Dagrenning - 01.04.1946, Blaðsíða 53

Dagrenning - 01.04.1946, Blaðsíða 53
stjórnmálamanna, sem lengst gengur í skiln- aðarkröfunum og mest hallast að Rússum. Þá er og vitað, að Rússar standa bak við Egypta og liyggjast að gera sér þá vinveitta bæði til þess að ná meiri áhrifum yfir sigl- iugaleiðinni um Zuesskurðinn, en þeirri leið er Bretum lífsnauðsyn að ráða yfir, og enn- fremur vilja þeir fá Egvpta til að sh’ðja kröfuna um að Rússum verði afhent hin gamla nýlenda ítala, Libva (Trípohtanía), sem umboðsstjórnarsvæði, en þá kröfu hafa Rússar haft uppi síðan á Potsdamfundinum. Á Persíu eða Iran, eins og það land nú er kallað, er áður minnzt, og deilan, sem nú er í uppsiglingu í Tyrklandi, og Rússar standa að, er hin athyglisverðasta. IV. gFTIR styrjöldina 1914—1918 gerði Rúss- land vináttusáttmála við Tyrkland og hélzt hann, án breytinga, þar til nú á s.l. ári, að Rússar sögðu honum upp. Ástæðan var talin sú, að endurskoða þyrfti ákvæðin um siglingar um Dardanellasundin, en þau voru í þessum sanmingi. En það var aðeins yfirskinsástæða, enda kom það brátt í ljós, að Rússar gerðu frekari kröfur á hendur Tyrkjum. Fvrir nokkru tóku þeir að krefjast héraða, sem Tyrkir fengu eftir fyrri heimsstyrjöld, og að því er virðist halda Rússar fast við þá kröfu. I ágætri grein í ensku tímariti, „Nationaí Message", sem fjallar um ástandið í þessum löndum og nefnist „Skuggi Rússlands yfir Vestur-Asíu“, segir m. a., að það sé opinbert leyndarmál, að þegar Sarajoglu, þáverandi utanríkisráð- herra Tyrkja, kom til Moskva í október 1939, skömmu áður en hann undirritaði vináttu- sáttmálann milli Tyrkja annars vegar og Breta og Frakka Iiins vegar. hafði honum verið bent á, að það væri óráðlegt af Tyrk- landi að gera þann samning, og að þeir dag- ar myndu koma, að Tyrkir mundu sjá eftir því að hafa ekki faiið eftir 'aðvöiun Rússa í því efni.“ Eru Rússar nú að byrja að framkvæma þessa hótun sína? Svipuð er sagan um Persíu. Rússar sýndu Persum litla ágengni, þar til þeim þótti sýnt, að Persar mundu frekar hallast á sveif með Bretum og Bandaríkjamönnum, en Rússum. Deilan þeirra í milli hófst með því, að Rúss- ar heimtuðu að Persar leigðu sér olíusvæðin í norðurhluta landsins. Persar neituðu því og hófu þá Rússar slíkar árásir á stjórnina í Persíu, að hún varð að hröklast frá völd- um. Ný stjórn, sem við tók, reyndi að jafna þessi mál og hugðist að fara sínu fram í landinu, þar sem ófriðnum var nú að ljúka, og bæði Rússar, Bretar og Bandaríkjamenn höfðu lofað því að fara með allan her burt úr landinú eigi síðar en sex mánuðum eftir ófriðarlok. En Rússar byrjuðu þá ýfingar við Persa með því að hindra för persneskra hersveita til norðurhéraða landsins, og síðar stofnuðu þeir til svokallaðrar skilnaðarhreyf- ingar í héraðinu Aserbeisjan, sem liggur að landamærum Rússlands. Hefur í þessu þófi staðið nú um skeið. Persar lögðu málið fyrir þing „Hinna sameinuðu þjóða", en Rússar hindruðu, að það fengi þar afgreiðslu. Nú hafa Rússar og Persar verið að reyna að ná samkomulagi, og loks hefur það tek- izt, en Rússar munu nota alla aðstöðu sína til að fá komið á leppstjórn í Persíu, og er ekki ólíklegt, að Rússar efli í því skyni hinn nýja verkalýðs eða „alþýðuflokk“ í íran, fyrst þeir urðu að slá undan þar nú, og geri liann að verkfæri til þess að ná völdum í landinu, en að þessu mun verða farið mjög klóklega öllu saman, því að kjarnorkusprengj- an er ennþá því til hindrunar, að „Góg“ leggi til úrslitaorustunnar. DAGRENN I NG 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.