Fréttatíminn


Fréttatíminn - 01.05.2015, Qupperneq 34

Fréttatíminn - 01.05.2015, Qupperneq 34
Það getur enginn keypt regnbogann Rúrí hefur miðlað hugmyndum sínum um náttúruna og veru okkar á jörðinni í hina ýmsu miðla síðastliðin fjörutíu ár. Hún hefur fegrað, hneykslað og vakið til umhugsunar með verkum sem oftar en ekki hverfast um vatnið og hinar ýmsu birtingarmyndir þess. Hún vakti heimsat- hygli með verki um íslenska fossa á Feneyjatvíæringnum en á Íslandi eru hún kannski þekktust fyrir regnbogana sína, sem henni finnst svo fal- legir því enginn á þá og því geti allir notið þeirra. Rúrí frumflytur nýjan gjörning fyrir Listahátíð í Reykjavík þann 16. maí næst- komandi í Norður- ljósasal Hörpu. T enging mín við náttúruna byrj-aði mjög snemma því við vorum svo lánsöm að eyða öllum okkar sumrum við Ísafjarðardjúp þaðan sem faðir minn er ættaður. Þar upplifðum við yndislegt og fullkomið frelsi í nánd við fossa, sjó, fjöll og dali án þess að nokkuð truflaði því það var ekki enn komið raf- magn. Ætli þessi náttúrutenging sé ekki bara í blóðinu,“ segir listakonan Rúrí sem mun frumflytja gjörning í Norður- ljósasal Hörpu á Listahátíð þann 16. maí næstkomandi. Gjörningurinn mun snerta vatnið, mannkynið og jörðina en það eru við- fangsefni sem hafa verið Rúrí hugleikin frá upphafi ferils hennar. „Svo bjó ég í tvö ár úti í Flatey á Breiðafirði og það hafði líka mjög mikil áhrif á mig og tengingu mína við náttúruna,“ segir Rúrí en hún starfaði þar sem kennari og skólastjóri í Flatey eftir að hafa lært myndlist við Mynd- og handíðaskólann í Reykjavík og járnsmíði í Iðnskólanum. „Frá Flatey fór ég svo beint í framhaldsnám til Hollands og það voru dálítið harkaleg umskipti.“ Listin er dýpri en mammon Listsköpun Rúríar hverfist oftar en ekki um jörðina og hverfulleika náttúrunnar. Hún er líka oft á tíðum beinskeitt og póli- tísk. Gjörningur hennar frá árinu 1974 er mörgum minnisstæður en þá rústaði hún gyllta Benz-bifreið á Lækjartorgi við hneykslan og forundran margra. Reykvískir góðborgarar urðu ekki síður hneykslaðir ári síðar þegar hún klædd- ist þjóðbúningi úr ameríska fánanum á 17. júní. „Myndlistin hefur alltaf verið hluti af þessum kapítalíska heimi en það er ekki það sem myndlistin snýst um. Hún snýst um önnur gildi sem eru miklu dýpri en peningar og mammon. Listin á að snúast um huglæg gildi eins og tilfinningar, ást og umhyggju. Siðferði og gagnkvæma virðingu, til dæmis gagnvart náttúrunni, öðru fólki og öðrum þjóðum.“ Rúrí segir gjörningaformið hafa hentað sér vel, kannski að hluta til vegna þess hversu illa það passar inn í markaðsvæð- ingu listarinnar. „Ég fann fljótt að gjörn- ingaformið hentaði mörgum af mínum hugmyndum vel, þó ekki öllum,“ segir Rúrí sem aldrei hefur bundið sig við einn miðil. Uppsprettu verka hennar er alltaf að finna í hugmyndinni sem mótar þau. „Ég lít á listina sem heimspeki og hlut- verk listamannsins er að túlka heim- spekina eða hugmyndina í efni. Það er grunnforsendan hjá mér, að finna rétta efnið eða tæknina fyrir hverja hugmynd. Ég náttúrulega dauðsé eftir því að hafa sett mér þetta markmið til að byrja með,“ segir Rúrí og hlær, „því ég þarf stöðugt að vera að læra, stöðugt að vera að kynna mér aðrar aðferðir til að vita hvort hug- myndin geti gengið upp í hverjum miðli. Þetta er mikil rannsóknarvinna.“ Afurð rannsóknarvinnu síðastliðinna fjörutíu ára er fjöldinn allur af gjörningum, skúlp- túrum, vídeó-verkum, innsetningum, hljóðverkum, kvikmyndum, bókverkum og ljósmyndum svo fátt eitt sé nefnt. Vatnið er hrífandi og mikilvægt „Þetta er fyrsta myndavélin mín en ég fékk hana þegar ég var ellefu ára,“ segir Rúrí og tekur fram forláta rúss- neska myndavél sem leynist innan um gömul hnattlíkön á vinnustofunni. „Ég var næstum dottin ofan í foss þegar ég var nýbúin að fá hana og enn að venjast því að ganga og horfa ofan í linsuna á sama tíma,“ segi Rúrí og hlær. Hún hefur greinilega heillast snemma af fossum en vatnið og ýmsar birtingarmyndir þess er leiðarstef í gegnum allan hennar feril. „Það eru svo margir fletir á vatninu,“ segir Rúrí aðspurð um hvað það sé sem heilli hana við vatnið. „Það er til dæmis yndisleg samlíking við tíma og svo er það undirstaða lífsins. Við erum ekki án vatns, yfir 60% af líkamanum er vatn. Það liggur í augum uppi að vatn er mjög mik- ilvægt. Vatn er líka mjög hrífandi og þá dettur mér Flatey aftur í hug. Flatey að vetrarlagi, þegar snjór liggur yfir en flóð og fjara gera það að verkum að klapp- irnar verða berar á mjóu belti yfir sjávar- máli, svartar, og yfir liggur sinnepsgulur Rúrí mun flytja gjörninginn Lindur- Vocal 7 í Norður- ljósasal Hörpu laugardaginn 16. maí. Verkið tekur um 40 mínútur í flutningi. „Ég veit að þetta verður heilmikið sjónar- spil. En gjörningar eru þess eðlis að það er áhorfand- inn sem upp- lifir svo við skulum ekki taka það frá honum með því að segja of mikið.“ Sama dag og Rúrí flytur gjörninginn í Hörpu verður opnun á sýning- unni Icelandic Art – Then and now, í Nordiska Aquarelle Museet þar sem Rúrí sýnir stóra vídeó-innsetningu, sem byggir á 5 metra háum vídeó-verkum í 360° hring í 150 fermetra skála. Mynd/Hari Rúrí fékk fyrstu myndavélina sína þegar hún var ellefu ára gömul. 34 viðtal Helgin 1.-3. maí 2015 RIGA Í LETTLANDI FRÁBÆRT TILBOÐ TIL 14. -17. MAÍ Á SÍÐUSTU SÆTUNUM Verð aðeins kr. 69.900.- Innifalið: flug frá Keflavík og Akureyri, 4★ hótel á besta stað með morgunmat, rúta frá flugvelli og íslenskur fararstjóri. Riga er meira en 800 ár gömul borg eða frá árinu 1201. Þar blandast saman miðaldarmiðbær og nútímaborg. Gamli borgarhlutinn með sinn sjarma og hefðbundin nútímaborg í hraðri þróun. Hvort sem það er menningin - söfn eða fallegar byggingar, listaviðburðir og verslanir með allt það nýjasta á góðu verði - þá finnur þú það í Riga. Í Riga má finna eitt mesta samsafn af Art Noveau eða Jugend byggingalist. Þá er næturlíf Riga orðið þekkt fyrir að vera fjörugt og dregur til sín fjölda fólks víða að. Framhald á næstu opnu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.