Fréttatíminn - 21.08.2015, Síða 18
Sjómannslíf að vera
tökumaður í Hollywood
Um helgina verður kvikmyndin Hitman: Agent 47 frumsýnd um allan heim. Myndin er framhald
kvikmyndarinnar Hitman frá árinu 2007 og eru báðar myndirnar byggðar á tölvuleiknum Hitman.
Kvikmyndatökumaður myndarinnar er Íslendingurinn Óttar Guðnason, sem hefur starfað við
tökur á kvikmyndum og auglýsingum um árabil. Hann ætlaði að verða rafeindavirki en sumar-
starf á Stöð 2 breytti lífi hans.
Ó ttar Guðnason er kvik-myndatökumaður sem starf-ar mestmegnis erlendis, en
býr alltaf á Íslandi þó það hafi oft
komið upp í hugann að flytja. Hann
segir þó Ísland vera staðsett á milli
tveggja heimsálfa, sem gerir fjarlægð-
ina ekki svo mikla. Hitman: Agent 47
er stærsta verkefni sem hann hefur
tekið þátt í og hann segir ferlið hafa
verið langt og skemmtilegt.
„Tökurnar kláruðust í maí á síðasta
ári,“ segir Óttar. „Svo hefur hún verið
í kringum 14 mánuði að skolast til í
klippi og eftirvinnslu. Þetta er fram-
hald myndarinnar Hitman frá árinu
2007, og er byggt á samnefndum
tölvuleik. Þetta er einn af þessum
stóru tölvuleikjum og fyrri myndin
gekk gríðarlega vel fjárhagslega. Svo
stóð til að gera ákveðið vörumerki úr
þessari mynd, sem gekk ekki alveg
eftir svo það liðu sjö ár þar til að ráðist
var í að gera aðra, sem er þessi mynd
sem er tilbúin núna,“ segir Óttar.
Frumsýnd í 6.500 kvikmynda-
húsum
Óttar var einn af nokkrum kvik-
myndatökumönnum sem þóttu
koma til greina fyrir myndina og
segir hann að hann hafi hreppt
hnossið af nokkrum ástæðum.
Konan og
börnin eru í
sínum verk-
efnum hér
heima og mér
finnst alltaf
notalegt að
lenda í Kefla-
vík og labba
landganginn
eftir verkefni
úti.
„Það er óvenjulegt að
mynd sé frumsýnd í
báðum heimsálfum
í einu og hún er að
fara í fjögur þúsund
kvikmyndahús í
Ameríku og 2500
hús í Evrópu sem er
brjálæðislega mikið,“
segir Óttar Guðnason
sem var tökumaður
í Hitman: Agent 47.
Ljósmynd/Hari
Veldu f lot tustu
Guðrúnartúni 10, Reykjavík og Tryggvabraut 10, Akureyri. Opið mánudaga til föstudaga frá 8 til 17
Skoðaðu úrvalið af flo um DELL tölvum fyrir skólann
á advania.is/skoli, verð frá 69.990 kr.
una
„Leikstjóri myndarinnar, Alexand-
er Bach, er pólskur, og hefur ein-
göngu unnið við auglýsingar und-
anfarin ár,“ segir Óttar. „Ég hafði
aldrei unnið með honum en við
eigum marga sameiginlega vini.
Hann gerði lista með þremur töku-
mönnum sem hann hafði heyrt af,
og ég var einn af þeim. Svo byrjaði
hálfgert umsóknarferli. Myndin er
stúdíómynd, sem þýðir að það er eitt
af stóru kvikmyndaverunum, 20th
Century Fox, sem framleiðir hana.
Þeir vilja ganga úr skugga um að
tökumaðurinn sé fær, vinni hratt,
sem sparar þeim pening og tíma og
að hann sé samvinnuþýður og þess
háttar,“ segir Óttar.
„Um leið og Fox gaf grænt ljós á
mig, þá hófust tökur. Um helgina er
kvikmyndin frumsýnd á sama tíma
í Evrópu og Bandaríkjunum og hún
fær mikla dreifingu, sem þýðir að
það eru miklar vonir bundnar við
hana. Það er óvenjulegt að mynd
sé frumsýnd í báðum heimsálfum
í einu og hún er að fara í fjögur þús-
und kvikmyndahús í Ameríku og
2500 hús í Evrópu sem er brjálæðis-
lega mikið,“ segir Óttar. „Mér var
boðið út á frumsýninguna í Berlín,
þar sem allir verða viðstaddir. Ég
hreinlega nenni því ekki þar sem
myndin er döbbuð á þýsku þar,“
segir Óttar.
Byrjaði 17 ára á Stöð 2
Óttar hefur starfað sem kvik-
myndatökumaður frá því hann var á
menntaskólaaldri, en það stóð samt
aldrei til að fara í þá iðn. Hann seg-
ist hafa sogast inn í bransann, eins
og margir gera.
„Ég byrjaði 17 ára gamall á Stöð
2 og átti bara að vera eitt sumar,“
segir hann. „Mér var bara grýtt í
djúpu laugina og var strax kominn
í það að mynda fréttir og íþróttir og
allt það sem þarf að mynda á sjón-
varpsstöð. Ég var stundum fimm
daga vikunnar uppi á sendibíl að
mynda fótboltaleiki. Um haustið
ætlaði ég að fara aftur í Iðnskólann
þar sem ég hafði verið að læra raf-
eindavirkjun. Ég heillaðist samt svo
Framhald á næstu opnu
18 viðtal Helgin 21.-23. ágúst 2015