Dagrenning - 01.04.1946, Blaðsíða 13

Dagrenning - 01.04.1946, Blaðsíða 13
dreki. í Opinberunarbókinni eru verurnar: maður (manns-ásjóna), naut, fljúgandi örn og ljón. Raunverulega eru þrjár verurnar hinar sörnu í báðum sögunum, þ. e. maður, naut og fugl, en um fjórðu veruna greinir alveg á, þar sem í annarri sögunni er ljón, en í hinni „dreki“. Þá er það og svipað með þessum sögum, hvert verkefni verurnar hafa. Vættirnar hjá Snorra vaka yfir landinu og ráðast gegn hverjum þeim, sem kemur í illum tilgangi upp að ströndum landsins, og verurnar í Opinberunarbókinni eru „alsettar augum“ og vaka „dag og nótt“. Þær vaka yfir hásæt- inu. Allir, sem ég veit til að skrifað hafi um þessar verur í Opinberunarbókinni telja þessi augu þeirra merkja einhvers konar alsýni vegna þess að þær séu verðir, sem gæta há- sætis „hins hæsta“. V. N sú líking, sem hér kenrur fram rnilli þessara sagna, nægir hvergi nærri til þess að draga þá ályktun, að um eina og sömu sögn sé að ræða. Verður því að athuga málið nánar. Hjá Esekiel spámanni er sagt frá einkenni- legum verum, sem kallaðar eru kerúbar eða varðenglar, sem hafa það hlutverk aðallega, að bæja frá illum verum. Það athyglisverð- asta við þessa kerúba Esekiels spámanns er það, að hver þeirra hefur „fjórar ásjónur". Segir svo um þá í 1. kap. Esekiels spádóms- bókar: „En ásjónur þeirra litu svo út: manns- andlit að framan, ljónsandlit hægra meg- in á þeim fjórurn, nautsandlit vinstra megin á þeim fjórum og arnarandlit á þeim fjórum inn á við.“ Engum getur dulist, að hér eru á ferð- inni hinar sömu „ásjónur“ og í Opinb., þó að munurinn sé sá, að hjá Esekiel liefur hver vera f/orar ásjónur, en í Opinb. hefur hver vera aðeins eina ásjónu. En hér er frásögnin það fyllri, að sagt er í hvaða „átt“ andlitin snúa. „Til hægri“ eða hægra rnegin, er ljónsandlitið, og til vinstri nautsandlitið, frarn snýr mannsandlitið, en arnarandlitið snýr aftur, eða „inn á við“, eins og það er orðað í íslenzku Biblíunni. Samkvæmt algildri reglu urn áttir ætti þá Ijónsandlitið að snúa í austur, arnarandlitið í norður, nautsandlitið í vestur og manns- andlitið í suður. Sé þetta nú borið saman við landvættasögu Snorra og það, hvernig landvættunum er skipað niður þar, kemur það einkennilega í ljós, að hinurn þrern ver- um, sem eru hinar sömu í báðum sögunum, er þar nákvæmlega eins skipað niður. Þannig er fuglinn að norðan, uxinn að vestan og maðurinn að sun'nan á báðurn stöðunum. En sú „veran“ eða það „andlitið“, sem er að austan, er hjá Esekiel Ijónið, eins og í Opinberunarbókinni, en hjá Snorra er það „dreki“. Er þá svo kornið, að þrjár landvættanna okkar gömlu eru hvað „ásjónu“ snertir ná- kvæmlega hinar sömu of kerúbar Esekiels og þessar þrjár landvættir okkar gæta ná- kvæmlega sömu átta og kerúbar hans. Kerúbar Esekiels hafa einnig með hönd- um þann starfa að „gæta hásætis hins al- nráttka", svo að hlutverkið er í eðli sínu hið sama og landvættanna hjá Snorra, að vaka yfir landinu og vernda það. VI. pRÁ því er sagt mjög greinilega í 2. kap. 4. Mósebókar, hvernig ísraelsmenn skyldu skipa liði sínu rneðan þeir voru á leiðinni frá Egyptalandi til hins „fyrirheitna lands síns“. Segir þar m. m.: „Sérhver ísraelsmanna skal tjalda hjá merki sínu við einkenni ættar sinnar; DAGRENNING 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.