Allt um íþróttir - 01.12.1951, Síða 3
ALLTUM ÍÞRÓTTIR
TÍMARIT UM INNLENDAR DG ERLENDAR ÍÞRDTTIR
RITSTJDRAR :
RABNAR INBDLFS5DN □□ ÖRN EIÐSSDN
ÁBYRGÐARMAÐUR:
□ ÍSLI ÁSMUNDSSQN
UTANÁSKRIFT:
TÍMARITIÐ ÍÞRDTTIR,
DRÁPUHLÍÐ 32
11.-12. HEFTI NDV.-DES. II. ÁRG.
Þáð er alkunnugt, að erfiðleik-
ar á útgáfu íþróttablaða hérlendis
eru miklir, en þó hafa margir sýnt
lofsverða viðleitni með að halda
úti slíkum ritum, en tekizt mis-
jafnlega, einkum vegna takmark-
aðs lesendahóps. Aðeins tvö blöð
um íþróttir koma nú út á íslandi,
„Allt um íþróttir" og „íþróttablað-
ið“, hvorttveggja mánaðarrit.
Útgefendum hins fyrrnefnda er
það mikið gleðiefni, hve íþrótta-
unnendur hafa tekið vel þeim
tveimur árgöngum, sem út hafa
komið, og vænta því þess að geta
enn aukið á fjölbreytni efnisins,
þá þriðji árgangur hefur göngu
sína. Annars vona þeir að lesend-
ur sjálfir komi með tillögur um
efnisval, því oft er erfitt að gera
svo öllum líki, og er ekki ósenni-
legt, að einhverjir geti gefið góð-
ar bendingar um þætti, sem allir
hefðu gaman af að lesa. T.d. var
ritstj. nýlega bent á, að þáttur um
félagsmál væri nauðsynlegur, þar
sem birt væri, hvað væri að ske
innan íþróttasamtakanna, hvað
gera þyrfti til úrbóta eða þá al-
menn gagnrýni um þessi mál.
Vissulega er margt rætt og fram-
kvæmt fnnan þessara samtaka,
sem aðeins fáum er kunnugt, og
ennþá meira, sem ekki er gert, en
er þó brýn nauðsyn. Með slíkum
þætti verður án efa komið inn á
áhugamál allra íþróttaunnenda og
mun hann hefjast í 1. hefti þriðja
árgangs.
Um leið og þessum árgangi lýk-
ur, vilja útgefendur óska öllum
kaupendum og velvildarmönnum
gleðilegra jóla og farsæls komandi
árs, með þökk fyrir liðið ár og
vona að áframhald verði á vin-
samlegum samskiptum í hvívetna.