Fréttatíminn - 01.05.2015, Qupperneq 52
hjólreiðar Helgin 1.-3. maí 201552
T RI verslun er innflutnings- og smásölufyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu og þjón-
ustu á reiðhjólum frá Cube. Einn-
ig er boðið upp á ýmis önnur merki
þegar kemur að fylgihlutum fyrir
hjól, svo sem hjálmum, fatnaði og
öðrum aukahlutum fyrir hjólreiðar.
„Cube er þýskt hjólreiðamerki og
hefur það stækkað mjög ört á hinum
alþjóðlega hjólreiðamarkaði síðast-
liðin fimm ár. Við höfum því vaxið
með merkinu hérna heima á sama
tíma og merkið hefur vaxið erlend-
is,“ segir Valur Rafn, markaðsstjóri
hjá TRI. Framleiðendur Cube eru
framarlega á sviði keppnishjóla en
eru einnig að bæta við sig í fram-
leiðslu, til dæmis í hjólum fyrir þá
sem vilja cyclocross eða hybrid reið-
hjól. „Merkið er að fá mjög góða
dóma á heimsvísu og hefur einnig
reynst mjög vel við íslenskar að-
stæður,“ segir Valur.
Veldu rétta hjólið
TRI verslun hefur verið að auka
við vöruúrvalið upp á síðkastið og
býður nú í fyrsta skipti upp á sér-
stakan aukahlutapakka frá Cube.
„Við erum til dæmis aða selja Cube
hjálma í fyrsta skipti og erum einn-
ig að fá mikið af nýjum hjólaskóm,
bakpokum, ljósum og fatnaði. Sam-
hliða aukningu á vöruúrvali býður
TRI verslun upp á mælingu fyrir þá
sem vilja kaupa rétta hjólið. „Það
þarf að huga að mörgu við kaup á
hjóli. Í mælingunni tökum við tillit
til þátta eins og hvert viðkomandi
ætlar að fara á hjólinu og í hvaða til-
gangi,“ segir Valur. „Ertu að fara að
hjóla í bænum, á hjólastígum eða úti
á landi? Á að nota hjólið til að keppa
í reiðhjólakeppnum eða á að nota
reiðhjólið sem líkamsræktartæki?“
Starfsfólk TRI hjálpar viðskiptavin-
um að svara þessum spurningum og
finna rétta hjólið. „Ef þig vantar upp-
lýsingar um hjólreiðar getur þú haft
samband við starfsfólk TRI,“segir
Valur. Menningarhlutinn í kringum
hjólin skiptir okkur einnig miklu
máli. „Með auknu vöruúrvali viljum
við stuðla að aukinni og bættri hjóla-
menningu hér á landi. Komdu endi-
lega við hjá okkur og fáðu þér kaffi
það kostar ekkert!“ #cube_your_life
TRI verkstæði
TRI verslun er á Suðurlandsbraut
32 og þar er einnig að finna verk-
stæði. „Við tökum á móti hjólum
af öllum tegundum, stærðum og
gerðum,“ segir Valur. Boðið er upp
á þjónustu í nokkrum flokkum og
nú stendur yfir sérstök sumarþjón-
usta þar sem viðskiptavinir fá mik-
ið fyrir lítið. „Með því að velja sum-
arþjónustu tökum við nagladekkin
af hjólinu og setjum sumardekkin
undir. Þar að auki fær hjólið léttan
þvott, stillingu á gírum og brems-
um, keðjan er smurð og yfirfarin,
auk þess sem farið er yfir dekk og
gjarðir.“
Þýsk gæði á góðu verði
Á heimasíðu TRI, www.tri.is má
finna allar nánari upplýsingar um
Cube hjólin og aðrar vörur. Einnig
er hægt að finna TRI verslun á Fa-
cebook, Twitter og Instagram undir
nafninu #TRIVERSLUN
Unnið í samstarfi við
TRI verslun
Eitt skot = 1 líter af rauðrófusafa eða 6 rauðrófur. 100% lífrænt
Betra blóðflæði
Meiri orka, þrek, úthald
WE BEET
THE COMPETITION
1 skot 30 mín. fyrir æfingar / keppnir. Blandað í 100 - 150 ml af vatni.
Endist 6 tíma í líkamanum. Bætt blóðflæði og súrefnis upptaka 30 mín. eftir inntöku.
Fæst í öllum Heilsuhúsum - Heilsuveri og sumum apótekum.
Upplýsingar í síma 896 6949.
vitex.is
BE
ET
EL
IT
E l
ey
nd
ar
m
ál
þe
irr
a s
em
sk
ar
a f
ra
m
úr
. -
w
ww
.ne
og
en
iss
po
rt.
co
m
Cube hjá TRI Verslun
#TRIVERSLUN / #TEAMCUBE /
#TRI.IS / #BIKEFITTING
Sér ekkert neikvætt við hjólreiðar
Tómas Ingi Ragnarsson hefur
notað hjól sem samgöngutæki
í 25 ár. Ástæðuna segir hann
ekki vera flókin vísindi. Að hjóla
í vinnuna er hollt, ódýrt, um-
hverfisvænt og síðast en ekki
síst þá er það gaman. Tómas
lítur ekki á hjólreiðar sem sport
og mun því aldrei fara í span-
dexgalla.
É g byrjaði að hjóla þegar ég flutti frá Blönduósi í bæinn á framhaldsskólaldri,“ segir
Tómas Ingi Ragnarsson sem hefur
hjólað allar götur síðan. „Það komu
reyndar þarna tvö ár þar sem ég tók
nokkur letiköst og freistaðist til að
nota bíl en fyrir utan það þá hef ég
alltaf notað hjól til að ferðast á milli
staða.“
Tvisvar verið keyrður niður
Tómas, eða Tommi, hjólar 9 kíló-
metra á dag til og frá vinnu. Alla
daga, allan ársins hring í hvaða
veðri sem er. En hann hefur aldrei
keypt sér hjólaföt eða spandexgalla.
„Ég fer aldrei þangað því ég lít ekki
á hjólreiðar sem sport. Fyrir mér er
þetta samgöngumáti. Þetta snýst
bara um að komast frá A til B og til
þess þarf maður ekki ný föt. Maður
passar sig bara að hjóla á temmi-
legum hraða svo maður svitni ekki,“
segir Tommi sem notar þó alltaf
hjálm, af fenginni reynslu. „Ég hef
oft komist í hann krappan og hef ver-
ið keyrður niður tvisvar sinnum. Það
var sem betur fer ekki alvarlegt, ég
meiddi mig ekkert mikið heldur fékk
bara nokkrar skrámur og marbletti.“
Gaman að hjóla í slabbi
„Það er svo margt sem er skemmti-
legt við hjólreiðar. Mér finnst mjög
gaman að fá smá hreyfingu á blóðið
á morgnana, þetta er gott fyrir heils-
una og svo er þetta miklu ódýrara
en að keyra bíl, og umhverfisvænna.
Ég get bara ekki séð neitt neikvætt
við hjólreiðar.“
Ekki einu sinni íslenska veðráttu?
„Nei, mér finnst gaman að slabb-
inu. Þá setur maður bara naglana
á dekkin og fer í pollagalla. Það er
gott að hafa bara gallann í töskunni
því maður getur átt von á hverju
sem er á Íslandi.“ -hh
Tommi býr í Eikju-
vogi en hjólar í Guð-
rúnartún á hverjum
degi þar sem hann
vinnur sem grafískur
hönnuður. Hann er á
hybrid-hjóli sem er
blanda af fjalla- og
götuhjóli. Mynd/Hari