Fréttatíminn - 01.05.2015, Blaðsíða 62
62 matur & vín Helgin 1.-3. maí 2015
Dómnefndin sem mun velja besta brennivínskokteilinn í
Tjarnarbíói á þriðjudagskvöld. Ási á Slippbarnum, Óli Óla,
Valli í Borg og Margrét Grétars.
KoKteilar Spennandi Keppni í tjarnarbíó á þriðjudagSKvöld
Besti brennivínskokteillinn 2015
Íslandsmeistarakeppnin í
brennivínskokteilum fer fram
í Tjarnarbíói á þriðjudags-
kvöld. Í keppninni verða
tíu kokteilar sem komust í
gegnum umsóknarferli og
dómnefnd taldi álitlegasta.
Allir eiga kokteilarnir það
sameiginlegt að Íslenskt
brennivín er í aðalhlutverki í
bragði drykkjarins.
Kokteilamenningin hefur
verið á uppleið hér á landi að
undanförnu og það er ekki
síst að þakka Ása á Slippbarn-
um, Ásgeiri Má Björnssyni,
sem hefur verið duglegur
að boða fagnaðarerindið, nú
síðast með Reykjavík Bar
Summit. Ási situr í dómnefnd
keppninnar ásamt Ólafi Erni
Ólafssyni veitingamanni,
Valgeiri Valgeirssyni brugg-
meistara í Borg brugghúsi
og Margréti Grétarsdóttur,
framleiðanda og áhugabrugg-
ara.
Sigurvegarinn hlýtur að
launum ferð á Tales of the
Cocktail í New Orleans 15.-
19. júlí, sem er ein stærsta
kokteilahátíð heims. Keppnin
er opin öllum sem náð hafa
tilskyldum aldri meðan hús-
rúm leyfir.
Íslenska brennivínið er 80
ára um þessar mundir og er
þessi keppni liður í afmæl-
ishátíðinni. Íslenska ríkið hóf
framleiðslu á Brennivíni 1935
við afléttingu banns við sölu
á sterku áfengi sem þá hafði
gilt frá 1915. Síðan þá hefur
það orðið að einu þekktasta
vörumerki Íslandssögunnar.
veitingaStaðir bjórgarðurinn verður opnaður 1. júní við Höfðatorg
Í Bjórgarðinum verður hægt að fá sérgerðar pylsur og gott úrval af handverksbjór.
Sérhæfa sig í að
para mat og bjór
Bjórmenning Íslendinga er sífellt að batna og nú getum við
státað okkur af þremur börum í miðborg Reykjavíkur sem
sérhæfa sig í handverksbjór. Hinn 1. júní bætist enn í flóruna
þegar Bjórgarðurinn verður opnaður við Höfðatorg. Þar verður
fjölbreytt úrval af úrvalsbjór og mat sem passar við, svo sem
sérgerðar pylsur frá Pylsumeistaranum.
þ etta verður fyrsti staðurinn á Íslandi sem sérhæfir sig í að para mat og bjór enda teljum við að
bjór upphefji allar máltíðir,“ segir
Loftur Hilmar Loftsson sem undir-
býr opnun Bjórgarðsins á Fosshót-
eli Reykjavík við Höfðatorg.
Bjórgarðurinn verður opnaður
1. júní næstkomandi og þar verður
til að mynda boðið upp sérgerðar
pylsur frá Pylsumeistaranum, mar-
íneruð rif og fisk og franskar að
enskum sið. „Við höfum lagt mikla
áherslu á Pylsubarinn okkar þar
sem hægt verður að fá bragðmikl-
ar pylsur með spennandi meðlæti.
Að sjálfsögðu verður svo líka hægt
að velja Bulsur, íslensku grænmet-
ispylsurnar,“ segir Loftur.
Matnum getur fólk svo skolað
niður með úrvalsbjór sem kemur
úr ýmsum áttum; til að mynda frá
Brewdog og Borg brugghúsi. „Við
verðum með fjölbreytt úrval af
bjór og mikið af árstíðarbundnum
bjórum,“ segir Loftur.
Fosshótel Reykjavík verður
stærsta hótel landsins og það
besta, að sögn Lofts. „Þetta eru
einhverjir 17 þúsund fermetrar
en við fáum þó bara lítið horn til
að leika okkur í. Svo verður hægt
að tylla sér út líka. Bjórgarðurinn
verður 120 manna lifandi og hress
bjórstaður. Ég er einmitt að vinna
í því að búa til húsband og við verð-
um með lifandi tónlist um helgar.“
Íslendingar sýna því nú aukinn
áhuga að vanda valið þegar kemur
að því að kaupa sér bjór. Þetta sést
best á því að þrír barir eru nú í
miðborg Reykjavíkur sem sérhæfa
sig í handverksbjórum (e. craft
beer). Microbar var opnaður árið
2012 en á síðustu mánuðum hafa
Skúli og Mikkeller & Friends bæst
við. Með tilkomu Bjórgarðsins
bætist enn í flóruna. „Við Íslend-
ingar þurfum alltaf að gera allt á
sterum,“ segir Loftur þegar hann
er spurður um þessa þróun.
Loftur hefur starfað í veitinga-
bransanum í um tvo áratugi á stöð-
um á borð við Café Oliver og Hótel
Búðir. Síðustu tvö ár hefur hann
starfað á Fosshótel Vestfirðir.
„Ég legg mikla áherslu á þjálfun
starfsfólks og við verðum með
bjórráðgjafa á staðnum. Þannig
að ef þú ert með spurningar um
bjórinn eða vantar ráðleggingar
við matarpörun geturðu leitað til
fagmanns. Það getur nefnilega
verið gott að fá hjálp við að finna
þinn bjórstíl. Þú ert kannski alltaf
að heyra um IPA-bjór og heldur
að það sé besti bjórinn en kannski
viltu helst af öllu villigerjaðan
belgískan bjór. Okkar markmið er
að kitla skynfæri og bragðlaukana
hjá gestum svo þeim finnist að þeir
verði að koma aftur.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Loftur Hilmar Lofts-
son er rekstrarstjóri
Bjórgarðsins sem
opnaður verður á
Höfðatorgi í byrjun
júní. Ljósmynd/Hari
Eitt kort
38 vötn
6.900 kr
www.veidikortid.is
00000
Aldrei fleiri vötn!
- Kynning á leikmönnum
meistaraflokka Breiðabliks
- Ljúffengar veitingar
- Tónlistarveisla
- Veislustjóri: Jói Ben
Nánar á breidablik.is
Húsið opnar kl. 19. Miðasala í Smáranum - Miðaverð aðeins 5.000 kr.
18 ára aldurstakmark. Hægt er að panta miða á netfanginu sigurdur@breidablik.is
VORHÁTÍÐ
BREIÐABLIKS
VERÐUR 2. MAÍ Í SMÁRANUM