Allt um íþróttir - 01.12.1951, Blaðsíða 33

Allt um íþróttir - 01.12.1951, Blaðsíða 33
Heimsmeistarar í skák — VI: Alexander Alexandrovitch Alekhine. Á síðustu áratugum 19. aldar var komið á mjög blómlegt skák- líf í Rússlandi. Kom þaðan hver skákmeistarinn öðrum fremri. Hæst bar Tchigorin, sem háði ein- vígi við Steinitz um heimsmeist- aratitilinn 1888, en án árangurs, Rubinstein, Nimzovitch og Alex- ander Alekhine. Alekhine var fæddur 1. nóv. 1892 í Moskvu og af vellauðugum ætt- um kominn. Hann var ungur sett- ur til mennta, en jafnhliða vann hann að því að þroska hina frá- bæru skákhæfileika sína og 16 ára var hann viðurkenndur skákmeist- ari. Aðeins 18 ára lagði hann út í heiminn til fyrsta alþjóðamótsins, í Hamborg 1910, og náði góðum árangri, fékk 8y2 vinning af 16. Alekhine var nú kominn í „laga- skóla aðalsmanna“ í St. Pétursborg og hafði því ekki tíma aflögu til mikilla skákiðkana. Hann tók þó þátt í einu stórmóti á ári fram að styrjöldinni, við sífellt vaxandi orðstír. Fyrsta sigur sinn í stór- móti hlaíit hann í Stokkhólmi 1912. Árið eftir bar hann aftur sigur úr býtum í sterku móti í Scheven- ingen í Hollandi og sama ár varð hann efstur ásamt Nimzowitch í rússneska meistaramótinu. Hon- um var því boðið ásamt sterkustu skákmeisturum heimsins til hins mikla skákmóts í St. Pétursborg 1914, þar sem hann varð 3. á eftir Lasker og Capablanca. Síðla sumars sama ár var hann á góðri leið með að sigra í móti í Mannheim í Þýzkalandi, er ófrið- urinn brauzt út. Hann var hand- tekinn ásamt öðrum rússneskum þátttakanda, sem síðar átti eftir að koma við sögu í skákferli Alek- hines, en það var Bogoljubov. Alekhine tókst að flýja til Sviss og komst heim um Síberíu og gekk í herinn. Hann hafði særzt tvisvar, er síðara höggið féll! Sem yfir- stéttarmaður hafði hann litla von með að komast heill á húfi í gegn- um byltinguna, en sagt er að skák- in hafi bjargað honum yfir það versta. Árið 1921 fékk hann leyfi til að taka þátt í skákmóti í Þýzkalandi, og hvarf hann aldrei aftur heim til Rússlands. Hann settist að í París og tók þátt í hverju stór- mótinu á fætur öðru, til að vinna sér rétt til einvígis um heimsmeist- aratitilinn. Fram að einvíginu við Capablanca 1927 tók hann þátt í 19 mótum og hlaut í 11 fyrsta sæt- ið. Jafnhliða stundaði hann laga- nám í París og tók doktorsgráðu, sem sýnir ljóslega hina miklu starfskrafta hans. Árið 1927 var stofnað til móts IÞRÓTTIR 391

x

Allt um íþróttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.