Fréttatíminn - 21.08.2015, Page 2
TENNIS
er skemmtileg hreyfing
Nú er rétti tíminn til að
panta fastan tíma í tennis.
Eigum nokkra tíma lausa.
Skemmtilegu byrjendanámskeiðin
fyrir fullorðna eru að hefjast.
Skráning og upplýsingar í síma 564 4030 eða á tennishollin.is
Ferðaþjónusta 4,6%
af landsframleiðslu
Beint hlutfall ferðaþjónustu í vergri landsfram-
leiðslu hefur aukist úr 3,6% árið 2009 í 4,6% árið
2013. Hlutur ferðaþjónustu í VLF fór úr 56,3 millj-
örðum króna árið 2009 í 87,3 milljarða króna árið
2013, eða sem nemur 55% aukningu. Ein af lykil-
breytum í útreikningum á hlut ferðaþjónustunnar
í þjóðhagsstærðum er hlutfall neyslu ferðamanna
af framleiðsluvirði. Sex prósent framleiðsluvirðis
komu til vegna ferðaþjónustu árið 2013, borið
saman við 4,6% árið 2009. Þetta er yfir 3,9%
meðaltali Evrópusambandsins, samkvæmt nýjustu
niðurstöðum ferðaþjónustureikninga Evrópsku
hagstofunnar (Eurostat) sem birtar voru 2013.
Þ etta er hugmynd frá Skarp-héðni Guðmundssyni dagskrár-stjóra RÚV, sem var ekki annað
hægt en að taka fagnandi eftir að hafa
hlustað á sjálfan sig og félaga sína
hvell skræka í hálfmöttum myndgæð-
um í rúm 30 ár,“ segir Jakob Frímann
Magnússon Stuðmaður.
Vinna við endurbætur á Stuð-
mannamyndinni Með allt á hreinu
hefur staðið yfir að undanförnu. Bæði
hljóð og mynd verða lagfærð og nemur
kostnaðurinn um einni milljón króna,
að sögn Skarphéðins Guðmundssonar
dagskrárstjóra, þó endanleg tala liggi
ekki fyrir.
„Þessi mynd er auðvitað barn síns
tíma og kostaði aðeins fjórar milljónir
í framleiðslu. Við höfum bara ekkert
haft löngun eða rænu á að endurnýja
það sem margir mundu kalla menning-
arverðmæti,“ segir Jakob. „Við höfum
alltaf litið á þessa mynd
sem bara eitt verkefni af
fjölmörgum og höfum
yfirleitt lagt meiri
áherslu á að einbeita
okkur að komandi
verkefnum. En
þetta er auðvitað
frábær hugmynd og
löngu tímabær, og ekki
hægt að segja annað en
að okkur hafi þótt það
merkilegt að opinber
stofnun skuli hafa átt
frumkvæðið að því
að ráðast til þessa
verks,“ segir Jakob.
„RÚV er stundum
kallað vagga menn-
ingarinnar og
kannski er þetta
liður þeirra í því að
varðveita menningarverðmæti.“
Kvikmyndin sem var í leikstjórn
Ágústar Guðmundssonar var unnin
af vanefnum og segir Jakob að hljóðið
hafi alltaf farið í taugarnar á Stuðmönn-
um. „Galli myndarinnar liggur í því að
þegar þú færir 25 ramma kvikmynd
yfir í 24 ramma þá hraðast á myndinni,
sem gerir hljóðið ankannalegt,“ segir
hann. „Það hafa eflaust margir haldið
að meðlimir Stuðmanna hafi verið
svona bjartir og skrækróma, sem var
alls ekki raunin. Að þessu leytinu til
hefur myndin truflað okkur í gegnum
tíðina. Þetta er auðvitað mikil og dýr
vinna, sérstaklega fyrir mynd sem er
þetta mikið notuð. Þó það sé undar-
legt að segja að mynd sé notuð,“ segir
Jakob. „RÚV á sýningarréttinn á mynd-
inni og kýs að laga það sem hægt er að
laga og leggur til þess fé og við getum
ekki sagt neitt annað en frábært. Við
leggjum vitaskuld eitthvað á móti, og
hlökkum til að sjá og heyra.“
Stuðmenn koma fram á Tónaflóði
Rásar 2 á Menningarnótt og segir
Jakob prógrammið samanstanda af
lögum sveitarinnar sem löngu hafa
sannað sig. „Við munum magna
saman seið laga úr trílógíu sem við
höfum tekið fyrir í Hörpu. Þar sem
við fórum í Með allt á hreinu, Tív-
olí og svo Sumar á Sýrlandi.
Ásamt öðru efni úr fórum
sveitarinnar og marka þar
lok Menningarnætur í ár,
áður en flugeldasýning-
in setur svo lokapunkt-
inn,“ segir Jakob Frí-
mann Magnússon.
Hannes
Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Menningarnótt einar spáir blautu veðri á Morgun
Blautt en milt veður á Menningarnótt
„Það er smá bleyta í kortunum,“
segir Einar Sveinbjörnsson
veðurfræðingur aðspurður um
veðrið á Menningarnótt.
„Það verður lægðasvæði á
hringsóli hér suður og suðvestur
af landinu og það verður nánast
alveg ofan í okkur á laugardag-
inn. Það eru því nokkuð miklar
líkur á því að það verði úrkoma
með köflum frá því um hádegi
og eitthvað fram á kvöldið. Ég
spái því að þetta verði um 5-8
mm sem þýðir bleyta en ekki svo
mikil úrkoma. Austlæg vindáttin
er hagstæð fyrir Reykjavík svo
það dregur úr vindi frekar en
hitt sem þýðir að þetta verður til-
tölulega hæglátt veður, kannski
smá gola en alls ekkert rok.
Hitinn með þessu verður hátt
í 12 gráður svo það verður líka
tiltölulega milt,“ segir Einar og
tekur það fram að þetta sé bara
nokkuð góð spá, það sé alls ekk-
ert slagveður í kortunum.
„Það er um að gera að vera
bara vel búinn til fótanna og
mæta í bæinn með regnhlíf eða í
góðum jakka.“ -hh
Ráðið í stöður RÚV á
landsbyggðinni
Ráðið hefur verið í
þrjár auglýstar stöður
frétta- og dagskrár-
gerðarmanna hjá RÚV
á landsbyggðinni.
Tæplega 80 umsóknir
bárust um fjögur störf
frétta- og dagskrár-
gerðarmanna sem
auglýst voru á Vesturlandi/Vestfjörðum,
Norðurlandi, Suðurlandi og á Austurlandi
og greinilegt að margir hæfileikaríkir ein-
staklingar hafa áhuga á að starfa hjá RÚV.
Þórgunnur Oddsdóttir hefur verið ráðin í
starf dagskrárgerðarmanns á Norðurlandi.
Hún verður með aðsetur á Akureyri. Halla
Ólafsdóttir hefur verið ráðin í starf frétta-
og dagskrárgerðarmanns á Vesturlandi og
Vestfjörðum. Halla verður með aðsetur á
Ísafirði. Samúel Örn Erlingsson hefur verið
ráðinn í starf frétta- og dagskrárgerðar-
manns á Suðurlandi. Hann verður með
aðsetur á Hellu.
SÍA II eignast hlut í
Kynnisferðum
SÍA II, sem er framtakssjóður í eigu lífeyris-
sjóða, fjármálafyrirtækja og fagfjárfesta,
hefur keypt 35% hlut í ferðaþjónustu-
fyrirtækinu Kynnisferðum. Hluturinn var
keyptur af fjárfestingafyrirtækinu Alfa hf.
Þeir Steinn Logi Björnsson, forstjóri flug-
félagsins Bluebird, og Benedikt Ólafsson,
forstöðumaður sérhæfðra fjárfestinga
hjá Stefni, koma í kjölfarið inn í stjórn
félagsins.
Vinnuhópur um framtíð
Grímseyjar
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi í gær, að
tillögu forsætisráðherra og sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra, að settur verði
á laggirnar vinnuhópur þvert á ráðuneyti
sem skoði stöðu Grímseyjar í samvinnu
við aðgerðahóp á vegum Akureyrarbæjar.
„Það er brýnt að bregðast við þeirri erfiðu
stöðu sem uppi hefur verði í Grímsey
síðustu ár. Heimamenn óttast að ef ekkert
verður að gert þá leggist útgerð í Grímsey
af og jafnvel búseta í framhaldi þess. Ég
trúi því ekki að nokkur vilji láta það gerast,“
sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra. Vinnuhópurinn skal ljúka
störfum eigi síðar en 1. nóvember 2015.
bíó Með allt á hreinu endurbætt ÞreMur áratuguM eftir fruMsýningu
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur mælir með því að fólk mæti vel skóað í bæinn á Menningarnótt.
Stuðmenn fá
raddir sínar á ný
Hljómsveit allra lands-
manna, Stuðmenn,
og sjónvarp allra
landsmanna, RÚV,
snúa bökum saman
og stuðla að lang-
þráðum og löngu
tímabærum endur-
bótum á kvikmyndinni
Með allt á hreinu
sem kom út árið
1982 og nánast hver
Íslendingur hefur séð
oftar en einu sinni. Ný
og endurbætt útgáfa
myndarinnar verður
tilbúin snemma í
haust og verður sýnd
á RÚV ásamt öðrum
Stuðmannamyndum,
sem og heimildar-
mynd um sögu
sveitarinnar. Jakob
Frímann Magnússon
segir Stuðmenn
fagna þessu uppá-
tæki RÚV og að þeir
muni vonandi hætta
að láta ýmsa hluti
myndarinnar fara í
taugarnar á sér.
Með allt á hreinu var frumsýnd árið 1982 og hefur hljóðið í myndinni alltaf farið í taugarnar á Jakobi Frímanni og öðrum Stuð-
mönnum. Það verður lagað fyrir sýningu á RÚV – rétt eins og myndgæðin.
Jakob Frímann Magnússon
2 fréttir Helgin 21.-23. ágúst 2015