Dagrenning - 01.04.1946, Page 15
3- Hjá Snorra er hinn gríðarstóri fljúgandi
fugl (Snorri kallar það hvorki örn né
gamm) að norðanverðu — í Eyjafirði —
og ver norðurlandið. Hjá ísraelsmönnum
er merki Dans — fljúgandi örn — að
norðanverðu og hlutverk lians er að verja
herbúðirnar ’allri hættu úr norðurátt.
4. Hjá Snorra er „dreki“ fyrir Austurlandi
— í Vopnafirði — og á liann að vernda
það sérstaklega, en hjá ísraelsmönnum
er rnerki Júdaættkvíslar — ljónið — að
austan og hlutverk Júda hersveita að verj-
ast hættunni úr austri, en auk þess var
það merki borið í fylkingarbrjósti, þegar
lagt var til orustu.
Eins og menn sjá af þessu er það svo,
að merki Rúbens — maðurinn —, merki
Efraims — nautið —, og rnerki Dans — fljúg-
andi fugl —, korna öll fyrir í landvættasögu
Snorra og þau eru þar nákvæmlega í sörnu
röð og rnerki þessara ættkvísla eru talin í
Biblíunni. Hið eina, sem skilur, er það, að
í stað ljónsmerkisins — merkis Júdaættkvísl-
arinnar — er kominn „dreki“ hjá Snorra.
Ef þetta frávik væri ekki, mundi enginn
efast um að það væri sarna sagan, sem um
væri að ræða hjá Snorra of í Biblíunni. En
einmitt þetta frávik, að „drekinn" kemur í
stað ljónsins", er fyrir mér það athyglisverð-
asta við þessa landvættasögu okkar og það,
sem gerir hana stórmerkilega í mínum aug-
um.
VII.
AÐ er rétt að revna að gera sér grein
fyrir því þegar í stað, hvers konar „dreki“
það er, sem Snorri talar um í sögu sinni í
Heimskringlu. Óbreytt orð Snorra eru þessi:
„Þá fór ofan úr dalnum dreki mikill og
fylgdu honum margir ormar, pöddur og eðíur
og blésu eitri á hann“ — þ. e. hvalinn. —
Af þessu er þegar ljóst, að það er ekki fljúg-
andi dreki, sem átt er við, heldur skríðandi
dreki. Sést þetta bezt af því að allt, sem
honuin fylgir, eru skriðdýr — „ormar, pödd-
ur og eðlur“. — „Dreki“ þýddi líka til forna
sama og orrnur og er ormur upprunalegra í
norrænum málum að því er virðist. Orðið
„dreki“ mun vera komið úr grísku og þýðir
þar einnig slanga eða orrnur.
Gleggst kemur drekanafnið og merking
þess fram í skipaheitunum fornu. Herskip
fornmanna voru oft nefnd „drekar“ og var
„haus og hali“ — þ. e. bæði stefni skipsins,
— útskornir. Oft eru skip beinlínis skírð
ormsnafni, eins og sést t. d. á heitinu á hinu
mikla skipi Ólafs Tryggvasonar, „Ormurinn
langi“, og öðru kunnu skipsheiti úr fornöld,
„Ormurinn skammi". Alfræðiorðabækur
segja hiklaust, að „ormur“ sé eldra nafn á
norrænum skipum en „dreki“.
Það, sem þó tekur af öll tvímæli um það,
að „drelcinn" hjá Snorra er „ormur“, er það,
að hann og allt hans fylgdarlið spýr eitri.
Hér er augsýnilega á ferðinni citurormur
mikill, með öllu fylgdarliði sínu. Þetta er nú
býsna athyglisvert, þegar þess er gætt, að
slík dýr eru ekki og hafa aldrei verið til á
íslandi. Um það hlýtur Snorra að hafa verið
vel kunnugt. Má af þessu bezt s/á, að sagan
ei aðkomin og upphafíega til orðin í lönd-
um, þar sem menn þekkja vel til „eitraðra
orma“ eða eiturslangna. Frásögn Snorra ber
það því ótvírætt nreð sér, að „drekinn“, sem
þar er sagt frá, er gríðarinikill eiturormur,
sem skríður á kviðnum, en flýgur ekki, og
er því flugdrekinn á skjaldarmerki okkar
ekki rétt mynd af „drekanum“ í sögu Snorra.
Hefur sú breyting orðið síðar að gera orm-
inn að flugdreka, eða eftir að landvætta-
sagan varð þjóðsaga alveg eins og fuglinn
mikli, sem Snorri talar um, verður að
„gammi“ í þjóðsögunni. Ég get ekki stillt
mig um að benda á það hér, þó að það komi
þessu efni ekki beint við, að þessi „dreki“
DAGRENNING 9