Fréttatíminn - 14.08.2015, Blaðsíða 6
Fyrir þínar
bestu stundir
Afgreiðslutími
Mán. til fös. frá kl. 10–18
Laugardaga frá kl. 11–16
www.dorma.is
Holtagörðum
512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
558 1100
Þú finnur
bæklinginn á dorma.is
MEIRA Á
dorma.is
JACKPOT
tungusófi
Aðeins 99.900 KR.
Slitsterkt áklæði, grátt eða antrasite.
Hægri og vinstri tunga.
Fullt verð: 119.900
JACKPOT
horntungusófi
Aðeins 129.900 KR.
Slitsterkt áklæði, grátt eða antrasite.
Hægri eða vinstri tunga.
Fullt verð: 159.900
JACKPOT
U-sófi
Aðeins 149.900 kr.
Slitsterkt áklæði, grátt eða antrasite.
Hægri eða vinstri tunga.
Fullt verð: 189.900 kr.
20
3
cm
276 cm
197 cm
23
0
c
m
208 cm
15
0
c
m
Skráð atvinnuleysi í júní
var 2,6%, en var 3,2% á sama
tíma í fyrra. Þetta kemur
fram í skýrslu Vinnumála-
stofnunar um stöðu á vinnu-
markaði í júní 2015. Að
meðaltali voru 4.757 manns
atvinnulausir í júní 2015 og
fækkaði þeim um 0,3 pró-
sentustig frá því í maí.
Atvinnuleysi á höfuð-
borgarsvæðinu var 2,9% en
2,1% á landsbyggðinni. Mest
var atvinnuleysið á Suður-
nesjum, 3,1%, en minnst á
Norðurlandi vestra, 1,2%, og
1,5% á Austurlandi.
14,5% allra atvinnulausra
í lok júní voru á aldrinum
18-24 ára, eða 740 manns,
sem er töluverð fækkun frá
því í maí þegar 845 manns á
þessu aldursbili voru skráð
atvinnulaus. Á sama tíma
í fyrra var fjöldi atvinnu-
lausra á sama aldursbili 952
manns og hefur því fækkað
um 212 milli ára í þessum
aldurshópi. Skráð atvinnu-
leysi 18-24 ára reiknast
2,6% miðað við áætlaðan
mannafla 18-24 ára.
Alls voru 979 erlendir
ríkisborgarar án atvinnu
í lok júní eða um 19%
atvinnulausra, þar af 590
pólskir ríkisborgarar eða
um 60% erlendra ríkisborg-
ara sem voru á skrá í lok
mánaðarins. Flestir voru
síðast starfandi í gistingu-
og veitingagreinum, 151 í
ýmissi sérhæfðri þjónustu,
124 og 116 í iðnaði og hrá-
efnavinnslu.
Vinnumarkaður SkýrSla VinnumálaStofnunar
Atvinnuleysi mest á Suðurnesjum
fjölmiðlar mikilVægaSti efniSSamningur í 15 ára Sögu SkjáSinS
Skjár einn hefur gengið frá samningi við risann Twentieth Century Fox. Stöðin mun sýna nýjustu
þáttaraðir Fox og margir vinsælir eldri þættir verða aðgengilegir í streymisþjónustu stöðvarinnar.
Sífellt meiri eftirspurn er eftir sjónvarpsefni í streymisþjónustum.
Þ etta er stærsti og mikil-vægasti efnissamningurinn í fimmtán ára sögu Skjás
eins,“ segir Pálmi Guðmundsson,
sjónvarpsstjóri Skjás eins.
Skjár einn hefur gengið frá samn-
ingi við risann Twentieth Century
Fox og verða nýjustu þáttaraðir fyr-
irtækisins á dagskrá stöðvarinn-
ar frá haustmánuðum. Skjár einn
mun bæði sýna nýja þætti auk þess
sem eldra efni verður aðgengilegt í
streymisþjónustu stöðvarinnar.
„Við verðum með meira fram-
boð af nýjum sjónvarpsþáttum en
nokkru sinni fyrr. Auk þessa samn-
ings er Skjárinn með fasta samn-
inga við Disney og CBS Television
um dreifingu á besta sjónvarpsefn-
is sem völ er á,“ segir Pálmi enn-
fremur.
Eins og fjallað hefur verið um í
Fréttatímanum hefur sjónvarps-
neysla landsmanna breyst hratt að
undanförnu og sífellt fleiri nýta sér
streymisþjónustur. „Við erum klár-
lega að koma til móts við breyttar
kröfur,“ segir Pálmi en meðal eldri
þátta Fox sem verða í boði eru New
Girl, The Americans og Homeland
auk eldri þáttaraða á borð við 24,
Prison Break og How I Met Your
Mother. Margir þessara þátta hafa
verið til sýninga hjá samkeppnisað-
ilum Skjás eins.
Á annan tug nýrra þáttaraða frá
Fox verða frumsýndar á Skjá einum
í vetur og hefjast sýningar strax í
haust. Þar á meðal eru Minority Re-
port, Scream Queens, The Bastard
Executioner og American Crime
Story. Þeirrar síðastnefndu er beð-
ið með mikilli eftirvæntingu en þar
leika John Travolta, Cuba Gooding
Jr. og David Schwimmer aðalhlut-
verkin og umfjöllunarefnið eru fræg
glæpamál á borð við réttarhöldin
yfir O.J. Simpson. Auk þess má
nefna gamanþættina The Grin-
der með Rob Lowe, Life in
Pieces með Colin Hanks
og Baskets með Zach Ga-
lifianakis.
„Svo snúa tveir
gamlir og vinsælir
þættir af tur, Twin
Peaks og Prúðuleik-
ararnir. Það ætti nú
að gleðja einhverja,“
segir Pálmi.
Höskuldur Daði
Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Skjárinn semur við
20th Century Fox
John Travolta, Rob Lowe og fleiri verða á
Skjá einum í vetur en í streymisþjónustum
verður hægt að nálgast vinsæla þætti á borð
við New Girl og Homeland.
Pálmi Guðmundsson, sjónvarps-
stjóri Skjás eins, segir að nýr
samningur stöðvarinnar við Fox
komi til móts við breyttar kröfur
neytenda.
6 fréttir Helgin 14.-16. ágúst 2015