Allt um íþróttir - 01.12.1951, Blaðsíða 31

Allt um íþróttir - 01.12.1951, Blaðsíða 31
en þar eð hann var rúmum áratug eldri en ég, gerði ég ráð fyrir, að röðin mundi að lokum koma að mér. Að við mundum um síðir leika saman á vinstra sóknararmi, flaug mér ekki einu sinni í hug, er ég á fyrstu æfingunni á High- bury hitti fyrir lágvaxinn mann, sem kynnti sig á hinni lítt skiljan- legu skozku mállýzku sem Alex James. Enda þótt á vellinum hafi komizt á ágætur skilningur og samvinna með okkur, hefur mér ávallt þótt James heldur torskilinn utan vallarins! Það fyrsta, sem ég varð var við í fari James, var hið óumræðilega sjálfstraust hanns. Enginn hafði meiri trú á hæfileikum Alex James en Alex sjálfur — ekki einu sinni Herbert Chapman. Og hann þurfti alls sjálfstrausts með fyrstu mán- uðina á Highbury, því að hann var lengi að venjast þar. Chapman vildi gera hann að skipuleggjara og taktiker liðsins, þar sem Alex hafði aftur á móti hjá Preston skapað sér orð sem markaskytta. Um síðir varð hann þó eins og alkunna er, einn bezti uppbyggjari sem nokkurt lið hefur átt — laun sjálfstrausts hans og framsýni Chapmans. Sjálfstraust hans á leikvelli kom fram í hinum sífelldu hrópum hans eftir knettinum. Alex gerði sér engar grillur út af getu sinni og hæfileikum. Honum var vel ljóst, að strax og hann kæmist yfir knöttinn, mundi honum beitt eins og bezt varð á kosið. Samt skyldi enginn ætla, að hann hafi verið sjálfbyrgingslegur. Hann var þvert á móti. Alex var „individualisti“ eins og þeir gerðust mestir á 19. öld. Ut- an vallar vildi ég sagt hafa, en ekki innan. Þegar Arsenal átti að leika á norðurhéruðunum og liðið hélt til á hótelum, var það undan- tekning, ef hann var kominn á fætur fyrir hádegi daginn, sem átti að leika. Enginn annar fékk slík sérréttindi. En við töldum ekki eftir hina löngu bóllegu hans, því að við gátum ekki ætlazt til að snillingar hagi sér eins og hverj- ir aðrir leikmenn. Og að auk var Alex vel vaknaður, þegar leikur skyldi hafinn. Margar og margvíslegar eru þær sögur, sem af honum eru sagð- ar. Eina ætla ég að láta nægja að sinni. Eitt sinn á starfsskeiði Alex hjá Arsenal, ákvað Herbert Chap- mann, að Alex þyrfti loftslags- breytingu, þvi að hann væri úr æf- ingu. Hann tilkynnti honum því, að hann mundi sendur í sjóferð á kostnað félagsins. Alex kom strax í hug Queen Mary eða önnur fljót- andi hótel með hljómsveitum, sundlaugum og kvikmyndasölum. Skömmu eftir að söguhetjan fékk þessa gleðifregn, er hún stödd á hafnarbakka ásamt þjálfaranum, Tom Whittaker, sem falið hafði verið að kveðja hana. „Með hvaða skipi á ég að fara?“ spurði Alex. „Þessu þama“, svaraði Whit- taker. Alex virðir það fyrir sér. Hann skoðar það aftur. „Hvað, með þess- um skítuga, litla flutningadalli?“ IÞRÓTTIR 389

x

Allt um íþróttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.