Allt um íþróttir - 01.12.1951, Síða 17
Hann keppti fyrir íslands hönd á
Ólympíuleikunum 1936 og stóð sig
þar með ágætum. Komst hann í
aðalkeppnina í þrístökkinu, stökk
14 metra, sem var nýtt met.
Af þeim frjálsíþróttamönnum í
Eyjum, sem nú eru mest áberandi,
má nefna Kristleif Magnússon, er
getið hefur sér góðan orðstír sem
alhliða stökkvari. Eins og kunn-
ugt er, bar hann sigur úr býtum
í landskeppninni við Dani 1950, í
þrístökki, en lengst hefur hann
stokkið 14.50 m., nú á s.l. hausti.
Adolf Óskarsson landsliðsmaður í
spjótkasti, er mjög fjölhæfur
íþróttamaður. Þá eru þeir Eggert
Sigurlásson og Rafn Sigurðsson,
sem eru efnilegir millivegalengda-
hlauparar og eru bundnar við þá
miklar vonir.
Þá eiga Vestmanneyingar ágætis
spretthlaupara. Friðrik Hjörleifs-
son, sem er sjómaður,, hljóp í
sumar með mánaðaræfingu að baki
á 11.2 sek., sem nægði til að sýna,
að mikið efni býr í honum. Eiríkur
Guðnason, sem enn er drengur,
hljóp á 11.4 sek., en hefur einnig
reynzt vel liðtækur í öðrum íþrótt-
um. Þá má ekki gleyma Símoni
Waagfjörð, sem í fjöldamörg ár
hefur verið í hópi beztu sleggju-
kastara landsins og lætur lítið á
sjá, þrátt fyrir litla æfingu. Sama
máli gegnir um Karl Jónsson, sem
oftar en nokkur annar íslendingur
hefur átt íslandsmet í sleggju-
kasti. Þótt hann sé nú hættur að
æfa, er hann litlu lakari en þegar
hann stóð í sínum mesta blóma.
Þá er Kári Óskarsson efnilegur
kringlukastari og líklegur til af-
reka í þeirri grein. Jón Bryngeirs-
son kom sannarlega á óvart á
meistaramótinu 1950, þar sem
hann kom fram gersamlega
óþekktur og stökk 13.64 m. í þrí-
stökki og varð annar. Þetta sýndi
glöggt, hvað í honum bjó, en því
miður hefur Jón haft mjög tak-
markaðar aðstæður til æfinga,
jafnt vetur sem sumar. Á síðast-
liðnu sumri kom fyrir eftirtektar-
vert atvik. Sjómaður nokkur, Jó-
hann Björgvinsson, æfði íþróttir
nokkuð árið 1948, en varð síðan
atvinnu sinnar vegna að draga sig
í hlé. í sumar tók Jóhann þátt í
kúluvarpskeppni á innanfélags-
móti Týs. Kom hann þar öllum á
óvart, þó líklega mest sjálfum sér,
því hann gekk með sigur af hólmi,
varpaði 13.41 m., sem er prýðis-
afrek, ekki sízt, sé það skoðað í
ljósi þess, að Jóhann hafði ekki
komið á eina einustu æfingu í 3 ár.
Þetta gefur okkur til kynna, að
efniviðurinn liggur víða falinn,
jafnvel þar sem sízt skyldi ætla.
Áhugi fyrir frjálsíþróttum er nú
mikill í Eyjum, mikill og góður
efniviður, ekki sízt hjá yngstu kyn-
slóðinni. Það kæmi mér ekki á
óvart, þótt einhverjir hinna kom-
ungu stráka, sem tekið hafa að
leggja leið sína inn í Herjólfsdal
til íþróttaiðkana, eigi eftir að vekja
eftirtekt í framtíðinni, er þeim
vex kraftur.
Áhugi fyrir handknattleik er
mikill í Eyjum, einkum meðal
kvenþjóðarinnar. Hafa þær jafnan
átt mjög góðum liðum á að skipa
IÞRÓTTIR
375