Allt um íþróttir - 01.12.1951, Side 11
sex göngumenn, og eru þeir þátt-
takendur í fyrsta skipti á móti er-
lendis. Ráðgert er, að tveir taki
þátt í 18 km. göngu og fjórir í
boðgöngu. Þeir eru frá ísafirði og
úr Þingeyjarsýslu göngumennirn-
ir og heita Gunnar Pétursson,
Oddur Pétursson og Ebenezer Þór-
lsfiröingarnir Ebenezer Þórarinsson, Oddur og Gunnar Péturssynir.
arinsson (þeir eru ísfirðingar), og
Jón Kristjánsson, Matthías Krist-
jánsson og ívar Stefánsson.
Þeir munu fara til Noregs um
mánuði fyrir leikana til þess að
kynnast landslagi og öðrum kring-
umstæðum, svo og til frekari þjálf-
unar. Hérlendis hafa þeir notið til-
sagnar norsks göngukennara, I.
Tenmans að nafni, en hann var hér
í fyrravetur og kom hingað aftur
í byrjun október og hóf þá þegar
að þjálfa þessa væntanlegu Ólym-
píukeppendur.
' Tenman hefur látið í veðri vaka,
að þeir muni koma á óvart með
getu sinni. Betra að svo væri.
Þrír keppa í Alpa-greinunum.
Það er mjög vafasamt, að þeir,
sem eiga að keppa í Alpa-grein-
unum, verði komnir í nægilega
góða þjálfun til þess að keppa á
alþjóðlegu móti, sem hefst svo
snemma vetrar. Því ræður tíðar-
farið, sérstaklega hvað Reykvík-
ingana snertir, en þeir verða tveir,
sem taka eiga þátt í þessum leik-
um, Ásgeir Eyjólfsson og Stefán
Kristjánsson. ísfirðingurinn Hauk-
IÞRÖTTIR
369