Dagrenning - 01.04.1946, Blaðsíða 58
burði, gat hann ekki sannað hann á nokkurn
hátt, svo að hann herðir upp hugann og
segir: „Ef þú ert hin heilagi Andrés Bobola,
þá gef nrér eitthvert sýnilegt og áþreifan-
legt tákn þess, að sýn þessi sé veruleiki, svo
að henni verði trúað.“
Bobola svarar:
„Sýnin, sem þú sást, er sönn og mun
verða framkvæmd eins og þú sást hana.
En til þess að þér skuli verða trúað,
skal ég nú, áður en ég fer, styðja hönd
minni hér á borðplötuna og mun þá
verða far eftir hönd mína í borðplöt-
unni, og mátt þú sýna það öllum til
sanninda merkis."
Síðan lagði hann hönd sína á borðplötuna
og hvarf.
Ábótinn varð frá sér numinn, er hann
sá farið í borðplötunni. Hann skrifaði niður
atburðinn, svo að liann geymdist í bókum
klaustursins.
Borðið stóð áfrarn á sarna stað í klaustr-
inu, og það liðu 100 ár frá því að faðir Korz-
eniecki sá sýn þessa og þar til hún rættist.
Það var 1918, þegar hin mikla orusta var
háð á völlunum eða sléttunni lijá Pinsk.
Það var ein af úrslitaorustum fyrri heims-
styrjaldarinnar og sú, sem raunverulega réði
úrslitunum um örlög Póllands.
En 1918 var Pólland endurreist og ein-
mitt þá var Andrés Bobola gerðnr að þjóð-
ardýrlingi Pólverja.
MYNDIRNAR.
Rétt þykir að minnast nokkuð á mynd-
irnar í riti þessu. Stefán Jónsson teiknari
hefur gert káputenkninguna og allar rnynd-
ir aðrar en skjaldarmerki íslands, þrjú af
fjórðungamerkjunum umhverfis íslands-
myndina í miðju heftinu og mynd Einars
Jónssonar myndhöggvara af „Fyrsta land-
nema íslands“, sem liann góðfúslega lánaði.
Myndirnar skýra sig allar sjálfar, nenra
hclzt þær tvær, sem eru í miðju ritsins og
sýna hermerkja- og ættkvísla-skipan ísraels-
manna og landvætta- og þinga-skipan Islend-
inga. Skal því fara unr þær fánr orðunr.
Myndin af hernrcrkja- og ætkvísla-skipan
ísraelsnranna er gerð eftir mynd í bókinni
„The Book of Revelation“ eftir Clarence
Larkin, amerískan lærdómsmann. Sú bók var
fyrst gefin út árið 1919. Myndinni er ekki
breytt í neinu því, er máli skiptir, nema
áletranir eru hér á íslenzku til hægðarauka
fyrir þá, er ekki skilja ensku. Myndin af
landsvætta- og þinga-skipan íslendinga er
gerð eftir fyrirsögn rninni og á hún að-
eins að sýna á táknrænan hátt, líkt og mynd-
in á hinni blaðsíðunni gerir, vætta- og þinga-
skipanina. Allir vita að þegar skipt var í fjórð-
unga og þing, urðu skiptin dálítið önnur en
þarna er sýnt, alveg eins og þegar ísraels-
menn skipuðu ættkvíslum sínum niður, varð
skipanin ekki slík sem myndin sýnir, þar sem
ættkvíslirnar voru rnjög misstórar. Til þess
að bæta úr þessu, eru þingin sýnd á
bls. 31, bæði eins og þau virðast hafa átt að
vera og eins og þau síðar urðu. Myndirnar af
landvættunum, sem raðað er umhverfis, eru
að því er snertir nautið, bergrisann og drek-
ann, fjórðungamerkin frá Alþingishátíðinni
1930, en „fuglinn" er teiknaður sérstaklega
eftir fuglsmerki því, sem nú er í ríkisskjald-
armerkinu. Fuglsmerkið frá 1930 er allt of
líkt pólska erninum og gætu útlendingar
hæglega villst á því merki. — Öllum þeirn,
sem lánuðu mér myndir og ni)'ndamót,
þakka ég það liér með. — Myndamótin öll,
önnur en af ríkisskjaldarmerkinu, svo og
kápumyndamótin, hefur gert prentmynda-
stofan Litróf í Reykjavík.
J.G.
Prentsmidjan ODDI h.f.
48 DAGRENN I NG