Fréttatíminn - 21.08.2015, Side 70
menningarnótt Helgin 21.-23. ágúst 201510
11:30—18:00
Dagskrá í Landsbankanum
Landsbankinn hefur verið styrktaraðili
Menningarnætur frá upphafi og fagnar
því 20 ára afmæli Menningarnætur með
glæsilegri dagskrá í útibúi Landsbankans í
Austurstræti. Landsbankinn Austurstræti 11
12:00—19:00
Á FÖRNUM VEGI Dagur Gunn-
arsson í Kubbnum
Góðar andlitsmyndir hreyfa við okkar
innsta kjarna því þær vekja forvitni og við-
brögð sem spanna allan tilfinningaskalann.
Við skönnum stöðugt þau andlit sem verða
á vegi okkar það er hluti af viðvörunarkerfi
undirmeðvitundarinnar.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Tryggvagata 15
13:00—13:30
Setning Menningarnætur
Menningarnótt verður sett formlega á
Austurvelli með afhjúpun á ljósmyndasýn-
ingunni Menningarnótt í 20. ár! Borgar-
stjórinn í Reykjavík Dagur B. Eggertsson
mun setja hátíðina og afmælisbörn Menn-
ingarnætur opna sýninguna formlega.
Sönghópurinn Spectrum mun syngja
afmælissönginn. Austurvöllur, Kirkjustræti 12
13:00—18:00
Borgarskjalasafn með opið hús á
Menningarnótt
Fjölbreytt dagskrá verður að vanda
í Borgarskjalasafn á menningarnótt.
Safnið verður með opið hús kl. 13.00-18.00
sýning er um konur á árunum 1910-1920
einföld getraun og börnum boðið upp á að
föndra og lita. Árný Árnadóttir söngkona
heldur tónleika kl. 16.30 ásamt undirleik-
ara. Fræðsla um safnið. Borgarskjalasafn
Reykjavíkur, Tryggvagata 15 3. hæð
13:30—14:30
Hringdans frá Balkanskaga
Hringdans frá hjárta Balkanskagans fyrir
alla dansara og áhorfendur. Lækjartorg
13:45—14:05
Götuleikhús Hins Hússins
Hástéttarfólk í matarboði. Hvað er undir
borðinu á yfirborðinu ?
Hitt Húsið, Pósthússtræti 5
14:00—17:00
Femínismi í 100 ár
Í ár fögnum við því að hundrað ár eru
liðin frá því að konur fengu kosninga-
rétt. Að því tilefni opnar Kvenréttinda-
félagið húsarkynni sín og býður gestum
og gangandi velkomna á Hallveigarstaði.
Sýning um sögu kvennabaráttunnar á Ís-
landi á íslensku og ensku kaffi veitingar og
húllumhæ. Hallveigarstaðir Túngata 14
14:10—14:30
Unnur Sara Listhópar Hins
Hússins
Unnur Sara syngur frumsamin popplög af
nýútgefinni plötu ásamt hljómsveit.
Hitt Húsið, Pósthússtræti 5
15:00—16:00
Street Dans Festival Dans Brynju
Péturs
Danshópar Brynju Péturs ásamt kennurum
skólans sýna Hiphop Dancehall Waacking
Popping House Break ofl. DJ Árni Kocoon
spilar fyrir gesti. Lækjartorg
15:25—15:45
Náttsól Listhópar Hins Hússins
Náttsól er þriggja stúlkna söngtríó sem
flytur endurútsett lög eftir íslenskar konur.
Hitt Húsið, Pósthússtræti 5
15:30—16:00
Tanya og Zumba Dívurnar
Tanya og Zumba Dívurnar frá Heilsuskóla
Tanyu verða með skemmtiatriði á Ingólfs-
torgi. Ingólfstorg, Vonarstræti
16:00—17:00
Sigurgeir og Draumabandið á
Restaurant Reykjavík
Einn þekktasti tónlistarmaður Íslands.
Spilar rokk jazz og Country. Nýbúinn að
gefa út sólóplötu
Restaurant Reykjavík, Vesturgata 2
16:00—17:30
Tapas Social Club bandið
Hljómsveitin Tapas Social Club spilar
sjóðheita og suðræna tóna fyrir utan
veitingahúsið Tapasbarinn kl. 16.00 og
17.15.Hjómsveitina skipa Margrét Rán sem
sér um sönginn Eiríkur Rafn Stefánsson
á trompet og slagverki Birgir Þórisson á
píanó og Erik Qvick á trommum og slag-
verk. Tapasbarinn Vesturgata 3b
16:15—16:30
Muscycle Listhópar Hins Hússins
Tónlistar- og nýsköpunarhópurinn Mus-
cycle spilar á hljóðfæri sem þau hafa gert
úr nærumhverfi og náttúru með áherslu á
endurvinnslu. Ólíkum hlutum hefur verið
blandað saman og úr þeim smíðuð ný
hljóðfæri. Hitt Húsið, Pósthússtræti 5
16:30—17:30
Salsa Iceland býður í dans
Salsa Iceland býður gestum Menningar-
nætur í dans á Lækjartorgi. Salsadansarar
Reykjavíkurborgar koma saman og dansa
frjálsan salsadans kennsla verður í boði
fyrir byrjendur auk sýninga. Lækjartorg.
16:35—16:55
Reginfirra & Póet Listhópar Hins
Hússins
Póetið og Reginfirra sameinast í orði og
mynd. Fylgist með ljóðunum skipta um
ham og sleppa frá bókstöfunum.
Hitt húsið, Pósthússtræti 5
20:00—21:00
Jakob Viðar og hljómsveitin
Heiglar
Jakob Viðar og hljómsveitin Heiglar frá
Reykjavík flytja þjóðlagaskotið kammer-
poppblús og sitthvað tilfallandi.
Borgarbókasafnið I Menningarhús Grófinni,
Tryggvagata 15
21:00—22:00
Grínsérsveitin Bergmál spilar
fagra tóna umvafið húmor
Þær Elísa Hildur og Selma syngja sína
frumsömdu tónlist þar sem þær leggja
áherslu á fyndna texta með óvanalegum
umfjöllunarefnum. Austurstræti 6
20:00—22:00
Verð að heiman í dag
ETHOS: - Heimilislausa leikhúsið sýnir
Verð að heiman í dag. Sviðslistaverk sem
sprettur úr djúpinu - þar sem hinir
raddlausu fá rödd. Allir þátttakendur og
flytjendur viðburðarins koma úr röðum
utangarðsfólks m.a. heimilislausir ein-
staklingar útigangsfólk hælisleitendur og
fyrrum fangar.
Samkomusalur Hjálpræðishersins Kirkjustræti
2 101 Rvk. Túngata
Iðnó
13:30—16:30
Komið úr skúrnum!
Bílskúrshljómsveitir skipuðum síungum og
ferskum pönkurum rokkurum og blúsurum
koma úr skúrum borgarinnar og troða upp
í Iðnó á menningarnótt. Iðnó, Vonarstræti
18:30—19:30
Blúsveisla í Iðnó
Blússveit Þollýjar með Friðrik Karlsson
gítarleikara í fararbroddi býður til blús-
veislu með gospelívafi þar sem leikinn
verður kröftugur ryþmablús í bland við
hugljúfar melódíur. Iðnó, Vonarstræti 3
Tjarnarbíó
13:00—14:00
Fljúgandi fjölskyldur
Írski nýsirkús hópurinn Fidget Feet vinnur
nú með íslenska danshópnum bíbí & blaka
að nýju verki fyrir yngstu áhorfendurna.
Á menningarnótt bjóða hóparnir á opna
æfingu í Tjarnarbíó þar sem að gestir fá
tækifæri til að fljúga um með listamönn-
unum. Tjarnarbíó, Tjarnargata 12
12:00—22:00
Forum / Torg – HULDA
Um er að ræða málverkasýningu Huldu
Hlínar Magnúsdóttur. Sjá upplýsingar á
www.huldahlin.com. Tjarnarbío, Tjarnar-
gata 12
14:30—15:10
Tónleikar í tómi
Blindir og sjónskertir tónlistarmenn koma
fram og flytja tónlist í almyrkvuðum sal
Tjarnarbíó. Tjarnarbíó, Tjarnargata 12
16:00—16:40
Tónleikar í tómi
Blindir og sjónskertir tónlistarmenn koma
fram og flytja tónlist í almyrkvuðum sal
Tjarnarbíó. Tjarnarbíó, Tjarnargata 12
17:30—18:00
Kórgjörningur með Spectrum
Sönghópurinn Spectrum fremur kór-
gjörninginn „Hljóð í myrkri - Ljós á torgi“.
Stjórnandi er Ingveldur Ýr. Tjarnarbíó,
Tjarnargata 12
20:00—21:00
Hinemoa í Tjarnarbíói
Hljómsveitin Hinemoa mun spila í Tjarnar-
bíó kl 20 á Menningarnótt 22.ágúst 2015.
Tjarnarbíó, Tjarnargata 12
21:30—23:00
Electric Elephant tónleikar
Upplifðu undur Electric Elephant á tón-
leikum.Electric Elephant er hljómsveit af
höfuðborgarsvæðinu sem spilar ástarfönk.
Tjarnarbíó, Tjarnargata 12
GaukurInn
18:15—20:00
KvennaKraftur // Ljóðalestur
Íslenskar skáldkonur félagar í Meðgöngu-
ljóðum og Fríyrkjunni lesa upp ljóð sín fyrir
gesti og gangandi. Upplesturinn er hluti af
viðburðinum KvennaKraftur þar sem kast-
ljósinu er beint að hlut kvenna í íslensku
listalífi og verk þeirra sýnd í öllum sínum
fjölbreytileika. Gaukurinn, Naustin
20:00—21:00
KvennaKraftur // Uppistand
Þrjár íslenskar (afar fyndnar!) konur halda
uppistand.Uppistandið er hluti af viðburð-
inum KvennaKraftur þar sem kastljósinu er
beint að hlut kvenna í íslensku listalífi og
verk þeirra sýnd í öllum sínum fjölbreyti-
leika. Gaukurinn, Naustin
norðurmýrIn
14:00—16:00
Náttúra og list
Sýningin Náttúra og list varpar ljósi á um-
hverfið náttúruna og umhverfisvernd. Til
sýnis verður meðal annars list eftir Richard
Serra Bandaloop og fleiri. Léttar veitingar í
boði sendiráðs Bandaríkjanna.
Sendiráð Bandaríkjanna, Laufásvegur 21
SkuGGahverfIð
12:00—23:00
Karnival á Klapparstíg
DJ Margeir og Ofur þakka fyrir sig og
hnykla dansvöðvana á Menningarnótt
ásamt góðum gestum. Á horni Hverfisgötu
og Klapparstígs, Hverfisgata 35 k
13:00—15:00
Listatækið ABBA
Listatækið ABBA Um einstakan viðburð
er að ræða! Endilega komið og upplifið
Listatækið ABBA. Listatækið Abba er engu
líkt komið sjáið og upplifið!
Kaffistofa nemenda LHÍ, Hverfisgata 46
14:00—23:00
Menningarnæturtónleikar X977
og Bar 11
Hinir árlegu Menningarnæturtónleikar
X977 og Bar 11 fara fram í portinu á bakvið
Bar 11 á Hverfisgötu 18. Líkt og undanfarin
ár verður boðið upp á einvalalið tónlistar-
fólks. Portið á bakvið Bar 11 á Hverfisgötu 18,
20:00—23:00—arnarhóll
Tónaflóð Rásar 2
Stórtónleikar Rásar 2 á Menningarnótt í 12.
sinn. Þeir sem fram koma eru rapparinn
ískaldi, Gísli Pálmi, Rokksveitin grjót-
harða, Dimma, reggí-sveitin sjóðheita,
AmabAdamA og síðast en ekki síst, hljóm-
sveit allra landsmanna, hinir einu sönnu
Stuðmenn. Arnarhóll, Hverfisgata 12 k
15:00—18:00
Ferðaklúbburinn 4x4
Sýning á bílum félagsmanna og kynning
á starfsemi klúbbsins. Félagsmenn verða
með skemmtilegar uppákomur.
Hljómskálagarðurinn, Sóleyjargata
16:00—22:30
Garðpartý Bylgjunnar
Garðpartý Bylgjunnar hefst kl. 16 að loknu
Latabæjarhlaupinu og stendur til kl. 22 30
. Fjölskylduskemmtun Zumba og grillveisla
síðdegis Stórtónleikar um kvöldið þar sem
fram koma Páll Óskar, Mannakjöt, Júníus
Meyvant, Milljónamæringarnir ásamt
Bjarna Ara og Bogomil Font, Dikta, Stop
Wait Go ásamt Öldu Dís, Maríu Ólafs, Frið-
rik Dór og Glowie. Hljómskálagarðurinn
þInGholT
11:00—23:30
Ljósmyndasýning blindra og
sjónskertra
Gætir þú tekið mynd blindandi? Hvernig
liti myndin út? Hvernig væri líf þitt án
sjónar?Þessi ljósmyndasýning sýnir myndir
sem sjónskertir og blindir tóku. Við hvetj-
um þig til að koma á Skólavörðustíginn og
kjósa bestu myndina.
Skólavörðustígur, Skólavörðustígur 10
12:00—17:00
100 ára afmælissýning JCI
JCI stendur fyrir Junior Chamber Inter-
national og er alþjóðleg hreyfing fyrir fólk
á aldrinum 18 til 40 ára. Hellusund 3
14:00—16:00
Vöfflukaffi í Þingholtunum
Nokkrir íbúar Þingholtanna bjóðia gestum
og gangandi á heimili sín eða garða, í
vöfflur og kaffi. Þingholt; Óðinsgötu 8b,
Grettisgata 30, Þingholtsstræti 27, Njálsgata
25, Hellusund 3, Ingólfsstræti 19, Ingólfsstræti
21a, Bjargarstígur 17 og Freyjugötu 28
16:00—23:00
Frá hugmynd í sjónvarp
Allir sjónvarpsþættir byrja sem hugmynd.
Til þess að hugmyndin verði að veruleika
þarf fjölbreyttan tækjabúnað. Komdu
og sjáðu hvernig hugmynd verður að
sjónvarpsþætti. Fríkirkjuvegur við Kvenna-
skólann
21.00—22.00
Stefnumót í Fríkirkjunni
Guðrún Gunnarsdóttir Gunnar Gunnarsson
og Þorgrímur Jónsson flytja lög um lífið
ásamt sr. Hirti Magna Jóhannssyni sem
les texta og ljóð milli laga. Fríkirkjan við
Tjörnina, Skálholtsstígur
vöfflukaffI
14:00—16:00
Sú skemmtilega hefð hefur skapast
á Menningarnótt að nokkrir íbúar
Þingholtanna bjóði gestum og gang-
andi á heimili sín eða garða, í vöfflur
og kaffi. Að sjálfsögðu verður haldið
í þessa venju í ár og nú í tilefni af 20
ára afmæli Menningarnætur.
Þingholt;
Óðinsgötu 8b
Grettisgata 30
Þingholtsstræti 27
Njálsgata 25, Hellusund 3
Ingólfsstræti 19
Ingólfsstræti 21a
Bjargarstígur 17 og
Freyjugötu 28