Allt um íþróttir - 01.12.1951, Side 9
þenon-hofið á Akropolishæð, enda
var ágætt útsýni þaðan yfir Aþenu
og Piræus, hafnarborg hennar.
Daginn áður en ég fór frá Grikk-
landi, fór ég, ásamt Sheurer, sviss-
neska tugþrautarmanninum, í boði
svissneska sendiherrans, út til
Korinthueiðisins að synda, og var
leiðin þangað dásamlega falleg.
Miðjarðarhafið er mjög heitt og
salt á þessum slóðum, og vegna
seltunnar er ákaflega létt að halda
sér uppi í sjónum.
Keppnin hófst, á gamla Ólym-
píuvellinum fimmtudagskvöldið
16. ágúst, með keppni í 110 metra
grindahlaupi. Áhorfendur voru all-
margir, eða tæplega 40.000.
Ég sigraði í grindahlaupinu á
15.4 sek., en annar varð Bemard
frá Sviss á sama tíma, og þriðji
Grikki, sem ég man ekki hvað
heitir, á 15.5. Sama kvöldið tók
ég þátt í kúluvarpi og varð f jórði,
með 13.20 m.
Daginn eftir keppti ég í kringlu-
kasti og kastaði rúmlega 40y2 m.,
sem þó ekki nægði nema í 7. eða
8. sæti. Sama kvöldið tók ég þátt
í langstökki, en marði mig á hæln-
um í fyrsta stökki, og varð að
hætta við svo búið. Sá, sem vann,
stökk 6.94 m., en ég varð þriðji
með 6.74 m., sem er sama og sá,
er varð annar, stökk.
Áhorfendur virtust allæstir. Það
kom nokkrum sinnum fyrir, að lög-
reglan, vopnuð byssum, varð að
stilla til friðar á áihorfendapöll-
unum.
Eitt sinn, er ég var úti á vell-
inum, sá ég hvar Grikki nokkur
kom hlaupandi í áttina til mín,
með tvo lögregluþjóna á hælunum
á sér. Þeir náðu honum rétt áður
en hann komst til mín. Sló nú í
hörkurifrildi, og loksins fékk hann
leyfi til að koma til mín og gefa
mér mjög fallegt litað póstkort af
Akropolishæð, og var það allt er-
indið, sem hann átti við mig.
Ég vil geta þess, að opnunar-
hátíð leikanna var mjög hátíðleg.
Fyrst komu allmargar grískar
stúlkur, klæddar eins og hinar
fomu gyðjur, í röð inn á leikvang-
inn og héldu á olífuviðarsveigum
(ekki lárviðarsveigum) þeim, er
sigurverunum voru síðar afhentir.
Á meðan var leikin fomgrísk tón-
list á ævagamla lúðra. Því næst
kom hlauparinn með Ólympíu-
kyndilinn, sem kveikt hafði verið
á með sólargeislum þá um dag-
inn á Stjómarskrártorginu svo-
kallaða, og kveikti hann á Ólym-
píualtarinu.
Verðlaunaafhendingin var einn-
ig mjög hátíðleg. Sigurvegaramir
fengu olífuviðarsveiga og verð-
launapeninga, auk „Diploms“ og
veggskjaldar með mynd af vemd-
argyðju Aþenuborgar, Mínervu.
Daginn eftir að ég kom til
Aþenu, hafði ég fengið ákafa
magaveiki, sem ég var með allan
tímann í Grikklandi, og jafnvel
eftir að ég kom til Parísar.
10. september veiktist ég í Lon-
don af Paratyfus (taugaveikis-
bróður), sem ensku læknamir
töldu að ég hefði smitazt af í
Grikklandi, því að ég drakk vatn-
ið úr krananum í hótelherberginu.
ÍÞRCTTIR
367