Fréttatíminn - 01.05.2015, Síða 42
hjólreiðar Helgin 1.-3. maí 201542
Kia Gullhringurinn er ein aðgengi-
legasta hjólakeppni sumarsins.
Keppnin samanstendur af þremur
hringjum; 45 kílómetra hring, 60
kílómetra hring og 106 kílómetra
hring og því geta byrjendur og
afreksfólk fundið eitthvað við sitt
hæfi. Kia Gullhringurinn hefur því
oftar en ekki orðið fyrir valinu sem
fyrsta keppni hjólreiðafólks sem
er að stíga sín fyrstu skref. Hjólað
er frá Laugarvatni í gegnum
stórbrotna náttúru og magnaðar
söguslóðir uppsveita Árnessýslu. Í
lok keppninnar er boðið upp á mat,
drykk og skemmtun.
Allir vinna
Keppnin var fyrst haldin sumarið
2012 og verður því haldin í fjórða
sinn í sumar. Mottó keppninnar
er „Allir hjóla, allir vinna og allir
eru velkomnir,“ og er það vísun í
að með þátttöku í keppninni er í
raun hálfur sigurinn unninn. Gull-
hringurinn er auk þess annálaður
fyrir glæsilega brautarvinninga.
„Brautarvinningar eru þannig að
númer þeirra sem klára keppnina
eru dregin út í lok keppninnar og
þannig geta allir unnið glæsileg
verðlaun þó þeir lendi ekki í efstu
sætum og það er það sem gerir Kia
Gullhringinn svo aðgengilegan
og skemmtilegan,” segir Freyja
Leópoldsdóttir, markaðsstjóri
Öskju, sem er umboðsaðili Kia Ís-
landi, en Askja er helsti bakhjarl
keppninnar.
Fyrir byrjendur og lengra
komna
Síðustu tvö ár hefur það haldist
í hendur að sigurvegarar í 106
kílómetrunum í karla og kvenna-
flokki hafa verið valdir hjólreiða-
maður og hjólreiðakona ársins
þannig að fremstu hjólarar lands-
ins leggja metnað í að sigra í Kia
Gullhringnum. Keppnin er þó að
sjálfsögðu opin öllum og er ekki
hluti af Íslandsmeistararmótinu.
Áslaug Einarsdóttir, ein af skipu-
leggjendum keppninnar segir að
öryggi keppenda sé þeim ofarlega í
huga. „Við erum með lækni á vakt
í mótsstjórn inni, sex brautarbíla
og reynum eftir fremsta megni að
hafa umgjörðina sem vandaðasta.“
Skráning er hafin á www.gullhring-
urinn.is. „Nú þarf að hafa hraðar
hendur því forskráningartilboðið
gildir út 2. maí og þá hækkar verðið
úr 5.500 krónum í 6.900 krónur.
Keppendur fá glæsilega gjafapoka
hjá okkur þegar þeir sækja skrán-
ingarnúmerin fyrir keppni. Auk
þess er fjöldinn allur af frábærum
vinningum í boði, ekki bara fyrir
efstu sætin,“ segir Freyja.
O kkur er líklega best lýst sem hjólanördum. Við höfum verið að vinna að því að byggja upp hjólreiðamenninguna hér á landi og partur af
því er að fara í ævintýri erlendis og öðlast reynslu,“
segir Emil Þór Guðmundsson hjólagarpur. Keppnin,
sem nefnist Cape Epic, nýtur mikilla vinsælda meðal
hjólreiðafólks og árlega taka um 1200 hjólreiðamenn
þátt. Þegar opnað var fyrir skráningu í keppnina sem
fram fer að ári tók einungis níu sekúndur að fylla öll
pláss sem í boði eru.
11 brotin viðbein á fyrsta keppnisdegi
„Hópurinn sem ég fór með var búinn að skrá sig fyrir
löngu og ég kom inn sem varamaður þegar einn datt
út,“ segir Emil. Liðsfélagi Emils var Ingi Már Helga-
son. Í hinum liðunum tveimur voru annars vegar Arn-
þór Pálsson og Guðmundur Gíslason, og hins vegar
Björn Ólafsson og Stefán Ákason. „Það hefur alltaf
verið draumur hjá mér að taka þátt og ljúka þessari
keppni,“ segir Emil, en það er alls ekki sjálfgefið að
klára keppnisdagana átta. „Á fyrsta degi brotnuðu til
að mynda 11 viðbein í keppendum,“ segir Emil. Einn
íslensku keppendanna þurfti svo að hætta keppni
samkvæmt læknisráði á þriðja degi. „Liðsfélagi hans
kláraði þó keppnina einn síns liðs, en ég veit að þá
langar að fara aftur og klára þetta verkefni saman,“
segir Egill. Hann og Ingi Már enduðu í 106. sæti og
eru nokkuð sáttir með þann árangur. „Við fórum ekki
í keppnina til að vinna heldur til að klára verkefnið.“
Tour de France fjallahjólanna
Cape Epic hjólreiðakeppnin er ein erfiðasta hjóla-
keppni í heimi og jafnfram sú lengsta, en alls eru
hjólaðir 748 kílómetrar á átta dögum. Báðir liðsmenn
hjóla alla leiðina og liggur hjólaleiðin um fjöll og firn-
indi. Hjólaleiðin hefst í Cape Town og endar í Durban-
ville. „Keppninni hefur verið líkt við Tour de France,
en segja má að þetta sé eins konar fjallahjólaútgfáfa
af þeirri keppni,“ segir Emil. Það eru ýmis verkefni
og vandamál sem geta komið upp á keppnisleiðinni.
Emil segir að hitinn hafi helst sett strik í reikninginn
hjá þeim félögum. „Við hjóluðum að meðaltali sex
klukkustundir á dag og lengst yfir átta stundir, en
það var akkúrat heitasti dagurinn. Hitinn fór upp í 42
gráður og við kuldabeltisdýrin erum ekki gerð fyrir
þetta,“ segir Emil, en hann líkir þessum degi við að
hjóla Laugaveginn fram og til baka, í miklum hita, en
þessi hluti leiðarinnar var 130 kílómetrar.
Ljón á veginum
Emil og félagar hjóluðu í gegnum ýmsa bæi, fjall-
garða, eyðimerkur og vínekrur á leið sinni. „Landið
er einstaklega fallegt og það var mögnuð upplifun
að hjóla þessa leið og ólíkt því sem maður þekkir.“ Í
keppninni var hjólað í 40-50 manna hópum á 40-50
km hraða. „Við tölum saman okkar á milli og þeir sem
fremstir eru segja hvað er fram undan á veginum. Það
óvæntasta var líklega þegar ég heyrði kallað: Ljón!
Þá var ljón hægra megin við okkur á veginum,“ segir
Emil.
Nú tekur við íslenskt hjólasumar en þeir félagar eru
þó farnir að huga að næstu keppnum, annað hvort í
Brasilíu eða Mongólíu.
Erla María
erlamaria@frettatiminn.is
„Eins og að hjóla
Laugaveginn fram og
til baka í 40 gráðum“
Gullhringurinn
heldur áfram að vaxa
Emil Þór Guð-
mundsson,
hjólagarpur
og eigandi
hjólareiðaversl-
unarinnar Kríu,
fór ásamt fimm
félögum sínum
til Suður-Afríku
í mars síðast-
liðnum til að
taka þátt í Cape
Epic, lengstu
fjallahjólakeppni
heims.
Cape Epic er lengsta fjallahjólakeppni í heimi. Alls eru hjólaðir 748 kílómetrar átta dögum við erfiðar aðstæður. Ljósyndir/Emil Þór
Gunnarsson.