Fréttatíminn - 01.05.2015, Side 38
38 bílar Helgin 1.-3. maí 2015
ReynsluakstuR nissan Juke
Töffarabíll sem
leynir á sér
Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is
SMELLTUÁ KÖRFUNANETBÆKLINGUR Á WWW.TOLVUTEK.IS MEÐ GAGNVIRKUM KÖRFUHNAPP
Öflug spjald- og leikjatölva með
öllum klassísku tökkunum ásamt
5” kristaltærum HD snertiskjá og
ótrúlegu úrvali af leikjum og forritum!14.900
LEIKJATÖLVA
ÓGRYNNILEIKJANÆR ÓTAKMARKAÐ ÚRVAL AF LEIKJUM OG FORRITUM FYRIR ÞESSA ÓTRÚLEGU GRÆJU
Nissan Juke er bíll sem vekur athygli fyrir djarflega hönnun.
Hann er ekki stór, ekki smár heldur einhvers staðar þarna á
milli og kemur virkilega á óvart þegar sest er undir stýri hversu
kraftmikill hann er.
Þ að er ekki almennilega hægt að lýsa útliti Nissan Juke. Þess vegna
er svo gott að hér fylgja
myndir með. Hann er
stærri en smábíll, minni
en jepplingur, með ávalar
línur og hann sker sig úr
jafnvel þó hann sé í hlut-
lausum gráum lit. Það
sem helst kemur á óvart,
þegar sest er undir stýri,
er hversu kraftmikill
hann er. Þetta er bíll sem
leynir á sér.
Nissan Juke hefur verið
í nokkurn tíma á mark-
aði en loksins er komið
að því að hann fæst með
fjórhjóladrifi. Einfalt er
að setja í fjórfjóladrifið
– bara ýta á einn einasta
takka. Með endurhönnun
bílsins nú er farangurs-
rýmið einnig orðið meira
en var í fyrri týpum, en
þess er þó aðeins hægt að
njóta til fulls ef valinn er
framhjóladrifinn bíll. Þú
einfaldlega velur hvort þú vilt meira
drif eða meira rými í skottinu. Já, og
þess bera að geta að bíll-
inn er ekki þriggja dyra
eins og mér fyrst sýndist
heldur er hann fimm dyra,
og raunar einnig vinum
og kunningjum sem báru
bílinn augum. Með því
að koma handfanginu á
hurðaopnaranum á aftur-
hurðunum fyrir að ofan-
verðu á fyrirferðarlítinn
hátt virðast ekki vera aft-
urhurðir, sem gefur bíln-
um sportlegt útlit. En þó
handföngin væru ofarlega
voru þau ekki of ofarlega
til að fimm ára dóttir mín
gæti opnað sjálf.
Áður en ég sótti bílinn
í reynsluakstur reyndi ég
að sjá fyrir mér hvers kon-
ar fólk myndi fá sér Niss-
an Juke því ég áttaði mig
ekki alveg á honum og
spurði sölumanninn meira
að segja sérstaklega að
þessu. Hann svaraði því
til að það væri alls konar
fólk, til að mynda konan hans. Án
nissan Juke
acenta Plus
4wd
5 dyra
Vél
1618 cc
190 hestöfl
Eyðsla
6,5 l/100 km í
blönduðum akstri
Úblástur
153 Co2 g/km
Tog
240 Nm
Lengd
4135 mm
Breidd
1765 mm
Farangursrými
207-354 lítrar
Verð frá
3.590.000 kr
þess að ég hafi hugmynd um hvern-
ig konan hans er þá komst ég að
niðurstöðu eftir að hafa ekið bíln-
um í tvo sólarhringa: Þetta er bíll
fyrir töffara. Það eru töffarar sem
keyra afgerandi bíla í umferðinni
og töffarar sem vilja 190 hestöfl þó
þeir séu ekki endilega að sækjast
eftir sérlega stórum bíl. Með bakk-
myndavél, íslensku leiðsögukerfi
og sólþaki er síðan flest allt komið
sem þarf til að vera töffari en halda
samt í helstu þægindi fyrir sann-
gjarnt verð.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Útlit Nissan Juke er afgerandi og vekur hann athygli, jafnvel í hlutlausum gráum lit. Mynd/Hari
Leiðsögukerfi með Íslandskorti er staðalbúnaður sem nálgast má í gegnum sjö
tömmu snertiskjá.
Búið er að stækka farangursrýmið frá
fyrri gerð upp í 354 lítra en fjórhjóla-
drifið tekur sitt pláss og í þeirri gerð,
líkt og ég ók, er rýmið 207 lítrar.