Fréttatíminn - 01.05.2015, Page 44
hjólreiðar Helgin 1.-3. maí 201544
Notum virkan ferðamáta!
Hjólum • Göngum • Hlaupum • Tökum strætó
Vinnustaðakeppni
Skráning og nánari upplýsingar á
hjoladivinnuna.is
Íþrótta- og
Ólympíusamband Íslands
kynnir:
Taktu þátt í Instagram-leik #hjólaðívinnuna
6.–26. maí
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
S
I
73
83
7
04
/1
5
„Sólarvörnin
helst þrátt
fyrir langar
æfingar“
Proderm er sænsk sólarvörn
sem er sérstaklega þróuð
fyrir viðkvæma húð og verndar
fyrir sterkum sólargeislum við
erfiðustu kringumstæður.
P roderm er mikið notuð við íþróttaiðkun, í siglingakeppn-um, hjólreiðakeppnum, blaki
og af sundfólki. Við hjólreiðar er
mikilvægt að vernda húðina vel og
brenna ekki. Hjólreiðamenn gefa
Proderm mikið lof. Í löngum hjóla-
ferðum er mikilvægt að sólarvörnin
haldi og það gerir Proderm.
Keppnisfólk notar Pro-
derm
Andreas Danielsson, fyrirliði
hjólreiðalandsliðs Svíþjóðar,
hefur góða reynslu af notkun
Proderm. „Ég hjóla tímunum
saman í sólinni og þarf sól-
arvörn sem ekki rennur
af húðinni í ströngum æf-
ingum. Proderm er eina
sólarvörnin sem virkar
fyrir mig. Ég útbý allt
mitt hjólreiðakeppnisfólk
með Proderm á sólríkum
keppnisdögum. Fyrstu
kynni mín af vörninni
voru í stórri keppni og
Proderm var eina vörnin
sem ekki rann af enninu
niður í augu. Við keppum um allan
heim og nýlega í Nepal þar sem sól-
in er gríðarsterk og besta tegund
af sólarvörn var algjör nauð-
syn.“
Langvirk vörn
Eygló Ósk Gústafsdóttir
sundafrekskona og f leira
sundkeppnisfólk hefur not-
arð Proderm með góðum
árangri. „Með Proderm
brennur húðin ekki þó
æft sé tímunum saman í
sundlaug í glampandi sól.
Húðin verði mjúk og raka-
fyllt, fallega brún og laus
við þurrk. Engir taumar
eða hvít himna myndast
við notkun varnarinnar,“
segir Eygló. Í keppnum er
mikils virði að vera með
góða sólarvörn eins og
Proderm sem myndar eins konar
varnarhimnu í hornlagi húðarinnar.
Vörnin rennur ekki af húðinni og
þolir vel saltan sjó.
Hentar öllum húðgerðum
Sólarvörnin frá Proderm inniheldur
ekki fitu og veitir ekki glansáferð.
Vörnin smýgur hratt inn í húðina
og sérlega þægilegt er að bera á sig
mjúka þétta froðuna sem er afar
drjúg. Proderm er einnig afar vin-
sæl af fjölskyldufólki. Vörnin fær
meðmæli frá húðlæknum og hentar
öllum húðgerðum. Proderm er laus
við öll ilmefni, paraben eða nano-
tækni. Proderm sólarvörnin fæst
í apótekum, Hagkaupum, Fjarðar-
kaupum, Grænni heilsu og Fríhöfn-
inni.
Unnið í samstarfi við
Celsus
Andreas Dani-
elsson, fyrirliði
hjólreiðalands-
liðs Svíþjóðar,
notar Proderm
sólarvörn líkt og
landsliðið allt.
Uppáhalds hjólaleiðir
Önnu Kristínar
Anna Kristín Ásbjörnsdóttir
hefur starfað sem fjallaleið
sögumaður til fjölda ára og
alla tíð verið mikil hjóla
garpur. Í dag sameinar hún
þessar tvær ástríður með
því að skipuleggja hjóla
ferðir. Hún deilir með okkur
nokkrum góðum hugmynd
um að hjólaleiðum í
Reykjavík og
nágrenni.
1 – Stóri Reykjavíkur-
hringurinn
Hjólaður hringur í kringum
Reykjavík og alltaf hægt að
vera á stíg.
25 km. Um 2-3 klukkustundir.
Nauthóll – Ægisíða – Grótta
– Grandi – Sæbraut – Elliðaár-
dalur – Fossvogur – Nauthóll
2 – Meistara Áttan
35 km. Um 5-6 klukkustundir.
Hjóluð átta um höfuðborgar-
svæðið. Farið frá Hallgríms-
kirkju. Farið með Sæbraut og
inn í Elliðaárdal. Hjólað upp
að Elliðavatni og Rauðavatni.
Hjólað um Golfvöllinn inn í
Grafarholt. Niður í Grafarvog
og undir brúna í gegnum
Bryggjuhverfið. Í gegn hjá
Elliðaárdalnum og niður Foss-
vogsdalinn í Nauthólsvík og
svo í miðbæinn. Sjá kort á vef
Fréttatímans.
3 – Útivistarsvæðin í Öskju-
hlíðinni og í Heiðmörk.
Þessi svæði bjóða upp á úrval
góðra stíga fyrir styttri og
lengri hjólaleiðir.
4 – Sveifluháls
40 km. Um 8 klst.
Hluti af Bláa lóns-þrautinni.
Skemmtileg og falleg leið sem
byrjar í Hafnarfirði og fer um
malarveg að Kleifarvatni og
inn í Krýsuvík. Þú getur annað-
hvort endað í Bláa lóninu eða
farið til baka í gegnum fjöllin.
Sjá kort á vef Fréttatímans.
5 – Hengilssvæðið.
Þetta svæði er stórkostlegt
og nú hefur Orkuveitan gert
fyrstu stikuðu hjólreiðaleið
landsins á svæðinu. Þannig
að það er hægt að keyra upp
í Hengilssvæði og fara stikaða
leið án þess að trufla göngu-
fólk.
A nna Kristín Ásbjörns-dóttir starfar sem framkvæmdastjóri hjól-
reiðaferðaskrifstofunnar Bike
Company sem leigir götu-og
fjallahjól en býður einnig upp á
stuttar og langar hjólaferðir fyrir
hópa og einstaklinga. Anna hefur
ferðast mikið með Frakka því
hún bjó í tíu ár í Lyon þar sem
hún rak ævintýra-ferðaskrifstofu
sem sérhæfði sig í göngu-og
fjallaskíðaferðum á Íslandi fyrir
Frakka.
„Þegar ég bjó í Frakklandi hætti
ég að hjóla á fjöllum og notaði
hjólið mest sem samgöngutæki
en þar var stolið af mér minnst
þremur hjólum. Þegar ég svo flutti
heim stofnuðum við 10 vinkonur
fjallahjóla og fjallaskíðaklúbb. Við
höfum ferðast saman í „hard-core“
fjallahjólaferðum um Ísland en líka
farið til Tyrklands í fjallahjólaferð.“