Fréttatíminn


Fréttatíminn - 01.05.2015, Qupperneq 48

Fréttatíminn - 01.05.2015, Qupperneq 48
hjólreiðar Helgin 1.-3. maí 201548 Halldóra Matthíasdóttir þrí- þrautarkona er mjög ánægð með Magnesíum Sport spreyið frá Better You og notar það eftir allar æfingar. Hún finnur sérstaklega mikinn mun á endurheimt vöðva og bata eftir æfingar. H alldóra Matthíasdóttir úti-bússtjóri breytti um lífsstíl árið 2008 með því að breyta algerlega um matarræði. Því næst tók hún á hreyfingunni og byrjaði á því að hlaupa. Hún hljóp sitt fyrsta maraþon árið 2011 og hefur síðan hlaupið bæði Laugavegshlaupið og Jökulsárhlaupið ásamt því að hafa undanfarin ár tekið þátt í Ironman keppninni bæði í Mexíkó, Frankfurt og Svíþjóð. Þreytan hvarf eins og dögg fyrir sólu Halldóra æfir að meðaltali níu sinn- um í viku, þrisvar sinnum í hverri grein, það er hjólreiðum, hlaupi og sundi. „Eftir æfingar nota ég allt- af Magnesíum Sport spreyið því það hefur hjálpað mér verulega við endurheimt vöðva og minnkar lík- urnar á krampa og harðsperrum.“ Í fyrra hljóp Halldóra frekar langt hlaup eftir að hafa verið frá í nokk- urn tíma vegna handleggsbrots. „Eftir hlaupið fékk ég mikla pirr- ings- og þreytuverki á sköflunga og í læri. Ég nuddaði vöðvana með Magnesíum Sport spreyinu og fann strax þreytuna og pirringinn líða hjá. Það var eiginlega alveg ótrúlegt hvað það virkaði hratt. Ég notaði líka Magnesíum Orginal spreyið á úlnliðinn, það er svæðið þar sem ég handleggsbrotnaði og mér finnst það hafa hjálpað mér verulega í bat- anum.“ Útsölustaðir Magnesíum Sport er fáanlegt í Lyfju, Lyf og heilsu, flestum apó- tekum, Fjarðarkaupum, Heilsuhús- inu, TRI verslun, Systrasamlag- inu, völdum Hagkaupsverslunum, Þinni verslun Seljabraut, Blómavali, Garðheimum, Crossfit Reykjavík og Lyfjaveri/Heilsuveri. Nánari upp- lýsingar má finna á www.gengur- vel.is. Unnið í samstarfi við Gengur vel Halldóra Matthíasdóttir þríþrautar- kona: „Ég mæli eindregið með Magn- esíum Sport spreyinu því það hefur hjálpað mér við endurheimt vöðva, þreytuverki og til að koma í veg fyrir krampa og harðsperrur.“ „Alveg ótrúlegt hvað spreyið virkar hratt“ Frá vanvirkni til virkni H jólakraftur er hjólahópur fyrir alla, en er þó sérstak-lega hugsaður fyrir krakka á aldrinum 12-18 ára, sem finna sig ekki endilega í hinu hefðbundna íþróttastarfi. „Við erum með hópa af ungu fólki og við skiptum hóp- unum eftir aldri,“ segir Þorvaldur Daníelsson, forsprakki verkefnis- ins. Nú eru meðlimir Hjólakrafts í kringum 50 og eru hópar starfandi á höfuðborgarsvæðinu, Grindavík og í Árnessýslu. Snýst um að sigrast á sjálfum sér „Í Hjólakrafti hjólum við og hreyf- um okkur. Við erum ekki í neinni keppni hvert við annað, síður en svo, en við veitum hvert öðru ágætt aðhald.“ Hópurinn hittist tvisvar, stundum þrisvar, í viku við Háskól- ann í Reykjavík við Öskjuhlíð eða Nauthólsvík. Eitt af markmiðum hópsins er að taka þátt í WOW-cyc- lothoninu. „Við viljum helst vera með mörg lið,“ segir Þorvaldur. Fyrsta Hjólakrafts-liðið tók þátt sumarið 2014 og vann þar áheita- keppnina og hlaut að launum flug- miða frá WOW-air og fór í nokkurra daga hjólaferð til Lyon í Frakklandi í byrjun september 2014. Hvatning og stuðningur Þorvaldur segir að hópurinn fylgi einfaldri hugmyndafræði. „Við spáum bara í hvað það er sem þátt- takendur langar til að geta gert og við spyrjum hvað viðkomandi er tilbúinn að leggja á sig til þess að láta það rætast.“ Áhersla er lögð á jákvætt andrúmsloft, gleði og hvatningu. „Ef eitthvað sem mað- ur er að gera er ekki gefandi eða skemmtilegt þá er óvíst að mann langi til þess að halda því áfram mikið lengur, ekki satt? Þess vegna eru gleðin og hvatningin svo mikilvægir þættir hjá okkur,“ segir Þorvaldur. Stuðningur er einnig mikilvægur þáttur í starfi Hjóla- krafts. „Foreldrarnir eru mikill og góður stuðningur við unga fólkið okkar og hópinn í heild. Við förum til dæmis af og til saman öll út að hjóla og gerum eitthvað skemmti- legt.“ Hjólakraftur stefnir á WOW cyclothon-ið í ár líkt og í fyrra. „Þegar krakkarnir kláruðu hringinn í fyrra sáu þeir og fólkið í kringum þá að allt er mögulegt þegar unnið er saman. Við þurfum hvert á öðru að halda,“ segir Þorvaldur Daníelsson, for- sprakki Hjóla- krafts. Göngugreining Pantaðu tíma í síma 5173900 Orkhúsinu / Suðurlandsbraut 34 / 517 3900 Vandamál sem göngugreining Flexor getur hjálpað til við að leysa eru til dæmis: • þreytuverkir og pirringur í fótum • verkir í hnjám • sársauki eða eymsli í hælum (hælspori, „plantar fasciitis“ o.fl.) • beinhimnubólga • óþægindi eða verkir í baki og/eða mjöðmum • verkir í tábergi og/eða iljum • hásinavandamál • óþægindi í ökklum • þreytu- og álagsverkir hjá börnum og unglingum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.