Allt um íþróttir - 01.12.1951, Síða 50
nýja innherja fyrir stórfé.
Úrslitaleikurinn um skozka lígu-
bikarinn fór fram fyrir nokkru og
sigraði Dundee þá Glasgow Rang-
ers með 3-2. Þeim hefur aftur á
móti vegnað illa í deildakeppninni,
Rangers er þar með 12 stig, en
Dundee hefur 9, bæði eftir 10 leiki.
Efst eru Forthfjarðarliðin East
Fife með 21 stig og Hibemian 20.
Danmörk.
Holland vann Dan-
mörk í landskeppni í
sundi fyrir skömmu með
44 stigum gegn 27. Um svipað leyti
vann Danmörk Noreg í sundi (karl-
ar) með 34—27. Báðar þessar
keppnir fóru fram í Kaupmannai-
höfn. Stærsta nafnið í þessum
keppnum var danska sundkonan
Greta Andersen, sem vann 400 m.
skriðsund á 5:06.5, sem er næst-
bezti árangur konu í þessari grein.
Heimsmetið, 5:00.1, á Ragnhild
Hveger. 100 m. vann hún á 1:05.0,
en heimsmetið er 1:04.7. Hollenzka
sundkonan Geertje Wiekma vann
100 m. baksund á 1:11.7, en heims-
metið er 1:10.9. Úrslit urðu þessi
hjá kvenfólkinu: 100 m. skriðsund:
G. Andersen, D. 1:05.0, Irma Schu-
macher, H. 1:05.9, M. Vaesser, H.
1:07.7, M. Petersen, D. 1:09.0. —
100 m. bringus.: Nel Garritsen, H.
1:19.0, J. de Groot, H. 1:22.6, M.
Petersen, D. 1:27.2, J. Hansen, D.
1:30.5. — 100 m. baksund: G. Wie-
lema, H. 1:11.7, J. de Korte, H.
1:16, R. Hveger, D. 1:17.4, R. Niel-
sen, D. 1:22.1. — 400 m. skriðs.:
G. Andersen, D. 5:06.5, Schumach-
er, H. 5:21.5, Wielema, H. 5:24.8,
M. Petersen, D. 5:28.5. — 200 m.
bringus.: Garritsen, H. 2:55.6, R.
Bruins, H. 2:58.8, K. Hedegaard,
D. 3:00.0, J. Hansen, D. 3:06.7. —
Holland vann bæði boðsundin. —
í karlakeppninni urðu úrslit þessi:
100 m. skrs.: J. Nielsen, D. 1:01.0,
P. Olesen, N. 1:01.4, R. Woldum,
N. 1:02.6, E. Olsen, D. 1:02.8. —
100 m. baks.: S. Weber, D. 1:13.0,
L. Nielsen, D. 1:13.8, E. Haugen,
N. 1:13.9, T. Pettersen, N. 1:15.2.
— 400 m. skriðs.: R. Woldum, N.
5:05.4, E. Eriksen, N. 5:06.0, E.
Christophersen, D. 5:06.5, O. L.
Petersen, D. 5:21.2. — 200 m. brs.:
K. Giele, D. 2:44.8, S. Sögaard, N.
2:49.0, T. Bamkob, D. 2:49.0, W.
Hulth, N. 2:51.2. Danir unnu bæði
boðsundin.
SPREYTTU ÞIG —!
Svör við spurningum á bls. 370.
1. 6.89 m.
2. Zdobyslaw Stawczyk (21.2).
3. Bragi Friðriksson.
4. Ari Guðmundsson.
5. K.R. vann Válerengen (3:2).
6. Umf. Ljótur.
7. 12:0.
8. Umf. Austri, Eskifirði.
9. J. P. MacLane.
10. Árið 1944 var ekki byrjað að
keppa um Reykjavíkurmeist-
aratitil í frjálsíþróttum. Það
hófst 1945.
408
ÍÞRÓTTIR