Allt um íþróttir - 01.12.1951, Side 40
Nítjánda skákmeistaramótið í Rússlandi
19. skákmeistaramótið í Rúss-
landi er nýbyrjað í Moskvu. Þátt-
takendur eru 18 að tölu, þeirra á
meðal stórmeistaramir Botvinnik,
Bronstein, Keres, Smyslov og Bon-
darevskij, og er Boleslavskij sá
eini af stórmeisturunum, sem ekki
getur tekið þátt í mótinu. Mikill
f jöldi áhorfenda fylgist með skák-
unum og áhugi fyrir mótinu er
geysimikill. Sigurvegarinn hlýtur
gullpening að launum, en fyrir
yngri mennina skiptir mestu máli
að verða framarlega og ná stór-
meistaratign, til þess að fá rétt
til þátttöku í úrtökumóti fyrir
heimsmeistaramótið, sem fram fer
í Stokkhólmi næsta ár.
Strax í fyrstu umferð mótsins
komu fram skemmtilegar skákir.
Heimsmeistarinn Botvinnik átti
fullt í fangi með Moisejev og var
lengi talið, að hann yrði að sætta
sig við jafntefli. Botvinnik tókst
hins vegar að hagnýta sér lítils
háttar betri stöðu og sigra. í ann-
arri umferð tefldi Botvinnik á
móti Flohr og fór sú skák í bið
og var þá staðan mjög jöfn. Keres,
sem nú ver titil sinn sem Rúss-
landsmeistari, kom í fyrstu umferð
mjög á óvart með því að leika af-
brigði af Sikileyjarleik, sem hefur
verið talið fræðilega óhagstætt, en
tókst þó að lokum að sigra Tjerpu-
gov. Smyslov sigraði Heller. í
fyrstu umferð vakti einna mesta
athygli skákin milli Bronsteins og
Kotovs. Kotov hafði svart og sigr-
aði Bronstein. Þegar skákin fór í
bið hafði Kotov unnið riddara af
Bronstein.
Hér fylgir hin skemmtilega skák
þeirra Bronsteins og Kotovs.
Bronstein var með hvítt, og er
þeir höfðu leikið 40 leiki, var stað-
an þessi:
Hvítt (Bronstein): Kgl, Hdl og
el, Bfl, Rb6, peð á d7, e4, g3 og
h3. — Svart (Kotov): Kg8, Hd8
og f7, Be6 og h6, peð á b5, c5, e5,
g6 og h7.
Áframhaldið varð á þessa leið:
41. Bc4—fl c5—c4
42. Kgl—g2 Kg8—g7
43. g3—g4 Bh6—g5
44. Hdl—d6 Be6Xd7
Frh. á bls. 390.
Á næstu síðu er myndgáta, sem
lesendur geta spreytt sig á yfir
jólin.
Aðra skýringu þarf ekki að gefa
á gátunni en þá, að úr henni á að
lesa setningu, sem snertir íþróttir.
Ákveðið er að veita tvenn verð-
laun fyrir rétta ráðningu og verð-
ur dregið milli réttra ráðninga.
1. verðlaun: Allt um írþóttir frá
upphafi (tveir árgangar) og frí
áskrift fyrir III. árg. ritsins.
2. verðlaun: Frí áskrift fyrir
næsta ár.
398
IÞRÓTTIR