Allt um íþróttir - 01.12.1951, Qupperneq 48

Allt um íþróttir - 01.12.1951, Qupperneq 48
Sundmeistaramót Reykjavíkur 1951. Á þessu móti var keppni all- hörð í nokkrum greinum, en ár- angurinn lakari en búast hefði mátt við. SigurÖur Jónsson, KR Sigurður Jónsson, K.R., varð tvöfaldur meistari með því að sigra í 200 m. bringusundi og 100 m. flugsundi. Pétur Kristjánsson, Á., lék þetta einnig eftir. Hann sigraði Ara greinilega í 100 m. skriðsundi á 62.9 gegn 63.8, en Ólaf Guðmundsson í 100 m. bak- sundi 1:20.2 gegn 1:20.3. Ari sigr- aði svo í 400 m. skriðsundi og Þór- dís Ámadóttir í 200 m. bringu- sundi kvenna og Helga Haralds- dóttir í 100 m. skriðsundi kvenna. ur er með 2 í þriðja úrslitadálki. Hver réttilega og fullkomlega út- fylltur aðaldálkur er sjálfstæð ágizkun, og hlýtur sá, er gizkað hefur rétt á flesta leiki í einhverj- um aðaldálka sinna, 3. árgang rits- ins í verðlaun. 406 ÍÞRÓTTAGETRAUNIR. Loks er svo komið, að fyrirsjá- anleg er starfræksla íþróttaget- rauna hér á landi. Mun sú starf- semi hefjast í marz n.k. og hefur Jens Guðbjörnsson, formaður Ár- manns, verið ráðinu framkvæmda- stjóri. íþróttanefnd ríkisins kallaði ný- lega blaðamenn á fund sinn og skýrði frá fyrirætlunum og mála- vöxtum, en hún hefur haft þetta mál til meðferðar í 11 ár. Hyggur hún gott til veðmálanna og hyggst greiða stofnkostnað allan eftir fyrsta árið, en hún telur, að svo vinsælt verði þetta, að á þeim tíma verði hluti hennar allt að kr. 500.000,00. Enginn vafi leikur á því, að get- raunir þessar verða vinsælar og þátttaka mikil, og er það ósk íþróttamanna, að svo verði, enda hefur undanfarin ár verið hamrað á því, að fyrrgreint fyrirtæki yrði sett á stofn til f járöflunar íþrótta- samtökunum. ALLT UM ÍÞRÓTTIR mun strax á næsta ári byrja með kennslu- þætti um íþróttagetraunir. Ólympíufréttir. Chile ætlar að senda 100 þátt- takendur á Ólympíuleikana í Hels- ingfors. Það verða frjálsíþrótta- menn, körfuknattleiksmenn, hnefa- leikarar og hjólreiðamenn, sem keppa fyrir Chile. Ríkisstjóm landsins hefur styrkt þessa för með 100 milljónum „pesos“. IÞRÓTTIR

x

Allt um íþróttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.