,
á Eyrarbakka og í Hollandi áður
en þau komu sér fyrir á Selfossi.
„Ég hef alltaf litið sem svo á að við
séum á leiðinni að flytja aftur upp
í Biskupstungur en það er nú bara
minn skilningur á þessari vegferð,“
segir Bjarni.
„Þetta er bílabær, svona upp
á ameríska mátann, en það er
vel hægt að stoppa hér og eyða
drjúgum tíma í að fara í margar
skemmtilegar búðir. Þetta er ekki
bara „drive-trough“ bær,“ segir Elín
sem þarf að þjóta að sinna erindum
en Bjarni situr eftir og deilir með
lesendum nokkrum af sínum uppá-
haldsstöðum á Selfossi.
Verslanir
„Lindin“ er áratugagömul tísku-
vöruverslun með kvenfatnað sem
mjög gaman er að heimsækja. Ekki
spyrja mig út í línur eða lag á fötum
en það eru mjög flottar mæðgur
sem reka verslunina og það er
alltaf rífandi traffík hjá þeim. Svo
er „Alvöru búðin“ handavinnubúð
með allskonar handavinnuvörur.
Þetta er reyndar líka konubúð svo
ég kann ekki alveg að nefna allt þar
inni. Það eru reyndar vissir hlutir
sem ég kann á í konubúðum en
ekki þegar kemur að fötum. Hér
er líka nytjamarkaður sem fékk
nýlega stærra húsnæði við hring-
torgið við inngang bæjarins. Þar
er mikið líf og skemmtilegt úrval
af allskyns dóti, og bókum, sem
gaman er að skoða.“
Ísbúðin Huppa
„Þetta er afbragðs ísbúð sem
gaman er að stoppa í en það er
strákur ofan úr Haga í Gnúpverja-
hreppi sem rekur hana. Huppa er
einmitt frægasta mjólkurkýr lands-
ins og var Sunnlendingur. Allar
mjólkurkýr eru komnar undan
Huppu á Kluftum sem átti afa sem
var huldunaut. Og þetta flokkast
ekki undir þjóðsögu heldur undir
staðreyndir úr dýraríkinu hérna
á Suðurlandinu. Það eru til mjög
nákvæmar frásagnir af því þegar
það átti að leiða ömmu hennar
Huppu undir naut, en þá fékk hún
með huldunauti á leiðinni. Bændur
þekkja þetta vel, þegar kýr er að
fá hjá nauti, og það sáu allir hvað
var að gerast. Enda vildi hún svo
ekkert með hitt nautið hafa því kýr
Selfoss er ekki bara bílabær
Hnakkar, huldunaut, tíska og traktorar eru meðal þess sem
ber á góma í kaffispjalli á Sunnlenska bókakaffinu á Selfossi.
Á bókakaffinu, sem tónskáldið Elín Gunnlaugsdóttir og rithöf-
undurinn Bjarni Harðarson hafa rekið í níu ár, skapa sumar-
húsaeigendur og borgarbörn traffík á laugardögum en
heimamenn koma í kaffi á virkum dögum. Þau segjast vera
bókaormar í bílabæ og líkar það vel, enda hafi Selfoss upp á
margt annað að bjóða en bara bíla.
Hjónin segja sumarhúsaeigendur og borgarbörn sækja þau heim um helgar en heimamenn komi líka
við. Þegar blaðamann bar að garði voru gestir í öllum hornum að glugga í bækur, sötra kaffi og í
sófahorninu sátu heimamenn og spjölluðu um daginn og veginn. Ljósmynd/Halla
eru mjög nægjusamar þegar kemur að
kynlífi, þegar þetta er búið þá er ekkert
meir. Okkur þætti þetta sennilega súrt en
svona er það hjá kúnum.“
Veitingastaðir
„Ég elda nú mikið sjálfur heima hjá mér
en fer samt stundum út að borða. Ef
maður er á hraðferð og vantar mat en ekk-
ert endilega eitthvað stórkostlega fínt þá
eru staðir eins og „Kaktus“ og „Menam“
mjög góðir. „Menam“ er austurlenskur en
þar er samt líka hægt að fá íslenskan mat,
kótilettur og svoleiðis. Það sama á við
um „Kaktus“, það er smá suður-amerísk
áhersla en það er hægt að fá allskonar mat
þar. En svo eru líka verulega fínir staðir
hér, eins og til dæmis „Tryggvaskáli“ sem
er nýjasti staðurinn hér. Og það er nú
upplifun að koma þangað því það er elsta
húsið í bænum, frá 1890. Þetta er ekki
gömul byggð hér á Selfossi, húsið sem ég
bý í er frá 1935 og það er tíunda húsið í
þorpinu. Svo það gerðist nú mjög lítið hér
Bókaormar í bílabæ. Elín og Bjarni hafa rekið bókakaffið í níu ár en kaffihúsið er einnig bókaútgáfa. Í dag, föstudaginn 1. maí,
gefa þau út fimmtu prentun af Jómfrú Ragnheiði eftir Guðmund Kamban. Ljósmynd/Halla
Þegar Elín er ekki að afgreiða í
bókakaffinu vinnur hún heima
við tónsmíðar eða við tónlistar-
kennslu í Reykjavík. Ljósmynd/Halla
Ég er sam-
mála honum
Jóni í Össuri
sem sagði
eitt sinn
að djúpt
í sálarlífi
hvers karl-
manns lúri
draumurinn
um að eign-
ast traktor.
Það er bara
eitthvað kikk
við að keyra
traktor.
fram undir 1929, þegar mjólkurbúið
opnaði.“
Hnakkar og bílar
„Þetta er auðvitað mjólkurbær en
þetta er líka hnakka- og bílabær.
Meira að segja bókapésar eins og
ég geta haft gaman af bílum. Ég hef
til dæmis ógurlega gaman af því
að keyra um bílasölur og á Selfossi
eru einhverjar öflugustu bílasölur
landsins. Þær eru allar í hnapp
utan við á og þar er alltaf eitthvað
að skoða. En svo ættu þeir sem
eru „hard-core“ bílaáhugamenn að
kíkja í hinn enda bæjarins, á Jötun-
vélar þar sem notaðir og nýir trakt-
orar til sölu. Ég er sammála honum
Jóni í Össuri sem sagði eitt sinn að
djúpt í sálarlífi hvers karlmanns lúri
draumurinn um að eignast traktor.
Það er bara eitthvað kikk við að
keyra traktor.“
Bobby Fischer
„Menn hafa verið að ræða vöntun
á söfnum hér en það er nú komið
Bobby Fischer-safn sem allir skák-
áhugamenn ættu að hafa gaman af.
Svo er hann jarðsettur hérna rétt
utan við bæinn, við Laugardæla-
kirkju, fallega og pínulitla sveita-
kirkju við golfvallarsvæðið, sem er
líka gaman að heimsækja. Ég veit
að skákáhugamenn leggja leið sína
að gröf hans í stórum stíl.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
28 viðtal Helgin 1.-3. maí 2015