Allt um íþróttir - 01.12.1951, Blaðsíða 5

Allt um íþróttir - 01.12.1951, Blaðsíða 5
mæli Jóhanns Bemhards, sem hann ritaði í júlí-hefti þessa rits um þriggja landa keppnina, og sýna ljóslega, hve mikilvægur sig- ur Arnar varð í þessari fyrstu grein keppnanna: „Mörgum á óvart fór Öm (á 2. braut) varlega af stað, en Ingi (á 5. br.) tók strax forystuna og geystist fram úr Borgersen á 6. braut. Er leið á hlaupið fór Öm að vinna á smátt og smátt og gætti þess jafnframt, að hættulegasti keppinauturinn, Torben Johanne- sen, er var á 1. braut, færi ekki fram úr. Á miðri síðari beygjunni hafði Ingi enn forystuna og leit þá jafnvel út fyrir tvöfaldan sig- ur íslands, því nú fór Öm fram úr öllum nema Torben, sem hékk enn í honum. Næst síðustu grind felldi Daninn hins vegar og sást þá, að hann átti lítið eftir. Öm var nú kominn greinilega á undan og ein grind eftir. Æ, þama felldi hann grind í fyrsta sinn. Hann lætur það samt ekkert á sig fá og lýkur hlaupinu, sem öruggur sigurvegari á nýju ísl. meti, dauðþreyttur en ákveðinn. Torben kom svo 2—3 metrum á eftir og þá Ingi, sem hafði komið mjög á óvart, á und- an báðum Norðmönnunum. Til- raunin með Öm hafði heppnazt 100% og Ingi komið skemmtilega á óvart. ísland hafði tekið foryst- una í landskeppnunum. — Þessi óvænta og glæsilega byrjun hefur eflaust haft sín góðu áhrif á bar- áttuvilja landanna, en jafnframt lamað mótstöðuafl keppinautanna, sem urðu þama fyrir miklum von- brigðum.“ Eftir landskeppnimar fór Öm ásamt fleiri félögum sínum í keppnisferðalag um Svíþjóð og síðar Bretland. Lyktaði þeirri frægðarför með því, að hann varð þriðji í 110 m. grindahlaupi brezka meistaramótsins, sem jafnan taka þátt í afbragðs íþróttamenn frá mörgum löndum. En þótt öm Clausen hefði unn- ið mikil afrek það sem af var sumr- inu, þá átti hann eftir að lyfta Grettistaki, sem skipaði honum á bekk með beztu íþróttamönnum í IÞRÓTTIR 363

x

Allt um íþróttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.