Fréttatíminn


Fréttatíminn - 01.05.2015, Síða 70

Fréttatíminn - 01.05.2015, Síða 70
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík sími: 557 9510 - www.patti.is Opið virka daga kl. 10-18 laugard. 11-16 Torino ÍSLENSKIR SÓFAR SNIÐNIR AÐ ÞÍNUM ÞÖRFUM Mósel Basel NevadaRoma 10% afsláttur af öllum sófum / sófasettum mál og áklæði að eigin vali *Tilboð gildir til 7.maí  TónlisT lög úr Teiknimyndum í salnum Söngvararnir og leikararnir Þór Breið- fjörð, Valgerður Guðnadóttir og Felix Bergsson hafa fjórum sinnum haldið tónleika í Salnum í Kópavogi undir yfir- skriftinni Lögin úr teiknimyndunum. Á laugardaginn verða þeir fimmtu og þeir síðustu í bili. „Það er svo mikið að gera hjá okkur öllum að við sjáum ekki fram á að gera meira af þessu, í bili,“ segir Þór Breiðfjörð. „Þetta er ótrúlega skemmti- legt prógram og það þekkja allir þessi lög. Sérstaklega börnin sem syngja með af mikilli innlifun,“ segir Þór. „Við tökum lög úr öllum helstu mynd- unum og nær eingöngu á íslensku. Þessi lög eru ekkert slor og teiknimyndirnar eru alveg sér kafli í kvikmynda og söng- leikjasögunni,“ segir Þór. Tónleikarnir á laugardag eru klukkan 13 og segir hann að vinsældir Frozen myndarinnar hafi gert það að verkum að þau bættu við lögum úr myndinni. „Myndin varð svo rosalega vinsæl að við bættum við tveimur lögum úr henni og verða því þrjú Frozenlög á tónleikunum. Annars er teiknimyndasagan yfir 80 ára gömul og allir ættu því að finna eitthvað við sitt hæfi,“ segir Þór Breiðfjörð. Miðasala á tónleikana er á www.salur- inn.is -hf Frozen fær sitt pláss Felix, Vala og Þór syngja lög úr teikni- myndum í Salnum á laugardag. Þ orsteinn Bachmann fer með eitt aðalhlutverkanna í Endatafli eftir Samuel Beck-ett sem frumsýnt verður í Tjarnarbíói í kvöld, föstudag. Hann segir verkið vera eilífa baráttu and- stæðnanna. „Þetta eru frekar tilvistar- legar spurningar sem Beckett spyr í þessu verki,“ segir Þorsteinn. „Það er mikið tekið á hringrás lífsins, upphafi og endi og sömu stefin og tilbrigðin endurtekin í sífellu. Verkið er skrifað eins og tónverk. Það er að leikgerðin er nánast grafin í stein hjá Beckett. Það er allt fyrirskipað í handritinu, hvert einasta skref, og það er hans stíll,“ segir Þorsteinn. „Það er gríðar- leg nákvæmni. Það er eitthvað frelsi innan rammans, en ramminn er mjög stífur,“ segir hann. „Þetta er fyrir leikara eins og að spila Píanókonsert nr 3 eftir Rachmaninoff.“ Aðrir leikarar í sýningunni er þau Þór Tulinius, Stefán Jónsson og Harpa Arnardóttir. Leikstjóri er Kristín Jó- hannesdóttir. „Þó rammi Becketts sé þröngur þá leggur Kristín til alla myndrænu hlið verksins og hún sér þetta með sínum augum,“ segir Þor- steinn. „Hún er mjög myndrænn leikstjóri og þetta er mjög spennandi útfærsla. Mikið listfengi,“ segir hann. „Það er gríðarlega gefandi að vinna með henni. Verkið er mikið drama en samt gríðarlega kómískt,“ segir Þor- steinn. „Beckett sagði alltaf að ekkert væri jafn hlægilegt og óhamingjan, sem er kannski rétt.“ Verkið er sýnt í Tjarnarbíói og fyrir- hugaðar eru tíu sýningar í maí. Þor- steinn er annars nýkominn úr tökum á sjónvarpsseríunni Ófærð og er nýbyrjaður í annarri. „Ég var að klára Ófærð, já, og er að byrja í Rétti. Það er alltaf nóg að gera, segir hann. Ég kenni líka á milli verkefna og svo á ég von á barni,“ segir Þorsteinn Bach- mann leikari. Allar nánari upplýsingar um Enda- tafl má finna á www.tjarnarbio.is Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is  leiklisT samuel BeckeTT í TjarnarBíói Frelsi innan rammans – en ramminn er stífur Leikhópurinn Svipir frumsýnir leikritið Endatafl eftir Samu- el Beckett í Tjarnar- bíói í kvöld, 1.maí. Í kynningartexta segir að betur og sterkar en nokkur önnur leikverk fjalli Endatafl um fánýti tilverunnar með hjartanlegri kímni og djúpri hlýju. Einn leikara sýningar- innar, Þorsteinn Bachmann, segir leikritið fjalla um lífið sjálft og allar þær spurningar sem það veki. Beckett taki á því hlutverki að vera manneskja og hvað hún geri til þess að takast á við tilvist sína. Þorsteinn Bachmann í hlutverki sínu í Endatafli eftir Samuel Beckett. 70 menning Helgin 1.-3. maí 2015

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.