Dagrenning - 01.04.1946, Blaðsíða 17

Dagrenning - 01.04.1946, Blaðsíða 17
ísraelsmannamanna hefur verið ferhyrning- ur, og sjálfum liernum skipað yzt, en inni í ferhyrningnum var svæði, þar sem hestar, vagnar, vopn og vistir voru geyrnd, svo og konur og börn þegar það fylgdi hernum, eða þjóðin var á ferðalagi. Yfir hverjum fylking- ararmi blakti sérstakt hermerki, er ættflokk- arnir skyldu fylkja sér undir og voru aðal- rnerkin fjögur: mannsmynd, nautsmynd, fuglsmynd og Ijónsmynd. Meðan allur ísrael var eitt ríki, var auðvitað á engan hátt vikið fra þessu fylkingarlagi né breytt hermerkj- um. , Einhver örlagaríkasti atburðurinn í sögu ísraelsþjóðarinnar gerðist árið 977 f. Kr., strax eftir dauða Salomons konungs. Þá skiptist ríkið í tvennt, Ísraelsríki óg Júda- ríki. Ísraelsríki tilheyrðu 10 ættkvíslir, en tvær mynduðu sérstakt ríki: Júdaættkvísl og Benjamínsættkvisl, sem líka mætti kalla konungsættkvíslirnar, því að af þeim voru þrír fyrstu konungar í ísrael. Það leið ekki á löngu, þar til ríki þessu lentu í ófriði hvert við annað og við nágrannana og þurftu að bjóða út her og þá náttúrlega að fylkja hoilum til orustu. Varð þá að ráða fram úr því vandamáli, að eitt af hinum fjórum höfuð skjaldarmerkjum ísraels — Ijónsmerk- ið, merki Júdaættkvíslarinnar og aðalher- merki ísraels —, var nú horfið, þar sem Júda- ættkvíslin var orðin sjálfstætt konungsríki. Júda hafði að sjálfsögðu haldið sínu merki og hefur það alla tíð síðan verið merki þeirrar ættkvíslar og nátengt allri sögu henn- ar. — Skil ég þá hér við Ijónsmerkið, sem hvarf úr skjaldarmerkjum Ísraelsríkisins árið 977, þegar ríkið skiptist. Er ekki svo ýkja erfitt að rekja sögu þess síðan, því að Júdaætt- kvíslin — Gyðingarnir — hefur aldrei týnst að fullu og öllu, eins og hinar ættkvíslir ísraels. En í Ísraelsríki voru nú ekki eftir nema þrjú hinna fornu hermerkja, þ. e. nauts- rnerkið — merki Efraims, — nrannsmerkið — merki Rúbens, og fuglsmerkið — merki Dans. Það liggur nú nokkuð í augum uppi að ekki hafa ísraelsmenn skipt urn fylkingarlag í hernaði, þó að Júda- og Benjamínsættkvísl skildust frá hinum tíu. Biblían sýnir mjög víða að ísraelsmenn voru ákaflega íhalds- samir og breyttu ógjarnan mikið til. Þeir hafa haldið áfram að fylkja í ferhyrning er þeir áttu í ófriði, eins og Móses hafði kennt þeim í öndverðu. En þegar merki Júda var nú horfið, þurfti að sjálfsögðu að fá annað í þess stað. Næst hefði virzt liggja, að taka upp rnerki ísakars eða Sebúlons, sem voru enn eftir að austan- verðu, þar sem Júda hafði verið, en þá hefði orðið að gera annarri þcirri ættkvísl hærra undir höfði en hinni og gat það verið býsna hættulegt, ekki sízt eins og allar sakir stóðu þá, er bylting var nýfarin fram í ríkinu. En við það bættist og hitt, að ljónsmerkið hafði verið aðalhermerki þjóðarinnar, það merki, sem borið var í fylkingarbrjósti í hernaði og sem þar af leiðandi var talið fremst allra hermerkja þjóðarinnar. Að hefja merki ísak- ars eða Sebúlons til slíks vegs liefði því verið sarna og taka þær ættkvíslir frarn yfir Efraims, Rúbens og Dans ættkvíslir, en Jrað hefði ólijákvæmilega leitt til nýs klofnings í Ísraelsríki. Virðist því alveg augljóst, að málið varð ekki leyst svo að öllum gæti vel líkað, nema með því að fá í staðinn fyrir ljónsmerkið eitthvert annað rnerki, sem svo væri heilagt, að öll þjóðin gæti sameinast um það. Og nú kem ég að því, sem mér finnst einna merkilegast í þessu sambandi. ísraels- menn áttu eitt merki, sem þeir frá fyrstu tíð höfðu borið meðal merkja sinna og var meiri sameign ísraelslýðs og meiri átrúnaður við tengdur en öll önnur merki þeirra. — DAGRENN ING I (
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.