Fréttatíminn - 21.08.2015, Qupperneq 38
38 heilsa Helgin 21.-23. ágúst 2015
TónlisT
Viðeigandi
hlaupatónlist
Perspi
Guard
Bakteríusápa
og svitastoppari
Dreifing: Ýmus ehf
Fæst í apótekum
Til meðhöndlunar á
lyktarvandamálum
vegna ofsvitnunar.
Hvatning gefur aukaorku
2 km. Ægissíða við Lyng-
haga og Hofsvallagötu.
10 km. Grandagarður.
13 km. Sæbraut við
Kirkjusand.
22 km. Olís Álfheimum.
32 km. Ægissíða, stígur
við Dunhaga.
35 km. Suðurströnd við
Unnarbraut.
42 km. Lækjargata.
Þ að eru ekki all-ir sem geta eða vilja hlaupa í
Reykjavíkurmara-
þoninu. Það þýðir
samt alls ekki að
ekki sé hægt að taka
þátt því það geta allir
fylgst með hlaupur-
unum og hvatt þá
áfram. Á töflunni hér
fyrir neðan má sjá
nokkrar af hvatning-
arstöðvunum þar sem
hægt er að standa og
hvetja fólk áfram með
hrópum, klappi og al-
mennri gleði sem
gefur íþróttafólkinu
aukaorku í átökunum.
Næring:
„Í aðdraganda hlaups þurfa hlauparar
að halda góðu jafnvægi í vökvaneyslu,
kolvetna-, prótein- og fituneyslu og
miða það við þörf. Og það sama gildir
um daginn fyrir hlaup. Þá þarf auð-
vitað bara að halda áfram að borða
hollan og góðan mat, ekki síst kolvetni
og þá góð kolvetni eins og heilkorn. Að
morgni hlaupdagsins þá borðar maður
bara eitthvað mjög létt í morgunmat.
Sjálf vakna ég um sexleytið og fæ
mér flatkökur með osti. Það er líka
mjög gott að fá sér ristað brauð eða
banana. Sumir fá sér hreinan ávaxta-
safa og þá eplasafa því hann er betri
en appelsínusafinn.“
„Þeir sem hlaupa 10 km eiga alls
ekkert að þurfa að vera með neinn
vökva á sér. Það eru drykkjarstöðvar á
leiðinni fyrir þá sem verður mjög heitt,
en fólk á ekki að þurfa að drekka í 10
km. Þeir sem fara hálft og heilt mara-
þon eru margir hverjir með sitt gel og
sprauta upp í sig á drykkjarstöðvum.“
Andlegur undirbúningur:
„Daginn fyrir hlaup er best að vera
ekki í neinu stressi og halda góðu jafn-
vægi. Þegar maður er kominn svona
nálægt hlaupi þá er jákvæðni og upp-
byggjandi hugsunarháttur það sem
skiptir mestu máli. Þá er maður búin
að leggja allar æfingarnar að baki og
því komið að því að njóta uppsker-
unnar og reyna að vera afslappaður og
trúa því að það sé gott og skemmtilegt
hlaup framundan.“
Mikilvægast í hlaupinu:
„Í hlaupinu sjálfu skiptir öllu máli að fara
ekki of hratt af stað. Ef maður stekkur
af stað þegar skotið ríður af þá getur
maður súrnað í vöðvunum og átt erfitt
með að klára sómasamlega. Í svona
löngu hlaupi þá getur maður leyft sér að
fara rólega af stað og unnið síðan hrað-
ann upp síðar. Það getur verið sniðugt
að skipta hlaupinu upp í þrjá hluta og
taka stöðutékk á sjálfum sér eftir þriðja
hlutann til að finna út hvar maður er
staddur. Þá er kannski kominn tími til
að auka hraðann. Svo þarf að muna að
hlusta alltaf á líkamann.“
Flatkökur fyrir hlaup
Næringarfræðingurinn Fríða Rún Þórðardóttir hefur æft hlaup og frjálsar íþróttir í 35 ár. Hún
segir mikilvægt að huga vel að næringu daginn fyrir hlaup en sjálf fær hún sér flatkökur í
morgunmat á hlaupdaginn sjálfan. Mikilvægast af öllu sé þó að slaka á, vera jákvæður og hlakka
til að uppskera eftir alla erfiðisvinnuna.
Fríða Rún Þórðardóttir hefur æft hlaup og frjálsar íþróttir í 35 ár. Hún starfar sem næringarfræðingur í eldhúsi Landspítalans,
en þess á milli keppir hún fyrir ÍR í hinum og þessum hlaupum og þjálfar hlaupahópa bæði hjá ÍR og Víkingi. Fríða á auk þess og
rekur heilsuvefsíðuna Heilsutorg.is.
Um helgina fer fram hið árlega
Reykjavíkurmaraþon. Í kringum
15 þúsund manns reima á sig
skóna og hlaupa mislangar vega-
lengdir um stræti Reykjavíkur-
borgar. Hlauparar hafa allir sinn
stíl hvað varðar mataræði, fatnað
og hjátrú á keppnisdegi. Mjög
margir hlauparar hlusta á tónlist
á meðan hlaupið er og því ætlum
við að birta hér áhugaverð lög sem
virka á hlaupunum. Það sem gerir
þennan lista frábrugðin öðrum er
það að öll lögin hafa hlaup í titl-
inum. Njótið hlaupsins og góða
skemmtun.
Running in the family - Level 42
Born to run - Bruce Springsteen
Run to the hills - Iron Maiden
Running Up That Hill - Kate Bush
Run Run Away - Slade
Runaways - Killers
Run to you - Bryan Adams
Runaway Baby - Bruno Mars
Run The World - Beyonce
The Long Run - Eagles
Runaway Child - Soul Asylum
Always On The Run - Lenny Kravitz
Band On The Run - The Wings
Runaway - Del Shannon
Time Is Running Out - Muse
Keep On Running - The Spencer
Davis Group
I Ran - A Flock Of Seagulls
Run - Hozier
Runaway - Bon Jovi