Allt um íþróttir - 01.12.1951, Side 49
Bretland.
Því hafði verið spáð,
að enska landsliðið færi
halloka fyrir því austur-
ríkska á Wembley þann 28. okt.,
en þrátt fyrir það, að enska liðið
þyrfti að skipa 4 varamönnum
vegna forfalla, hafði það lengst af
yfirhönd, sérstaklega í fyrri hálf-
leik, sem þó lyktaði með 0-0. Strax
á fyrstu mín. eftir hlé tókst Aust-
urríkismönnum að skora, en um
miðjan hálfleik skoruðu Englend-
ingar tvisvar, það fyrra úr víta-
spyrnu. Síðustu mínútumar sóttu
Austurríkismenn ákaft og tókst
að jafna úr vítaspyrnu, sem vinstri
bakvörður Englendinga gerði með
því að slá knöttinn á marklínunni.
Englendingar eru því eftir sem áð-
ur ósigraðir af liðum utan Bret-
landseyja á heimavelli.
Wales hefur eftir sigur sinn yfir
Skotlandi og jafntefli gegn Eng-
landi mikla möguleika á að hreppa
brezka titilinn, en eftir eru aðeins
tveir leikir, Wales og írlands, og
Skotlands og Englands.
Portsmouth hefur nú tekið for-
ustuna af Arsenal og m. a. sigrað
í síðustu umferðunum næstu keppi-
nauta sína, Tottenham 2-0, Bolton
0-3 og Manch. United 1-3.
Staðan er nú þessi í 1. deild:
Portsmouth 19 13 2 4 37-25 28
Arsenal 20 11 4 5 39-24 26
Bolton 19 11 4 4 32-26 26
Charlton 21 10 5 6 43-37 25
Preston 20 10 4 6 40-26 24
Manch.Utd. 20 10 4 6 41-30 24
Tottenham 20 10 4 6 38-32 24
Newcastle 19 10 3 6 48-32 23
Liverpool 20 7 8 5 29-26 22
Aston Villa 20 10 2 8 34-35 22
Derby C. 19 8 3 8 33-33 19
Blackpool 20 7 5 8 34-36 19
Wolves 18 7 4 7 40-32 18
Manch. City 19 7 4 8 27-31 18
W.B.A. 19 5 7 7 36-38 17
Burnley 20 5 7 8 23-31 17
Chelsea 19 6 310 26-35 15
Sunderland 18 5 4 9 25-30 14
Middlesbro 19 5 4 10 30-38 14
Stoke City 21 6 2 13 24-49 14
Fulham 20 3 5 12 28-41 11
Huddersf. 20 3 413 23-45 10
í 2. deild hefur Rotherham ger-
samlega komið á óvart með því að
sigra þvert liðið öðru frægara og
taka forustuna. Þetta lið kom upp
úr 3. deild í vor og virðist á góðri
leið að skella sér upp í 1. deild á
einu leiktímabili, en slíkt hefur að-
eins hent einu sinni, eða er Charl-
ton vann sig upp í 1. deild 1936,
eftir ein leiktímabils viðstöðu í
2. deild.
Neðst em aftur á móti 2 lið,
sem í fyrra börðust um efstu sæt-
in og uppgöngu í 1. deild, Coven-
try og Blackbum. Blackburn byrj-
aði einstaklega illa, fékk 6 stig í
16 fyrstu leikjunum, en hefur bætt
aðstöðuna síðustu vikurnar, eink-
um eftir að fálagið hafði keypt 2
IÞRÖTTIR
407