Allt um íþróttir - 01.12.1951, Blaðsíða 32

Allt um íþróttir - 01.12.1951, Blaðsíða 32
„Það er rétt.“ „Jæja, hver sem heldur að ég ætli með honum,“ segir Alex æfur af reiði, „honum skjátlast hrapar- lega.“ „Fyrirskipun frá Chapman", svarar Tom rólega. Alex hélt um borð. Mér er vel Ijóst, hve ríkan þátt James átti í þeijn árangri, sem ég náði sem vinstri útherji. Það var hreinasta unun að leika við hlið hans. Við skildum hvom annan næstum til hlítar. Ég átti auðvelt með að skilja fyrirætlanir hans, þótt aðrir samherjar hans ættu örðugt með það, eftir því sem Alex sagði mér. Hann hélt sig langt inni á velli og gaf mér með því rúmgott athafnasvæði. Lengst af var hann á hnotskóg eftir lausum sendingum á hægri vallarhelmingi, meðan ég var einn um hituna okk- ar megin og hélt mig um 15 m. frá hliðarlínunni. Um leið og Alex fékk knöttinn, sendi hann hann yfir til mín og lék honum stytztu leið í áttina að marki andstæð- inganna, eins hratt og ég komst. Hann breytti oft um og lék knettinum með hámákvæmri send- ingu inn fyrir bakvörðinn og ætl- aði mér að hlaupa inn fyrir og ná knettinum. Alex var snillingur í að skipta leikum milli sóknararmanna, og þess vegna fékk hægri útherjinn næstum jafnmargar sendingar frá honum og ég. Þversendingar hans yfir til hægri voru einnig ótrúlega nákvæmar. Ég hef séð hann taka við markspymu í um metra hæð og senda knöttinn umsvifalaust fyrir fætur hægri útherja hinum megin á vellnium. James vissi nákvæmlega hve lengi hann átti að halda knettin- um áður en hann sendi hann frá sér, en það er eiginleiki, sem flest- ir leikmenn vita ekki hvað er, því að þeir annað hvort senda knött- inn strax til samherja, áður en þeir hafa dregið að sér andstæð- ing, eða leika knettinum of lengi og missa hann síðar um síðir. Að auki var Alex einn fljótasti leik- maður, sem ég þekkti á 10 m. sprettum. En hvort hann hefði haldið út 100 metra, er mjög vafa- samt. En það eru stuttu sprettirn- ir, sem skipta mestu máli og þar var hann ekkert lamb að leika sér við. Alex er fæddur í Bellshill í Skot- landi og var aldrei svo lánsamur að njóta verulegrar undirstöðu- menntunar. Enda þótt hann hafi skapað sér ódauðlega frægð sem knattspyrnumaður, er mér nær að halda, að honum hefði orðið meir úr þeim tækifærum, sem honum buðust, hefði hann hlotið slíka menntun. En hvað um það, hins litla, óút- reiknanlega og snjalla leikmanns í síðu buxunum með flöktandi erm- arnar verður minnzt svo lengi sem knetti verður spyrnt. 390 IÞRÓTTIR

x

Allt um íþróttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.