Allt um íþróttir - 01.12.1951, Side 13
Vinsamleg ummœli
um íslenzka íþróttamenn.
í októberhefti hins bandaríska
íþróttablaðs „Amateur Athlete"
birtist ágæt grein um ísland og
íslenzka íþróttamenn, eftir Frank
Sevigne, en hann þjálfaði frjáls-
íþróttamenn okkar um tíma s.l.
sumar. Þetta blað er gefið út af
bandaríska frjálsíþróttasamband-
inu, en ritstjóri þess er Daniel J.
Ferris. Greinin er skrifuð af svo
miklum skilningi og velvild í garð
okkar, að við munum birta hér
útdrátt úr henni:
„Nýafstaðin ferð mín til íslands
var vafalaust ein sú skemmtileg-
asta og merkilegasta, sem eg hef
farið á kennaraferli mínum. Þegar
ég var spurður, hvort ég hefði á-
huga á þessari ferð, var álit mitt
á landinu, að það væri land ísa og
snjóa. En gagnstætt áliti mínu og
margra annarra, er það land fall-
egra f jalla og fljóta og þar er milt
loftslag. Ef við hugleiðum lítinn
íbúaf jölda landsins, aðeins 150 þús-
und, hljótum við að undrast yfir
hinum mikla fjölda afreksmanna,
sem þar eru. Forystumenn frjáls-
íþróttamálanna eru þeir Garðar
S. Gíslason og Jóhann Bemhard;
vinna þeir þar ágætt starf. Aðal-
þjálfaramir eru þeir Benedikt Jak-
obsson og Stefán Kristjánsson.
Um leið og við dáumst að ís-
lenzku íþróttamönnunum, verðum
IÞRÓTTIR
við að hafa það í huga, að erfitt
er að æfa vegna þess, að þar eru
aðeins tvær árstíðir, sumar og vet-
ur. Það er í byrjun apríl, sem hægt
er að hefja alvarlegar útiæfingar.
Keppnir hefjast ekki fyrri en um
miðjan maí, þar sem innanhúss-
mót eru engin.
Flestir beztu afreksmenn okkar
eru í háskóla, en þeir íslenzku em
flestir giftir og vinna allan dag-
inn. Síðan æfa þeir seinni hluta
dagsins, aftur á móti geta okkar
menn æft um miðjan daginn. En
íslenzku frjálsíþróttamennirnir
ættu að nota hverja helgi til að
keppa. Þá vantar meiri keppni, hún
þroskar þá mest.
Eins og flest önnur lönd, ætla
íslendingar að keppa á Ólympíu-
leikunum og munu þeir standa sig
mjög vel í nokkrum greinum. —
Þessir íþróttamenn koma til með
að standa sig bezt:
Öm Clausen hefur mikla mögu-
leika til að verða meðal þriggja
fyrstu í tugþraut. Hann á Norður-
landametið 7453 stig, er 23ja ára
og mun bæta sig mikið í tug-
þrautinni.
Haukur, tvíburabróðir Amar,
hefur hlaupið 100 m. á 10.6 og
200 m. á 21.3. Að mínu áiliti get-
ur hann hlaupið 400 m. á 47.0, ef
hann tæki til við að æfa þá grein.
371