Allt um íþróttir - 01.12.1951, Blaðsíða 46
tvo riðla. Voru Ármann, K.R., Vík-
ingur og Fram í A-riðli, en Í.R.,
Valur og Þróttur í B-riðli. Var
keppnin milli þriggja sterkustu fé-
laganna í A-riðli, Ármanns, K.R.
og Víkings, mjög jöfn og tvísýn,
og endaði með því, að þau voru
öll jöfn að stigum, en þar eð K.R.
og Ármann höfðu betri markatölu
en Víkingur og alveg hnífjafna,
urðu þau að leika aukaleik, sem
endaði með sigri K.R., 4:3, eftir
tvíframlengdan leik. — B-riðilinn
unnu ÍR-ingar of léku þeir því úr-
slitaleikinn við K.R., sem endaði
með sigri K.R., 4:3. KR-liðið er
skipað mjög jöfnum og góðum
leikmönnum, og er vafamál, hvort
betra II. fl. lið hefur sézt að Há-
. logalandi.
Úrslit í riðlunum urðu þessi:
A-riðill:
1. K.R. 3 2 0 1 14:8 4
2. Ármann 3 2 0 1 21:12 4
3. Víkingur 3 2 0 1 15:13 4
4. Fram 2 0 0 3 9:25 0
B-riðill:
1. Í.R. 2 2 0 0 18:9 4
2. Valur 2 1 0 1 15:14 2
3. Þróttur 2 0 0 2 9:19 0
í sambandi við keppnina í þess-
um flokki er rétt að geta þess, að
í tveim leikjum í A-riðli komu þau
atvik fyrir, að mörk voru skoruð
í enda leiks, þ. e. eftir að tíma-
vörður blés til leiksloka, en áður
en dómari endurtók merkið.
í annað skiptið var markið dæmt
löglega skorað, en í hitt skiptið
ekki. Hefði verið farið rétt að í
bæði skiptin og hvorugt markið
dæmt löglega skorað (mörkin
komu ekki upp úr auka- eða víta-
kasti), hefði Ármann unnið A-rið-
ilinn og þar með líklega mótið.
III. flokkur karla.
Fimm félög tóku þátt í HI. fl.
karla: Ármann, Fram, K.R., Val-
ur og Víkingur. Voru lið fjögra
fyrsttöldu félaganna ágæt, en lið
Víkings lélegt.
K.R. bar sigur úr býtum, þrátt
fyrir það, að Ármann „burstaði"
það með 5:0.
Úrslit í þessum flokki urðu ann-
ars þessi:
1. K.R. 4 3 0 1 15:10 6
2. Fram 4 3 0 1 14:14 6
3. Valur 4 2 0 2 16:8 4
4. Ármann 4 2 0 2 22:11 4
5. Víkingur 4 0 0 4 7:31 0
Vel dæmt mót.
Það er mál- manna, er fylgdust
með þessu móti, að það hafi ver-
ið bezt dæmda handknattleiksmót,
sem haldið hefur verið um langan
tíma. Ber vissulega að fagna því
og sérstaklega vegna þess, að
margir nýir, ungir og efnilegir
dómarar komu þarna fram í fyrsta
sinn. Er hér um að ræða árangur
af nýloknu dómaranámskeiði.
Handknattleiksráð Reykjavíkur
sá um mótið og tókst það vel.
404
IÞRÖTTIR