Dagrenning - 01.04.1946, Blaðsíða 49
Neðanjarðarsalurinn mikli
Spádóms-dagsetningar Pýramidans mikla
i sambandi við hnignuh, hrun og eyðingu hins nazistiska Þýzkalands.
25. júní 1941:
Styrjöldin við Rússa. Reginvilla Hitleis.
Hinn 18. júní 1941 tilkynnti Hitler Rúss-
um, að hann gæfi þeim frest til 25. júní til
þess „að samþykkja formlega þá kröfu Þjóð-
verja að þeir geti tekið í sínar hendur eftirlit
með matvælabirgðum og atvinnuvegum
Sovietríkjanna“.
Hinn 22. júní fóru hersveitir Hitlers yfir
landamæri Rússa. Innrásin í Rússland var
mesta villan, sem Hitler gerði og höfuðorsök-
in að lokahruni Þýzkalands.
7. júní til 5. nóv. 1944:
Lausn Evrópu og einangrun Þýzícalands.
Hinn 6. júní 1944 var D-dagurinn. Innrás-
in hélt áfram frá þeim degi með miklum
hraða í 5 rnánuði eða til 5. nóvember, en
þá voru öll ríki, sem Hitler hafði kúgað,
ýrnist að fullu laus eða voru að losna undan
valdi hans (að smáríkinu Danmörk undan-
teknu). Á þessum tíma (7. júní til 5. nóv.)
voru Þjóðverjar reknir inn í Þýzkaland og
umkringdir. Hinn 5. nóv. var Hitler sviptur
völdum og þau fengin Himmler.
5. marz til 2. ágúst 1945:
Þýzkalandi nazismans sundrað.
Hinn 5. rnarz 1945, eftir 4 rnánaða kyrr-
stöðu, hófst brezk-amerísk sókn á ný. Köln
var tekin 6. marz, farið vfir Rín 7. marz og
úr því var óslitin sókn, þar til hrun Þýzka-
lands og uppgjöf kom í maímánuði.
Hinn 2. ágúst endaði Potsdamráðstefnan,
sem lýsti yfir þeirri ákvörðun, að allar menjar
hins þýzka hernaðaranda skyldu afmáðar og
öll framleiðsla í hernaðarskyni skyldi bönnuð
í Þýzkalandi.
(Potsdam-ráðstefnan sendi einnig úrslita-
kosti þá til Japana, sem gengið var skyndi-
lega að, er tveim atómsprengjum hafði verið
varpað.)
DAGRENN I NG 39